Umgengni um nytjastofna sjávar

Fimmtudaginn 19. október 2000, kl. 10:53:44 (772)

2000-10-19 10:53:44# 126. lþ. 14.1 fundur 119. mál: #A umgengni um nytjastofna sjávar# (brottkast) frv., KPál (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 14. fundur, 126. lþ.

[10:53]

Kristján Pálsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Jóhann Ársælsson er greinilega ekki einn af aðdáendum kvótakerfisins og finnur því allt til foráttu og öllum tilraunum sem gerðar eru til að fylgjast með því séu einnig fálmkenndar og til einskis annars en að ergja sjómenn að hans mati.

Ég er dálítið hissa á því að hv. þm. Jóhann Ársælsson skuli vera svona á móti þessu, komandi úr sjávarútvegsplássi. Hann mælir á móti því að meðferð afla og umgengni um mið hafi batnað með kvótakerfinu.

Við munum vel að fyrir kvótakerfið voru netabátar að fara með 12 og upp í 15, 16 trossur á hverjum einasta degi á sjó eða voru með í sjó og reyndu að draga en tókst að sjálfsögðu misjafnlega. Í dag eru menn að fara með á sjó þetta fjórar, fimm og sex trossur vegna þess að þeir vilja koma með sem bestan afla að landi. Það er hagur þeirra að koma með allan afla fyrsta flokks og ná sem hæstu verði.

Það var ekki þannig í sóknardagakerfinu. Það var aðalatriðið þá að ná sem mestu magni á land. Nú er aðalatriðið að ná sem mestu verðmæti á land. Það er náttúrlega munurinn annars vegar á kvótakerfinu og hins vegar sóknardagakerfinu sem ég held að hv. þm. dái hvað mest.

Ég held að það sé alveg sama hvaða leiðir eru farnar til að fylgjast með kvótakerfinu, það er alltaf óvinsælt að vera með refsiaðgerðir. En ef hv. þm. ætlar ekki að fylgjast með kvótakerfinu með neinu móti heldur hleypa þessu frjálsu þá spyr ég: Hvað næst, hv. þm.?