Umgengni um nytjastofna sjávar

Fimmtudaginn 19. október 2000, kl. 11:48:54 (783)

2000-10-19 11:48:54# 126. lþ. 14.1 fundur 119. mál: #A umgengni um nytjastofna sjávar# (brottkast) frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 14. fundur, 126. lþ.

[11:48]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ef þetta væri skilningur sjútvrn. og þeirra sem stjórna Fiskistofu þá held ég að það væri ansi lítið fylgst með aflasamsetningu skipa og nýtingu veiðislóða. Ég hygg að þetta sé ekki skilningur þeirra sem hafa unnið eftir þessum lögum.