[prenta uppsett í dálka] 22. fundur, 126. lþ.
Jón Bjarnason:
Herra forseti. Varðandi orð hæstv. forseta um að umræðunni væri einfaldlega frestað án þess að nánar væri kveðið á um hvenær henni verði fram haldið vil ég gera þá athugasemd að ég lít svo á að umræðunni verði fram haldið strax á fyrsta þingdegi eftir helgi og hún verði þá leidd eðlilega til lykta í framhaldi af því en henni sé ekki frestað um einhvern ótiltekinn tíma. Ég ítreka að það er skilningur minn á orðum hæstv. forseta.