Framhald umræðu um tekjustofna sveitarfélaga og skyld mál

Fimmtudaginn 09. nóvember 2000, kl. 19:22:46 (1577)

2000-11-09 19:22:46# 126. lþ. 22.93 fundur 98#B framhald umræðu um tekjustofna sveitarfélaga og skyld mál# (um fundarstjórn), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 22. fundur, 126. lþ.

[19:22]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Jóns Bjarnasonar. Það er eðlilegt að ljúka umræðunni sem hefur staðið í allan dag og níu menn eru enn á mælendaskrá. Það er eðlilegt að þeir fái að tjá sig strax og málið kemst til umræðu aftur. Ég teldi mjög óheppilegt að fara að slíta sundur umræðuna til að taka tekjuskattsumræðuna inn í þessa umræðu. Ég vara eindregið við því.