Sjúkraflug

Mánudaginn 13. nóvember 2000, kl. 15:30:08 (1600)

2000-11-13 15:30:08# 126. lþ. 23.1 fundur 108#B sjúkraflug# (óundirbúin fsp.), JB
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 126. lþ.

[15:30]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Ég þakka fyrir góð orð hæstv. ráðherra. Ég vil þó ítreka spurningu mína: Verður ekki gert eitthvert bráðabirgðasamkomulag varðandi sjúkraflug á Austurlandi sem taki til áramóta ef samningar um sjúkraflug sem eru núna boðin út takast þá? Og, herra forseti, hvernig eru þeir samningar? Við hverja er samið í öðrum landshlutum varðandi sjúkraflug? Eru þeir samningar þá viðhlítandi eða getum við búist við sömu uppákomum þar eins og átti sér stað á Egilsstaðaflugvelli?