[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 126. lþ.
Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Má e.t.v. skilja þá frestun sem hér er lögð til þannig að sú hugmynd sé að fæðast hjá hæstv. sjútvrh. að fara svipaða leið og í lögum um norsk-íslenska síldarstofninn, að t.d. 10% af heildarkvótanum í botnfiskaflanum verði opnuð fyrir aðgang annarra skipa? Er það leiðin sem ráðherrann hugsar til þegar þessi lög eru samræmd?