Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég tel að spurningin um hvalveiðar eða ekki hvalveiðar snúist ekki um hvort við tökum upp hrefnuveiðar heldur tel ég óhjákvæmilegt að við stefnum ákveðið að því að taka upp hvalveiðar eins og þær voru áður stundaðar. Meðan hvalveiðar voru stundaðar frá Hval hf. í Hvalfirði var haft að leiðarljósti að hægt væri að nýta allt kjöt til manneldis og mjög tryggilega var frá því gengið að ekki væri komið með fleiri hvali að landi en hægt væri að vinna jafnóðum. Stundum var bátunum ekki heimilt að koma með fleiri en eina langreyði að landi í senn og eins og þeir geta kynnt sér sem það vilja fór kjötið allt til manneldis, síðast til Japans en áður í dýrafóður til Englands, en undir lokin allt til manneldis til Japans.
Ég vil jafnframt minna á að hvalveiðistöðin lagði upp úr því að vísindamenn gætu fylgst með veiðunum þannig að til er nákvæm skrá yfir það hvernig þær gengu á hverjum tíma. Þær voru þess vegna vistvænar og í þeim anda sem við viljum nýta sjávarstofna.