Tollalög

Fimmtudaginn 07. desember 2000, kl. 20:14:39 (2994)

2000-12-07 20:14:39# 126. lþ. 43.12 fundur 333. mál: #A tollalög# (ríkistollstjóri) frv. 155/2000, fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 126. lþ.

[20:14]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):

Herra forseti. Ljóst er að það eru uppi ýmis álitamál í þessu efni. Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð í rauninni. Mér heyrist að ekki sé langt á milli okkar hv. þm. í þessu. Hann nefndi ákveðin atriði sem mætti skoða og velta fyrir sér án þess að lýsa andstöðu við málið. Mér finnst það vera mikilvæg niðurstaða af umfjöllun hans og treysti því að hann skoði þetta vel og vandlega á næstunni.