[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 126. lþ.
Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég þóttist vera að svara þessum spurningum áðan en ég hef kannski ekki talað nógu skýrt.
Ég sagði að ég teldi óumdeilt að þörf fyrir aukna starfsmenntun væri fyrir hendi. Það hefur ekki svo ég viti verið gerð nein úttekt í því svo að ég hafi tölu á því hverjir þyrftu starfsmenntun eða hverjir vildu leggja á sig að læra meira, taka þátt í námi af því tagi. Vel getur verið að starfsmenntaráð, sem er vel skipað og vakandi, hafi um þetta einhverjar upplýsingar sem ég skal reyna að útvega hv. nefnd.
Ég fagnaði líka hverju framtaki, hugmyndum og tillögum um aukna starfsmenntun í landinu og eflingu starfsmenntunar. Ég tel að hana vanti og þar af leiðandi tel ég að peningum, hvaðan sem þeir koma, sé vel varið gangi þeir til þessa mikilvæga verkefnis.