[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 126. lþ.
Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Vegna fyrirspurnar hv. þm. verð ég að taka fram að hér er ekki um það að ræða að norskar kýr verði framleiðsludýr. Málið snýst um tilraun sem á að gera, að á næstu árum 25--30 munu kýr taka þátt í tilraunum, koma með fósturvísa frá Noregi, koma með fósturvísa frá Hrísey og inn í landið. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að þær verði í íslenskri náttúru. Þetta er því samkvæmt lögum og öllum þeim reglum sem hér gilda, líkt og með svínastofna sem fluttir hafa verið inn, hænsni og ekkert síður nautgripi, eins og ég hef margrakið úr þessum ræðustól, Aberdeen Angus, Limousin og Galloway sem eru í íslenskri náttúru og eru íslenskir stofnar nú þegar. Af þeim er framleitt kjöt og þess neytt hér. Það er alveg skýrt.
Ég hygg að hér sé ekki um tvöfalt kerfi að ræða. Umhvrh. fer með vernd dýrastofna og framandi tegunda. Ég held að umsagnarþátturinn í þessu frv. og þessum lögum sé alveg skýr. Þessi lög eru æðri hinum og standa á sínum grundvelli þannig að það er skýrt að kerfið er ekki tvöfalt heldur á það að virka mjög faglega þegar kemur að leyfisveitingum.