Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
Þskj. 2 — 2. mál.
Þjóðhagsáætlun
fyrir árið 2001.
(Lögð fram af forsætisráðherra 2. október 2000.)
I. Inngangur og yfirlit um helstu niðurstöður
Íslenskur þjóðarbúskapur er öflugri nú en nokkru sinni áður. Hagvöxtur hefur verið nær 5% að meðaltali frá miðjum síðasta áratug og kaupmáttur heimilanna hefur aukist til samræmis við hann. Á sama tíma hefur störfum fjölgað um 15.000 og atvinnuleysi minnkað úr 5% af vinnuaflinu niður í 1,5%. Verðbólga hefur verið lítil þótt um hríð hafi hún verið nokkru meiri en æskilegt er. Þá hafa umskipti í ríkisfjármálum snúið hallarekstri hins opinbera í umtalsverðan afgang. Á þessu ári stefnir í um 19 milljarða króna afgang borið saman við 13,4 milljarða króna halla árið 1995. Þann skugga ber þó á þessa hagstæðu mynd að viðskiptahalli hefur aukist. Það verður eitt helsta verkefni hagstjórnar á næstu missirum að leggja grunn að minnkun hallans.
Mynd 1. Fjölgun starfa og þróun atvinnuleysis 1995–2000
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Þessi hagfellda þróun á sér rætur í traustu efnahagsumhverfi og stöðugleika sem hefur glætt vöxt í mörgum greinum atvinnulífsins. Markaðsumbætur, aukin samkeppni og skýrari leikreglur hafa leitt af sér aukna framleiðni og verðmætasköpun á breiðum grunni. Í þessu umhverfi hafa nýjar atvinnugreinar blómstrað; hátæknifyrirtæki í lífefnaiðnaði og hugbúnaðargerð hafa náð ótrúlegum árangri á fáum árum. Nýja hagkerfið („the New Economy“) hefur því sett svip sinn á efnahagsþróunina og virðast Íslendingar standa framarlega á því sviði eins og tölur sýna um vöxt slíkra fyrirtækja og aðgang að Netinu. Einnig hefur verið mikill vöxtur í ýmsum „hefðbundnum“ greinum á undanförnum árum, m.a. hefur framleiðsla áls stóraukist og ferðaþjónusta hefur eflst. Þá hafa Íslendingar verið að hasla sér völl erlendis í ríkari mæli en áður, ekki síst á sviði hátækniiðnaðar, sjávarútvegs og fjármála.
Kennileitin í íslensku efnahags- og atvinnulífi hafa því breyst mikið á tiltölulega skömmum tíma. Þjóðarbúskapurinn hefur nú á sér alþjóðlegan blæ þar sem í aðalatriðum gilda sömu leikreglur og meðal þeirra þjóða sem hafa náð lengst. Þetta er án efa besta leiðin til að tryggja efnahag landsmanna í framtíðinni. Ríkisstjórnin mun því byggja áfram á þeim grunni sem hér hefur verið lagður á undanförnum árum þar sem hornsteinarnir eru opinn markaðsbúskapur, stöðugleiki, skýrar leikreglur og öflugir innviðir til að búa í haginn fyrir framfarir í atvinnulífinu.
Hagvaxtarskeiðið hefur leitt til þess að kjör heimila hafa stórbatnað. Til marks um það stefnir í að kaupmáttur ráðstöfunartekna verði um 23% meiri á þessu ári en hann var 1995. Á sama tíma hefur einkaneysla aukist um 36%, eða um 110 milljarða króna sem samsvarar um 1,5 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Við þetta má bæta að mörg heimili og einstaklingar hafa fært sér í nyt ný tækifæri til sparnaðar og fjárfestinga sem leitt hafa af opnun hagkerfisins, sölu ríkisfyrirtækja og eflingu innlends hlutabréfamarkaðar.
Því er ekki að leyna að mikill vöxtur í efnahagslífinu undanfarin ár hefur reynt verulega á hagkerfið. Þetta hefur birst í ýmsum myndum. Þar er tvennt mikilvægast. Annars vegar hefur verðbólga verið í efri mörkum þess sem viðunandi er og hins vegar hefur viðskiptahalli aukist mikið. Athuganir á þenslustiginu í hagkerfinu endurspegla þessa þróun en þær benda til að landsframleiðslan sé nú 2–3% umfram jafnvægisstig þegar til lengri tíma er litið. Í þessu felst mikið álag á hagkerfið og fyrir vikið er brýnt að vöxtur eftirspurnar og umsvifa verði undir jafnvægisvexti á næsta ári. Þannig má stuðla að því að það dragi úr þenslu og búa í haginn fyrir nýja framfarasókn sem þarf að byggja á jafnvægi og aukinni framleiðni og verðmætasköpun. Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar miðar að þessu markmiði. Af þessu leiðir að fylgt verður mjög aðhaldssamri stefnu í ríkisfjármálum og peningamálum og við það miðað að þjóðarútgjöldin aukist ekki um meira en 1,5–2%. Þetta ætti að nægja til að slá verulega á þensluna.
Í ljósi þessarar stefnu eru horfur á að hagvöxtur verði mun minni á næsta ári en hann hefur verið undanfarin ár. Þannig er nú gert ráð fyrir að landsframleiðslan aukist um 1,6% samanborið við 3,6% á þessu ári og umrædd 5% að meðaltali frá miðjum tíunda áratugnum. Hagvaxtarhorfur fyrir næstu árin þar á eftir eru óljósari. Þegar litið er til áranna 2001–2005 má ætla að framan af tímabilinu verði hann fremur hægur en aukist eftir því sem á það líður. Í þessu efni skiptir hins vegar miklu máli hvernig til tekst með framþróun hátækniiðnaðar og hagnýtingu upplýsingatækninnar, þ.e. nýja hagkerfið gæti skilað meiru en hefðbundin spálíkön gera ráð fyrir. Jafnframt standa nú yfir viðræður um byggingu nýs álvers á Austurlandi. Ef af byggingu þess verður yrði hagvöxturinn auðvitað meiri en reiknað er með í þessari spá.
Mynd 2. Þróun þjóðartekna og þjóðarútgjalda 1990–2005
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á forsendum spárinnar um þróun einkaneyslu, samneyslu og fjárfestingar aukast þjóðarútgjöldin í heild um 1,7% milli áranna 2000 og 2001. Til samanburðar stefnir í rúmlega 5% aukningu þeirra á þessu ári. Þótt þannig hægi verulega á vexti þjóðarútgjalda samkvæmt spánni minnkar viðskiptahallinn ekki, einkum vegna minni fiskafla og hærri vaxtagreiðslna af erlendum lánum. Gert er ráð fyrir að verðbólgan á mælikvarða vísitölu neysluverðs minnki á næsta ári. Spáð er um 4% hækkun hennar í stað 5% á þessu ári. Talið er að kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist svipað og á þessu ári og að atvinna verði áfram mikil, þótt eitthvað slakni á spennu á vinnumarkaði.
Hér á eftir er lýst stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Í framhaldi er fjallað um ástand og horfur í þjóðarbúskapnum. Jafnframt fylgja rammagreinar um valin efni og töfluviðauki.
II. Efnahagsstefnan
Staða efnahagsmála hér á landi er í grundvallaratriðum traust. Þetta má meðal annars rekja til aðhaldssamrar efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar undanfarin ár og margvíslegra aðgerða til þess að styrkja undirstöður atvinnulífsins og treysta afkomu heimilanna. Ríkisstjórnin hefur í þessu skyni beitt sér fyrir víðtækum skipulagsbreytingum á mörgum sviðum, meðal annars í lífeyrismálum, skattamálum og á fjármagnsmarkaði. Einnig hefur verið unnið að undirbúningi frekari skipulagsbreytinga, m.a. einkavæðingar Landssímans og áframhaldandi sölu á hlutabréfum í ríkisbönkunum. Þetta er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar að halda áfram einkavæðingu ríkisfyrirtækja, einkum þeirra sem eru í samkeppni við fyrirtæki í eigu einkaaðila.
Ríkisfjármál
Mikilvægasta verkefni hagstjórnar er að varðveita þann árangur í efnahagsmálum sem náðst hefur á undanförnum árum og tryggja áframhaldandi stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Staða ríkisfjármála er hér í lykilhlutverki þar sem brýnt er að móta stefnu, ekki einungis fyrir næsta ár, heldur til nokkurra næstu ára til þess að skapa aukna festu í hagstjórn. Það er raunhæft markmið að greiða niður skuldir ríkissjóðs þannig að peningalegar eignir ríkisins verði meiri en skuldir á árunum 2003–2004. Að því markmiði verður stefnt.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2001 gerir ráð fyrir meiri afgangi á ríkissjóði en nokkru sinni fyrr, eða um 30 milljörðum króna sem svarar til ríflega 4% af landsframleiðslu. Þetta er einsdæmi í íslenskri hagsögu. Samkvæmt þessu eru horfur á að þriðja árið í röð verði afgangur á ríkissjóði meiri en 20 milljarðar króna, eða samanlagt um 80 milljarðar króna frá árinu 1999. Þessi mikli afgangur hefur fyrst og fremst verið nýttur til þess að grynnka á skuldum með þeim árangri að hreinar skuldir ríkissjóðs munu lækka úr 170 milljörðum króna í árslok 1997 í 100 milljarða í lok ársins 2001. Hrein skuldastaða í hlutfalli við landsframleiðslu lækkar þannig úr 32½% í 14%, eða um meira en helming. Þetta er einstæður árangur sem hefur skipað Íslandi í fremstu röð í þessum efnum meðal sambærilegra ríkja.
Sterk staða ríkisfjármála hefur hamlað gegn innlendri eftirspurn að undanförnu og þannig stuðlað að auknu jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Mikilvægt er að halda áfram á sömu braut og fylgja aðhaldssamri stefnu í ríkisfjármálum á næstu árum, auk þess sem sala á eignahlut ríkisins í ýmsum fyrirtækjum, einkum á fjármála- og fjarskiptamarkaði, getur skilað umtalsverðum tekjum í ríkissjóð. Þessar forsendur gefa færi á stórfelldri lækkun skulda ríkissjóðs á næstu árum.
Þessi þróun hefur átt sinn þátt í að tryggja meiri hagvöxt hér á landi á síðustu árum en í helstu nágrannaríkjunum. Kaupmáttur heimilanna hefur einnig aukist hröðum skrefum og atvinnuleysi er ekki lengur fyrir hendi. Þá hefur tekist að skapa meiri stöðugleika á vinnumarkaði með kjarasamningum til næstu 3–4 ára sem stuðlar að traustara starfsumhverfi fyrir fyrirtæki og launafólk og efnahagslífið almennt.
Á síðari hluta árs 1999 og fram á mitt þetta ár gætti vaxandi verðbólgu. Auk þess hefur viðskiptahalli aukist. Slík þróun er þó ekki einskorðuð við Ísland enda eru vaxandi verðbólga og aukinn viðskiptahalli gjarnan fylgifiskar uppsveiflu í efnahagslífinu, ekki síst þegar hún er eins kröftug og hér hefur verið.
Þá er mikilvægt að hafa í huga að viðskiptahallinn nú stafar ekki af skuldsetningu ríkissjóðs heldur annarra aðila í þjóðfélaginu. Þessi þróun endurspeglar trú þessara aðila á möguleikum sínum til endurgreiðslu þessara skulda og þar með traust þeirra á efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og áframhaldandi stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Stefna ríkisstjórnarinnar að undanförnu hefur miðað að því að styrkja stöðu ríkissjóðs sem hefur skilað þeim árangri að afgangur á ríkissjóði hefur farið vaxandi ár frá ári sem hefur að stærstum hluta gengið til þess að lækka skuldir ríkisins. Jafnframt hefur sterk staða ríkissjóðs verið mikilvægt mótvægi gegn áhrifum aukinnar skuldasöfnunar annarra aðila á innlenda eftirspurn og viðskiptahalla.
Í þessu sambandi er einnig rétt að hafa í huga að erlendar eignir Íslendinga, einkum í hlutabréfum, hafa stóraukist á undanförnum árum. Árið 1994 var nálega engin fjárfesting í erlendum hlutabréfum, en í lok ársins 1999 var hún komin í 124 milljarða og 155 milljarða um mitt ár 2000. Sú ávöxtun sem þessi fjárfesting skilar þjóðarbúinu kemur nú í vaxandi mæli fram á tekjuhlið viðskiptajafnaðar og vegur á móti auknum vaxtakostnaði vegna erlendra skulda.
Upp á síðkastið hafa komið fram sífellt fleiri vísbendingar um að hægt hafi á innlendri eftirspurn. Vöxtur innflutnings er í rénun og bílainnflutningur hefur dregist saman frá síðasta ári. Einnig hefur fasteignaverð verið tiltölulega stöðugt síðustu mánuði og dregið hefur úr fjölda lánsumsókna í húsnæðiskerfinu. Allt eru þetta vísbendingar um minnkandi innlenda eftirspurn og að fram undan sé tímabil meiri verðstöðugleika. Engu að síður verður það brýnt verkefni á næstu árum að draga verulega úr viðskiptahalla.
Peningamál
Aðgerðir í peningamálum eru annar mikilvægur þáttur hagstjórnar en þær hafa að undanförnu beinst að því að hamla gegn ofþenslu og verðbólgu. Aðgerðir í peningamálum og stefnan í ríkisfjármálum hafa því beinst að sama markmiði stöðugleika í hagkerfinu.
Seðlabankinn brást við vaxandi verðbólgu með því að hækka vexti auk þess sem nýjar reglur um laust fé lánastofnana voru settar í lok síðasta árs. Þær stuðla að varkárni í rekstri lánastofnana og hóflegri notkun skammtímalána til fjármögnunar á umsvifum þeirra. Munur innlendra og erlendra skammtímavaxta jókst í ár og hefur ekki verið meiri frá því höft á fjármagnshreyfingum á milli Íslands og umheimsins voru að fullu afnumin árið 1995. Aðhald peningastefnunnar jókst þó ekki eins mikið og vaxtamunurinn gæti gefið til kynna þar sem verðbólguvæntingar almennings og aðila á fjármagnsmarkaði jukust.
Aðhaldssöm stefna Seðlabankans leiddi til þess að gengi krónunnar hækkaði á síðasta ári og fram eftir árinu 2000. Gengishækkunin var nauðsynleg í ljósi vaxandi verðbólgu. Til þess að skapa svigrúm fyrir frekari hækkun gengisins voru vikmörk þess víkkuð í febrúar úr 6% til beggja handa frá miðgengi í 9%. Um leið hækkaði Seðlabankinn vexti sína. Í kjölfarið hækkaði gengi krónunnar og náði hámarki í apríl og maí þegar það fór út fyrir eldri 6% vikmörkin. Í júní og júlí lækkaði gengi krónunnar, m.a. vegna verri horfa í sjávarútvegi. Seðlabankinn brást við þróuninni á gjaldeyrismarkaði í júní og júlí með því að selja erlendan gjaldeyri í talsverðum mæli og átti það sinn þátt í að gengi krónunnar lækkaði ekki meira en raun varð á. Gengislækkun krónunnar felur að jafnaði í sér slökun á aðhaldi peningastefnunnar en gengislækkunin er einnig vísbending um aukna óvissu á gjaldeyrismarkaði sem kann að draga úr erlendri lántöku.
Mikill viðskiptahalli setur peningastefnuna í nokkurn vanda. Hátt gengi krónunnar, sem er bæði fylgifiskur og ein af helstu miðlunarleiðum aðhaldssamrar peningastefnu, stuðlar að lægri verðbólgu en ella, bæði beint í gegnum innflutningsverð og óbeint vegna áhrifa hærra gengis á hagnað og fjárfestingu fyrirtækja. Óhjákvæmileg hliðaráhrif gengishækkunar eru að til skamms tíma eykur hún viðskiptahallann. Peningastefnan verður hins vegar að horfa lengra fram á veg og til lengdar mun aðhaldssöm stefna skila sér í hjöðnun eftirspurnar.
Þótt aðhald peningastefnunnar hafi vaxið jafnt og þétt allt frá árinu 1996 er tiltölulega stutt síðan áhrifanna tók að gæta með áþreifanlegum hætti og enn hefur ekki dregið nægilega úr vexti útlána. Á sama tíma og skammtímavextir hækkuðu lækkuðu vextir verðtryggðra langtímaskuldabréfa, einkum á árinu 1998. Einkaneysla og fjárfesting eru mun næmari fyrir breytingum á langtímaraunvöxtum en skammtímavöxtum.
Verðtryggðir langtímavextir tóku loks að hækka á ný í byrjun síðasta árs og undanfarið ár hafa þeir, þ.m.t. verðtryggðir bankavextir, hækkað umtalsvert. Því má ætla að peningastefnan hafi ekki haft veruleg áhrif til þess að draga úr umsvifum almennings og fyrirtækja fyrr en á þessu ári. Aðhaldið í peningamálum hefur hins vegar skilað sér í lægri verðbólgu en ella sakir hærra gengis. Auk þess dregur úr möguleikum fyrirtækja í erlendri samkeppni til að láta undan þrýstingi um launaskrið og vilji og geta til fjárfestingar verður minni.
Þótt nokkuð virðist hafa dregið úr verðbólgu er hún enn of mikil. Markmið peningastefnunnar verður að draga úr verðbólgu á næstu einu til tveimur árum þannig að hún verði svipuð og í helstu viðskiptalöndum þjóðarinnar. Þjóðhagsáætlun fyrir árið 2001 gerir ráð fyrir að verulega dragi úr vexti innlendrar eftirspurnar. Gangi það eftir gefst hugsanlega tilefni til að slaka á aðhaldi peningastefnunnar. Fyrr en þess sjást skýr merki að verðbólga sé tekin að hjaðna að marki og dregið hefur verulega úr vexti útlána verður þó ótímabært að slaka á aðhaldinu.
Orku- og iðnaðarmál
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að haldið verði áfram uppbyggingu orkufreks iðnaðar og leitað samstarfs við erlenda jafnt sem innlenda fjárfesta um fjármögnun.
Ný yfirlýsing stjórnvalda, Landsvirkjunar og íslenskra og norska fjárfesta um álvers- og orkuframkvæmdir á Austurlandi var undirrituð 24. maí sl. Eins og kunnugt er felur yfirlýsingin í sér verulegar breytingar frá fyrri áformum bæði að því er varðar áfangaskiptingu verkefnisins og tímasetningar. Nú er stefnt að mun stærri byrjunaráfanga en áður og Kárahnúkavirkjun með veitu úr Jökulsá í Fljótsdal í stað Fljótsdalsvirkjunar með lóni á Eyjabökkum. Þessi áfangaskipting og virkjunarútfærsla er talin hagkvæmari en fyrri hugmyndir. Yfirlýsingin felur í sér skuldbindingu þeirra er að henni standa um vinnuferli og samningagerð sem hefur það að markmiði að það liggi fyrir ekki seinna en 1. febrúar 2002 hvort ráðist verði í verkefnið. Þar að baki liggur að framkvæmdir við Kárahnúkavirkjun geti byrjað sumarið 2002 og álverið geti hafið framleiðslu árið 2006.
Viðamikil undirbúnings- og þróunarvinna er hafin í samræmi við yfirlýsinguna og miðar verkinu vel áfram. Þar er m. a. um að ræða vinnu við mat á umhverfisáhrifum fyrir virkjun við Kárahnúka og Fljótsdalsmiðlun, rafmagnslínur, álver og höfn í Reyðarfirði, rannsóknir á virkjunarsvæðum, arðsemisathuganir, undirbúning fjármögnunar og samningagerð af margvíslegu tagi. Við bætist vinna við að styrkja innri gerð byggðar á Austurlandi þannig að samfélagið verði betur í stakk búið til að taka á móti umræddum framkvæmdum og rekstri álvers. Þetta verkefni, ef af verður, er stærsta verkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi.
Upplýsingatækni
Upplýsinga- og fjarskiptatækni er nú orðin ómissandi hjálpartæki flestra atvinnugreina og rafræn viðskipti og rafræn stjórnsýsla eru í örri þróun.
Á síðustu árum hefur upplýsingatækniiðnaði vaxið fiskur um hrygg. Verðmæt störf hafa skapast og útflutningur er vaxandi. Mikilvægt er að hlúa að upplýsingatækniiðnaði og skapa honum þau skilyrði að hann geti vaxið enn frekar á næstu árum. Vinna þarf að endurskoðun laga og reglna og stuðla að auknu framboði menntunar á sviði upplýsingatækni.
Starfandi eru nefndir sem undirbúa innleiðingu tilskipana Evrópusambandsins á sviði rafrænna viðskipta og rafrænna undirskrifta í íslensk lög.
Opinberir aðilar leggja nú áherslu á að ganga á undan með góðu fordæmi og taka upp rafræn opinber viðskipti og rafræna stjórnsýslu.
Rannsóknir og þróun
Rannsóknir hagfræðinga á undanförnum árum hafa sýnt að veruleg fylgni er á milli árangurs í efnahagsmálum annars vegar og rannsókna og þróunarstarfs hins vegar. Þessa hefur vissulega gætt hér á landi. Þær atvinnugreinar sem nú eru í hvað mestri sókn eiga það sameiginlegt að drifkraftur þeirra er einmitt rannsóknir og þróun. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð veruleg áhersla á þátt rannsókna og þróunar í þágu nýsköpunar atvinnulífs. Atvinnustefna og stefna í mennta- og menningarmálum verða æ samofnari í því þekkingarþjóðfélagi sem einkennir íslenskt samfélag. Þannig hefur ríkisstjórnin lagt áherslu á atvinnugreinar sem byggja á þekkingu og menntun, svo sem listir og menning. Á því sviði hefur náðst meiri árangur en vænst var.
Frá 1995 til 1999 jukust opinber útgjöld til rannsókna og þróunarstarfs um tæplega 38% á föstu verðlagi. Starfsemi einkaaðila hefur stóreflst á þessu sviði. Skipulagsbreytingar í hagkerfinu, ekki síst opnun fjármagnsmarkaðar og efling hlutabréfamarkaðar, hafa gjörbreytt möguleikum framsækinna einkafyrirtækja til að stunda rannsóknir og þróun. Útgjöld til málaflokksins í heild hafa vaxið hröðum skrefum á undanförnum árum. Útgjöldin eru þó ekki markmið í sjálfu sér heldur verður fyrst og fremst að huga að árangri starfseminnar. Í þeim efnum þarf að leggja áherslu á að tengja framlög við árangur í ríkari mæli en gert hefur verið. Menntamálaráðuneytið áformar að gera rannsóknasamninga við stofnanir á háskólastigi þar sem framlög verða að hluta tengd árangri. Einnig verður áfram stefnt að því að efla menntun á háskólastigi.
Íslenska rannsóknasamfélagið hefur notið umtalsverðs ávinnings af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, ekki síst í Rammaáætlun Evrópusambandsins, eins og ítarleg úttekt um þátttöku okkar í fjórðu áætluninni sýnir fram á. Við blasir að leggja grunn að efni sjöttu áætlunarinnar. Evrópusambandið undirbýr nú Evrópskt rannsóknasvæði í tengslum við nýju áætlunina, en með því yrði til í álfunni sameiginlegur markaður fyrir vísindi og þekkingu. Einnig liggja fyrir áform um að móta sameiginlega vísindastefnu fyrir Evrópu. Um leið og alþjóðavæðing rannsókna og þróunar verður æ mikilvægari er nauðsynlegt að styrkja innviði innlendrar starfsemi. Fyrir liggur að að efla samvinnu milli innlendra rannsóknastofnana.
III. Ástand og horfur
1. Staða og horfur í þjóðarbúskapnum
1.1 Helstu niðurstöður
Framvinda efnahagsmála á þessu ári hefur mótast af gagnverkandi kröftum. Annars vegar hefur eftirspurn haldið áfram að aukast eins og undanfarin ár en hins vegar hafa þjóðhagsleg skilyrði versnað. Þannig stefnir í 5,3% aukningu þjóðarútgjalda en hagvöxtur er talinn verða 3,6%. Þetta birtist enn skýrar í þróun útflutnings og innflutnings. Talið er að útflutningur í heild aukist nær helmingi minna en í fyrra en takturinn í innflutningi verði aftur á móti hinn sami. Fyrir vikið eykst viðskiptahallinn talsvert. Mikil spenna hefur verið á vinnumarkaði.
Reiknað er með að skilyrði útflutnings verði áfram erfið á næsta ári, m. a. vegna minni fiskafla og hás raungengis, en hins vegar er gert ráð fyrir að vöxtur innflutnings stöðvist. Hér að baki liggur að aðhaldssöm efnahagsstefna slái á þensluna og eftirspurnina í þjóðarbúskapnum. Á þessari forsendu aukast þjóðarútgjöld og landsframleiðsla svipað á næsta ári, en mun hægar en undanfarin ár. Óhjákvæmilegt er að hægja svona á efnahagsstarfseminni um tíma til að koma í veg fyrir að viðskiptahalli fari úr böndum. Að undanförnu hafa komið fram merki um að þenslan sé í rénun, m.a. hefur dregið úr verðbólgu. Spáð er að verðbólgan verði minni á næsta ári en á þessu ári. Viðskiptahallinn verður hins vegar áfram mikill þótt markmiðið um hægari vöxt þjóðarútgjalda náist. Af þessu má sjá að þjóðhagsspáin sem hér verður lýst hvílir á þeirri lykilforsendu að hagstjórnin verði nægilega aðhaldssöm til að tryggja verulega hægari vöxt þjóðarútgalda en undanfarin ár.
Aðrar helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
* Gert er ráð fyrir 3,8% hækkun vísitölu neysluverðs frá upphafi til loka árs 2000 og að hækkun á milli áranna 1999 og 2000 verði 5%. Í samræmi við horfur um minnkandi vöxt eftirspurnar er því nú spáð að heldur dragi úr verðbólgu á næsta ári. Reiknað er með að verðlag hækki um ríflega 3% frá upphafi til loka árs 2001 en 4% á milli áranna 2000 og 2001.
* Í ár er spáð 3,6% vexti landsframleiðslu og 5,3% vexti þjóðarútgjalda. Á árinu 2001 er búist við að hagvöxtur verði öllu minni eða 1,6% og að aukning þjóðarútgjalda verði 1,7%.
* Áætlað er að atvinnuleysi í ár verði um 1½% og hefur það ekki verið minna síðan í byrjun áratugarins. Þótt reiknað sé með að hægi á hagvexti á næsta ári er búist við að atvinnuleysi verði áfram innan við 2%.
* Útlit er fyrir um 1½% vöxt kaupmáttar ráðstöfunartekna á mann í ár og horfur eru á svipuðum vexti á næsta ári.
* Gert er ráð fyrir að aukning innflutnings verði heldur meiri í ár en á síðasta ári, eða 7%, en að vöxtur útflutnings verði nokkuð minni en á síðasta ári, eða um 2½%. Því er spáð að á næsta ári dragi lítillega úr bæði inn- og útflutningi. Gangi þetta eftir verður halli á viðskiptum með vöru og þjónustu í námunda við 40 milljarða króna bæði í ár og á næsta ári.
* Af þessum sökum og vaxandi vaxtagreiðslum af erlendum lánum er reiknað með auknum viðskiptahalla eða sem nemur um 8% af landsframleiðslu bæði á þessu ári og því næsta. Búist er við heldur minni halla á viðskiptajöfnuði á árunum 2002–2005 eða um 7–7½% af landsframleiðslu.
* Mikill viðskiptahalli og lántökur til fjárfestinga í erlendu áhættufjármagni birtast í hærri skuldastöðu þjóðarbúsins gagnvart útlöndum. Gert er ráð fyrir að hrein skuldastaða verði í lok árs um 78% af landsframleiðslu, eða 11½ prósentustigi hærri en um sl. áramót. Reiknað er með að hrein skuldastaða hækki í 85% af landsframleiðslu fyrir lok næsta árs.
* Vegna töluverðs vaxtar í erlendu áhættufjármagni versnar hrein erlend staða þjóðarbúsins hins vegar minna en skuldastaðan. Um síðastliðin áramót var hrein erlend staða neikvæð um 48½% af landsframleiðslu en reiknað er með að hlutfallið verði 55% í lok þessa árs og 59% árslok 2001.
* Horfur eru á að tekjuafgangur ríkis og sveitarfélaga nemi rúmum 19 milljörðum króna á þessu ári samkvæmt uppgjöri Þjóðhagsstofnunar eða 2,8% af landsframleiðslu. Gert er ráð fyrir tæplega 18½ milljarða króna afgangi árið 2001.
* Áætlað er að árlegur hagvöxtur tímabilsins 2002–2005 verði að jafnaði 2–2½%. Byggir sú áætlun meðal annars á því að hagkerfið leiti í framleiðslustig sem samræmist stöðugleika.
1.2 Yfirlit þjóðhagsspár
Hagvöxtur á árinu 2000 er áætlaður 3,6% sem er svipað og áður var gert ráð fyrir. Þetta er heldur minni hagvöxtur en á árinu 1999 þegar hann nam 4,4%. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að þjóðarútgjöld aukist um 5,3% á árinu 2000 samanborið við 4,7% á árinu 1999. Á móti vegur mun meiri halli á viðskiptum með vöru og þjónustu en var í fyrra.
Á árinu 2000 er gert ráð fyrir að einkaneysla aukist um 4% að magni sem er minni vöxtur en á undanförnum árum en þó umfram vöxt kaupmáttar ráðstöfunartekna. Þetta hefur í för með sér aukna skuldsetningu heimilanna. Þá hefur fjárfesting tekið við sér á ný eftir örlítinn samdrátt á síðasta ári og er gert ráð fyrir 11% aukningu á árinu. Vöxt fjárfestingar má aðallega rekja til aukinnar fjárfestingar í sjávarútvegi, og byggingarstarfsemi auk stækkunar Norðuráls og kaupa á hafrannsóknaskipi.
Búist er við að innflutningur vöru og þjónustu vaxi hraðar á þessu ári en útflutningur, eða um 7% á móti 2½% vexti útflutnings. Jöfnuður á viðskiptum með vöru og þjónustu versnar því enn og fer í 6% af landsframleiðslu samanborið við 4½% á árinu 1999. Af þessum sökum verður viðskiptajöfnuður óhagstæðari og er búist við að hallinn nemi 54 milljörðum króna samanborið við 40½ milljarð í fyrra.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 3. Hlutdeild einstakra liða ráðstöfunar í hagvexti 1998–2001
Búist er við að töluvert dragi úr umsvifum í efnahagslífi á árinu 2001, ekki síst vegna mikils samdráttar í aflaheimildum. Áætlað er að hagvöxtur nemi 1,6% sem er mun hægari vöxtur en síðustu fimm ár þegar hagvöxtur var á bilinu 3½-5%. Á árinu 2001 er gert ráð fyrir að einkaneysla vaxi um ríflega 2½% sem er í takt við aukningu í kaupmætti ráðstöfunartekna. Þá er gert ráð fyrir að samneysla aukist um 3% sem er heldur minna en áætlað er á árinu 2000. Á hinn bóginn er búist við að fjárfesting dragist saman um 1½%. Á þessum forsendum verður vöxtur þjóðarútgjalda í heild mun minni en á þessu ári, eða 1,7%. Vegna minni aflaheimilda er reiknað með töluverðum samdrætti í útflutningi sjávarafurða og útflutningi í heild. Vegna minni fjárfestingar og minni aukningar einkaneyslu er einnig gert ráð fyrir samdrætti í innflutningi, en þrátt fyrir það er útlit fyrir að viðskiptahalli minnki ekki á næsta ári, þ.e. verði áfram um 8% af landsframleiðslu.
Mynd 4. Einkaneysla, samneysla og fjárfesting 1990–2001
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 1. Yfirlit þjóðhagsspár
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
1.3 Efnahagshorfur á næstu árum
Að jafnaði er mikil óvissa í spám um þróun efnahagsmála til lengri tíma en eins árs. Við núverandi efnahagsaðstæður er það um margt erfiðara þar sem þensla hefur verið mikil að undanförnu, verðbólga hærri en um margra ára skeið, skortur hefur verið á vinnuafli í sumum greinum og viðskiptahalli meiri en um árabil. Með því að gefa sér ákveðnar forsendur um ytri aðstæður þjóðarbúsins og stefnu í efnahagsmálum má gera sér í hugarlund hvert stefnir að óbreyttu. Hér er birtur framreikningur til áranna 2002–2005 sem ekki ber að líta á sem líklegustu niðurstöðuna heldur vísbendingu að gefnum ákveðnum forsendum.
Í þessum framreikningum er gert ráð fyrir að vöxtur landsframleiðslu í ríkjum OECD nemi um 2¾% að meðaltali og heldur hægi á vexti í viðskiptum landa á milli, en þetta er í samræmi við langtímaspá OECD. Þar er reiknað með að verðbólga í aðildarríkjunum verði stöðug, eða um 2% og atvinnuleysi haldist að meðaltali um 6%. Atvinnuleysi er talið aukast í Evrópu á meðan gert er ráð fyrir að það minnki í Bandaríkjunum.
Kjarasamningar á almenna markaðnum eru í gildi allt til ársins 2004 með grunnkaupshækkunum á bilinu 2¼–3% á ári. Í forsendum framreikninganna er gert ráð fyrir svipuðum grunnkaupshækkunum hjá hinu opinbera en samningar þeirra renna flestir út í október á þessu ári. Einnig er gert ráð fyrir svipaðri grunnkaupshækkun á árinu 2005.
Á árunum 2002–2005 er búist við að dragi úr vexti í efnahagslífi frá því sem nú er en hann verði þó meiri en gert er ráð fyrir á komandi ári. Þannig er reiknað með að hagvöxtur verði á bilinu 2–2½%. Við þennan hagvöxt má gera ráð fyrir að framleiðslan verði í samræmi við framleiðslugetu hagkerfisins og því ætti að slakna á þenslunni innan lands. En þrátt fyrir það verður áfram mikið ójafnvægi í viðskiptum við útlönd í þessum framreikningi. Samkvæmt honum verður viðskiptahalli verulegur allt tímabilið, þótt hann lækki nokkuð frá því sem nú er. Búist er við að hann verði á bilinu 7–7½% af landsframleiðslu. Það liggur því í augum uppi að helsta verkefni hagstjórnar verður að koma á betra jafnvægi í utanríkisviðskiptum landsins, þ.e. að koma á betra samræmi milli þjóðarútgjalda og þjóðartekna.
Reiknað er með að vöxtur einkaneyslu verði svipaður og á árinu 2001, eða 2½–3% á ári. Vöxtur samneyslu er áætlaður svipaður og hann var að meðaltali á árunum 1990-1999, eða 2½%. Í framreikningunum er gert ráð fyrir að fjárfesting dragist eilítið saman, eða um ½% að meðaltali á ári, en fjárfesting sem hlutfall af landsframleiðslu haldist þó há, eða yfir 20%. Þá má búast við heldur meiri vexti útflutnings en innflutnings meðal annars vegna stækkunar Norðuráls og búast má við aukningu í útflutningi sjávarafurða eftir mikinn samdrátt á næsta ári. Þannig er gert ráð fyrir 3½% vexti útflutnings, en tæplega 3% vexti innflutnings. Jöfnuður á viðskiptum með vöru og þjónustu fer því úr halla sem nemur ríflega 5½% af landsframleiðslu árið 2001 í 4½% halla á árinu 2005. Hreinar erlendar skuldir þjóðarbúsins aukast hratt, fara úr 85% af landsframleiðslu á árinu 2001 í ríflega 100% á árinu 2005. Hrein staða þjóðarbúsins hækkar minna vegna fjárfestinga erlendis, eða úr 59% í 68% á þessum tíma.
Á tímabilinu 2002–2005 má búast við því að kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist um 1½–2% á ári, eða svipað og á árunum 2000 og 2001. Þá má búast við að atvinnuleysi aukist og fari yfir 2% á tímabilinu en á hinn bóginn lækki verðbólga og verði komin niður í 2–2½% í lok tímabilsins.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um stóriðjuframkvæmdir umfram stækkun Norðuráls sem lýkur á næsta ári. Ef ákvörðun verður tekin í samræmi við núverandi áætlun um byggingu álvers á Reyðarfirði mun stærstur hluti framkvæmdanna við byggingu álversins og byggingu Kárahnjúkavirkjunar verða á tímabilinu 2003–2005. Framkvæmdir munu hins vegar hefjast sumarið 2002 og álframleiðsla hefst árið 2006. Þessar framkvæmdir myndu hafa töluverð áhrif á framreikningana þar sem fjárfesting yrði mun hærri. Því yrði hagvöxtur hærri en hér er gert ráð fyrir en viðskiptajöfnuður myndi að sama skapi versna.
2. Alþjóðleg efnahagsmál
Þróun efnahagsmála í heiminum hefur verið hagfelld á þessu ári. Hagvöxtur hefur nær hvarvetna færst í aukana. Þannig hefur verið mikill gangur í efnahagslífinu í Bandaríkjunum, eins og undanfarin ár, uppsveifla í Evrópu og Japan virðist vera að ná sér á strik, þótt meiri óvissa ríki um framvinduna þar. Annars staðar hefur efnahagur einnig styrkst þó finna megi undantekningar frá því, einkum í Afríku og Asíu. Engu að síður veldur áhyggjum hversu ójafn hagvöxtur hefur verið á helstu gjaldmiðlasvæðunum þremur. Þetta hefur leitt af sér fjárhagslegt ójafnvægi sem gæti valdið erfiðleikum síðar.
Tafla 2. Ástand og horfur í efnahagsmálum í heiminum
Hlutfallslegar breytingar (%) nema annað sé tekið fram.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, september 2000.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að heimsframleiðslan aukist um 4,7% á þessu ári samanborið við 3,4% í fyrra. Í iðnríkjunum er spáð 4,2% vexti, 5,6% í þróunarríkjum og 4,9% í nýmarkaðsríkjum. Þegar litið er til iðnríkjanna er einkennandi hversu ójafn hagvöxturinn hefur verið á þessu ári. Til marks um það er búist við að hagvöxturinn verði rúmlega 5% í Bandaríkjunum, 3½% á evrusvæðinu en aðeins 1,4% í Japan. Spár fyrir næsta ár gera ráð fyrir að hagvöxtur í helstu iðnríkjum verði mun jafnari en á þessu ári. Þannig er reiknað með svipuðum hagvexti í Bandaríkjunum og á evrusvæðinu, 3–3½%, og tæplega 2% í Japan. Spáð er að vöxturinn í iðnríkjunum í heild verði 3,2%. Þetta felur í sér mun hægari hagvöxt en á þessu ári, enda er vöxturinn í iðnríkjunum víða meiri um þessar mundir en talið er að fái staðist til lengdar.
Ör hagvöxtur í iðnríkjunum hefur víða leitt til þenslu og vaxandi verðbólgu. Við bætist að olíuverð hefur hækkað gríðarlega mikið. Fyrir vikið er útlit fyrir að verðbólga í iðnríkjunum verði að meðaltali 2,3% á þessu ári í stað 1,4% á því síðasta. Peningayfirvöld í flestum löndum hafa spornað við vaxandi verðbólgu með því að hækka vexti. Til að mynda hafa millibankavextir í dollurum og evrum (LIBOR) hækkað um 1,5 prósentustig milli áranna 1999 og 2000 og spáð er frekari hækkunum á næstu missirum. Þessi viðbrögð peningayfirvalda hafa tvímælalaust stuðlað að því að halda verðbólgu í skefjum. Miðað við að olíuverð lækki fremur en hækki á næstunni, eins og gert er ráð fyrir, og peningayfirvöld fylgi áfram aðhaldssamri stefnu er reiknað með ívið minni verðbólgu í iðnríkjunum á komandi ári, eða 2,1% í stað 2,3%.
Þegar á allt er litið eru því horfurnar í efnahagsmálum á alþjóðavettvangi uppörvandi. Það verður þó ekki litið fram hjá hættumerkjum á ýmsum sviðum. Fyrst er að nefna að hagvöxtur, vöxtur framleiðslu og eftirspurnar, hefur verið mjög ójafn í helstu iðnríkjum, eins og fram hefur komið hér á undan. Þetta hefur valdið vaxandi ójafnvægi í utanríkisviðskiptum þessara landa, m.a. methalla á viðskiptajöfnuði Bandaríkjanna og miklum afgangi í Japan og Evrópu. Þessu tengist jafnframt háu gengi á dollar, einkum gagnvart evru, og hátt verð á hlutabréfum í Bandaríkjunum. Við svona aðstæður geta breytingar í átt til langtímajafnvægis gerst hratt, eins og dæmin sanna, og ef svo fer gæti syrt í álinn.
Í öðru lagi ríkir mikil óvissa um olíuverð. Það sem af er árinu hefur olíuverð reynst hærra en væntingar stóðu til. Á fyrri hluta ársins lék hráolíuverðið á bilinu 25–30 dollarar á fatið en að undanförnu hefur það leitað upp fyrir þessi mörk. Þetta er töluvert hærra verð en samtök olíuframleiðsluríkja, OPEC, hafa opinberlega stefnt að. Stefnumörkun þeirra hefur miðað að því að halda hráolíuverðinu á bilinu 22–28 dollarar á fatið. Að baki hækkandi olíuverði liggja annars vegar framleiðslutakmarkanir og hins vegar ört vaxandi eftirspurn samfara miklum hagvexti í heiminum. Þótt framleiðslugeta sé næg til að mæta aukinni eftirspurn er hún bundin við fá lönd og fyrir bragðið er viðbúið að önnur olíuframleiðsluríki, sem þegar fullnýta framleiðslugetu sína, leggist gegn umtalsverðri rýmkun á þeim takmörkunum sem samið hefur verið um. Ef hráolíuverðið helst í 30 dollurum á fatið, eða verður þaðan af hærra, má búast við að það smiti út í almennar verðlagsbreytingar með meira afgerandi hætti en fram að þessu.
Í þriðja lagi er rétt að vekja athygli á að þótt vel hafi tekist til um hagstjórn á undanförnum árum er óvíst að stefnan sem nú er fylgt í helstu iðnríkjum tryggi hnökralausa þróun í átt að jafnari hagvexti. Er þá einkum tvennt haft í huga. Annars vegar er hugsanlegt að aðhaldið í bandarískum efnahagsmálum sé ófullnægjandi til að stuðla að svonefndri mjúkri lendingu. Í því sambandi má m.a. benda á að nýja hagkerfið í Bandaríkjunum hefur laðað að mikla erlenda fjárfestingu sem leitt hefur til hækkunar á gengi dollars, viðskiptahalla og hás hlutabréfaverðs. Nýja hagkerfið hefur því borið uppi árangurinn í bandarískum efnahagsmálum undanfarin ár. Ef aftur á móti hægir verulega á framleiðniaukningu tengdri nýja hagkerfinu er líklegt að áhugi fjárfesta beinist í ríkari mæli til annarra landa og fyrir vikið gæti gengi dollars fallið og hlutabréfaverð lækkað. Áhrifin þyrftu þó ekki að vera afdrifarík fyrir önnur lönd nema þetta gerðist snögglega. Hins vegar kann að vera að Japanir hafi ekki gert nóg til að örva eftirspurn og sá bati sem þar örlar á nái sér ekki almennilega á strik.
3. Fjármálamarkaður
Eftirspurnarspenna í hagkerfinu hefur gefið tilefni til aðhaldssamrar peningastefnu. Seðlabankinn hefur þrívegis gripið til vaxtahækkana á þessu ári og hækkað stýrivexti sína í endurhverfum viðskiptum um samtals 1,6 prósentustig. Eru þeir nú 10,6%. Aðhaldsstig peningastefnunnar er nú hátt hvort sem mælikvarðinn er vaxtamunur við útlönd eða raunvaxtastig. Vaxtamunurinn er um 6 prósentustig ef miðað er við vexti þriggja mánaða ríkisvíxla og hefur vart verið hærri ef undanskilið er nokkurra vikna tímabil í júní síðastliðnum. Raunvaxtastig stýrivaxta er nú í sögulegu hámarki eða ríflega 5½% ef miðað er við verðbólguvæntingar sem lesa má úr samanburði á óverðtryggðum og verðtryggðum skuldabréfavöxtum. Fyrstu tvær vaxtahækkanir ársins, í janúar og febrúar, voru studdar með vísan til minnkandi vaxtamunar við útlönd og hækkandi verðbólgu. Samfara vaxtahækkuninni í febrúar voru vikmörk gengisstefnunnar víkkuð í 9% úr 6% í hvora átt frá miðgildi. Hafði gengi krónunnar á þessum tíma farið hækkandi og óttaðist bankinn að án víkkunar gætu vikmörkin hamlað aðhaldi í peningamálum. Vaxtahækkunin í júní kom hins vegar í framhaldi af miklum óróa á gjaldeyrismarkaði og lækkunar krónunnar um rúmlega 2½% á tveimur vikum í júníbyrjun í kjölfar tillagna Hafrannsóknastofnunar um skerðingu aflaheimilda á fiskveiðiárinu 2000/ 2001.
Vaxtahækkun Seðlabankans í júní megnaði ekki að róa aðila á gjaldeyrismarkaði nema tímabundið. Gengið stóðst þó þrýsting til frekari lækkunar, m.a. vegna inngripa Seðlabankans, þar til um miðjan júlí að krónan lækkaði um næstum 3½% á tveimur dögum. Fór gengisskráningarvísitalan hæst í um 116 stig og hafði gengið þá lækkað um meira en 7% frá því það var hæst í lok apríl. Greip Seðlabankinn til þess ráðs að selja gjaldeyri til styrkingar krónunni, en inngrip hans á markaði í júní og júlí voru hin fyrstu frá því í júní á síðasta ári. Einnig hafa ýmsir markaðsaðilar séð kauptækifæri í krónunni með hliðsjón af gengislækkuninni og miklum vaxtamun við útlönd. Hækkaði krónan því nokkuð, eða um rúm 3%, seinni hluta júlímánaðar. Síðan hefur gengið veikst á ný. Síðari hluta septembermánaðar er gengi krónunnar um ½% hærra en það var sem lægst í júlí en um tæplega 5% lægra en um áramót.
Mynd 5. Aðhaldsstig peningastefnunnar — raunvaxtastig og vaxtamunur við útlönd
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Seðlabanki Íslands og Þjóðhagsstofnun.
Metviðskipti voru á millibankamarkaði með gjaldeyri í júní og júlí þegar sviptingar voru hvað mestar og viðskipti fyrstu sjö mánuði ársins eru meiri en allt síðasta ár. Daglegar sveiflur í gengi krónunnar voru einnig meiri en áður hafa þekkst frá því að gjaldeyrisviðskipti voru gefin frjáls. Fróðlegt er að bera saman daglegar sveiflur í gengi íslensku og norsku krónunnar undanfarin þrjú ár. Mynd 6 sýnir mánaðarleg gögn um staðalfrávik daglegra gengisbreytinga beggja myntanna. Þar sést vel hversu óvenjulegar svo miklar gengissveiflur eru á íslenska markaðinum. Einnig virðist skynsamlegt að draga þá ályktun að ekki beri að vænta svo mikilla sveiflna að jafnaði í framtíðinni. Á hinn bóginn geta viðbrögð markaðarins hér á landi í sumar ekki talist óeðlileg í ljósi óhagstæðra tíðinda af efnahagslífinu og þegar þess er gætt að viðskiptahalli hefur verið viðvarandi og fjármagnaður með auknum erlendum lántökum einkaaðila. Raunar blikna sveiflur á innlendum gjaldeyrismarkaði í sumar í samanburði við sveiflur í gengi norsku krónunnar seinni hluta árs 1998 en þær stöfuðu af lækkandi olíuverði og sviptingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Mynd 6. Staðalfrávik daglegra breytinga í gengisvísitölum
íslensku og norsku krónunnar
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Seðlabanki Íslands, Noregsbanki og Þjóðhagsstofnun.
Af vöxtum á millibankamarkaði má merkja að síður er búist við hækkun stýrivaxta Seðlabankans á allra næstu mánuðum. Markaðsaðilar virðast hins vegar gera ráð fyrir að til vaxtahækkunar gæti komið á næstu tólf mánuðum. Væntingar um að bið verði á vaxtahækkunum má rökstyðja með háu aðhaldsstigi peningastefnunnar, því að fyrri vaxtahækkanir eru líklega enn að koma fram í vöxtum á skuldabréfamarkaði og vísbendingum um að eitthvað sé farið að hægja á ferðinni í efnahagslífinu, þó þær vísbendingar séu ekki ótvíræðar. Á hinn bóginn virðist ekki ástæða til lækkunar stýrivaxta í bráð. Eftirspurnarspenna er töluverð og vöxtur peningastærða er enn nokkuð hraður, t.a.m. jókst peningamagn í víðum skilningi (M3) um 13% frá júlí í fyrra til jafnlengdar í ár.
Raunávöxtunarkrafa á skuldabréfamarkaði hefur hækkað nokkuð það sem af er árinu. Seint í september var t.d. ávöxtunarkrafa húsbréfaflokks 98-2 um 5,6% eða 1 prósentustigi hærri en um áramót. Hæst fóru raunvextir um miðjan maí þegar viðskiptavakar sögðu upp samningum um viðskiptavakt ríkistryggðra skuldabréfa. Voru viðskiptavakar óánægðir með upplýsingagjöf ríkissjóðs og Íbúðalánasjóðs um fyrirætlanir um uppkaup á markaði auk þess sem þeir sóttust eftir hvetjandi kerfi til viðskiptavaktar. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafði dregið um fimmtung úr viðskiptum með bæði húsbréf og spariskírteini og viðskipti með ríkisbréf lágu nánast niðri. Ríkissjóður og Íbúðalánasjóður brugðust skjótt við með bættri upplýsingagjöf og útboðum á viðskiptavakt. Í byrjun júní gekk ríkissjóður frá samningum við fjóra aðila um viðskiptavakt og í lok mánaðarins samdi Íbúðalánasjóður við tvo aðila. Fela samningarnir í sér ákvæði um hámarksbil kaup- og sölutilboða, um fjárhæð útistandandi tilboða þar til ákveðinni fjárhæð daglegra viðskipta er náð og um veltuþóknun til viðskiptavakanna. Þá skuldbundu Lánasýsla ríkisins og Íbúðalánasjóður sig til að kaupa ekki upp þau bréf sem viðskiptavaktin nær til. Í kjölfarið jukust viðskipti með ríkisskuldabréf. Hins vegar tók velta húsbréfa ekki við sér í kjölfar nýrrar viðskiptavaktar. Hugsanlega má að hluta rekja þetta til þess að einungis var samið við tvo viðskiptavaka til að byrja með. Einnig er mögulegt að hér gæti áhrifa hækkandi vaxtastigs í ríkara mæli en á markaði fyrir ríkisskuldabréf. Sú breyting varð í byrjun september að viðurkenndum viðskiptavökum húsbréfa var fjölgað í fimm.
Vísbendingar um að þensla á húsnæðismarkaði kunni að vera í rénun hafa leitt til lækkana á skuldabréfavöxtum frá því í sumar. Líklegt er að hámarki raunvaxtastigs hafi verið náð. Ekki virðast þó forsendur til mikilla vaxtalækkana í bráð umfram það sem þegar er orðið. Líklegt er að hækkun raunvaxta endurspegli að hluta tafin áhrif aðgerða Seðlabankans en einnig kann hér að gæta áhrifa óvissu í gengismálum. Ef taldar eru líkur á varanlegri raungengisbreytingu þá veitir verðtrygging einungis takmarkaða vörn gegn gengissveiflum. Því gæti óvissa um gengi hækkað áhættuálag skuldabréfa, þ.m.t. verðtryggðra skuldabréfa. Þá virðist ekkert lát á fjárfestingum lífeyrissjóða erlendis. Áætlað er að hlutdeild erlendra verðbréfa í aukningu hreinnar eignar lífeyrissjóðanna á fyrstu sjö mánuðum ársins hafi verið rúmlega 50%.
3.2 Hlutabréfamarkaður
Eftir nær samfellda hækkun frá því snemma árs 1998 lækkaði hlutabréfaverð hratt frá því snemma í apríl og fram undir miðjan júní. Lækkun Úrvalsvísitölu Verðbréfaþings (VÞÍ) á þessu tímabili nam um 20% en lækkun Vísitölu Aðallista var heldur minni eða rúm 15%. Síðan hefur hlutabréfaverð þegar á heildina er litið haldist nokkuð stöðugt og er seint í september svipað og það var um miðjan júní. Frá áramótum hefur Úrvalsvísitalan lækkað um 6% en Vísitala Aðallista nánast staðið í stað. Mjög mikill munur er á þróun einstakra atvinnugreinavísitalna það sem af er ári en flestar hafa þær þó lækkað nokkuð frá því snemma í apríl.
Ýmsar ástæður hafa verið nefndar fyrir hinum snöggu umskiptum á hlutabréfamarkaði í vor. Hlutabréfaverð var að margra mati orðið mjög hátt eftir miklar hækkanir mánuðina á undan. Þannig hafði hlutabréfaverð hækkað um u.þ.b. 15% fyrstu þrjá mánuði ársins og meira en 50% undangengna tólf mánuði. Hagnaðaraukning félaga á VÞÍ hafði verið drifkraftur þessara hækkana en einnig var ljóst að mikil bjartsýni um framtíðarvöxt hagnaðar var byggð inn í hlutabréfaverð sérstaklega með tilliti til ytri aðstæðna, svo sem hás raungengis, óhagstæðrar olíuverðsþróunar og líkum á hægari hagvexti en undanfarin ár. Vaxtaþróun á skuldabréfamarkaði var fjármálastofnunum einnig óhagstæð í vor en frá því snemma í mars þar til síðla í maí hækkuðu húsbréfavextir um tæpt prósentustig. Þá ollu tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar um aflaheimildir í byrjun júní nokkrum vonbrigðum. Spár sérfræðinga um afkomu á fyrri hluta árs 2000 endurspegluðu breyttar væntingar enda var þar reiknað með nokkru lægri hagnaði en fyrir sama tímabil árið 1999. Afkoma var engu að síður undir væntingum en það hefur ekki haft áhrif til frekari lækkunar á hlutabréfaverði frá því sem þegar var orðið.
Fleira mætti nefna sem áhrifaþætti til lækkunar hlutabréfaverðs. Fjárfestum hafa t.a.m. staðið til boða áhugaverðir kostir á frummarkaði sem hafa að einhverju marki beint sjónum þeirra frá kaupum á hlutabréfum á VÞÍ. Ekki er fjarri lagi að ætla að það sem af er ári hafi hátt í 30 milljörðum verið safnað í hlutafjárútboðum sem einkum beindust að innlendum fjárfestum. Einnig kann lækkunin á hlutabréfaverði að bera vott um aukna næmni fyrir verðsveiflum á erlendum hlutabréfamörkuðum. Einkum virðist sem veruleg verðlækkun á Nasdaq vísitölunni bandarísku hafi haft áhrif hér á landi (sjá mynd 7). Má sennilega rekja þau áhrif til þriggja aðskildra þátta. Í fyrsta lagi kann verðlækkun Nasdaq vísitölunnar að hafa hvatt innlenda fjárfesta til fjárfestinga í bandarískum hátæknifyrirtækjum á kostnað innlendra hlutafélaga. Í öðru lagi lækkuðu hlutabréf DeCode Genetics mikið samfara lækkuninni á Nasdaq vísitölunni sem kann að hafa þrengt að einhverjum innlendum fjárfestum. Í þriðja lagi er ekki ólíklegt að um sálræn áhrif hafi verið að ræða að einhverju marki enda hafði hækkun hlutabréfaverðs hér á landi oft verið rædd með hliðsjón af þróun hlutabréfaverðs í Bandaríkjunum.
Fjöldi valkosta á frummarkaði og auknir möguleikar til útrásar lýsa harðri samkeppni um fjármagn til langtímafjárfestinga almennt og mætti þannig einnig nefna sem áhrifavalda til hækkunar ávöxtunarkröfu á innlendum skuldabréfamarkaði. Ef núverandi húsbréfavextir eru bornir saman við húsbréfavexti áður en vextir tóku að hækka í lok mars virðist hækkun langtímavaxta ein og sér réttlæta þá lækkun sem orðið hefur á hlutabréfaverði á síðastliðnum sex mánuðum. Með hliðsjón af verri afkomuhorfum virðist því áhættuálag það sem fjárfestar krefjast á innlenda hlutabréfafjárfestingu umfram innlenda skuldabréfafjárfestingu hafa farið lækkandi.
Mynd 7. Þróun Úrvalsvísitölu VÞÍ og Nasdaq vístölunnar
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: VÞÍ og Nasdaq.
Sjö hlutafélög hafa verið skráð á VÞÍ það sem af er ári. Átta félög hafa verið afskráð og fæst það að nokkru leyti skýrt með sameiningum félaga á VÞÍ. Hefur skráðum félögum því fækkað um eitt frá ársbyrjun og eru þau nú 74. Fyrstu átta mánuði ársins voru viðskipti með hlutabréf á VÞÍ um 44 milljarðar króna og utanþingsviðskipti 93 milljarðar króna. Stefnir í verulega aukningu frá árinu 1999 en þá voru viðskipti með hlutabréf á VÞÍ 40 milljarðar króna allt árið og utanþingsviðskipti 85 milljarðar króna. Veltan er mjög mismikil eftir félögum. Hlutdeild veltuhæstu félaga á hlutabréfamarkaði hér á landi í heildarveltu er þó töluvert lægri en víða annars staðar eins og sjá má á mynd 8. Það sem fyrst og fremst háir innlendum hlutabréfamarkaði í samanburði við þróaða hlutabréfamarkaði er því ekki ójöfn dreifing veltunnar heldur lítil velta almennt. Vonast er til að rafræn skráning og tenging VÞÍ við Norex verði til þess að auka áhuga erlendra fjárfesta á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Áætlað er að hlutabréf allra félaga á VÞÍ verði komin á rafrænt form síðla næsta árs. SAXESS viðskiptakerfi Norex samstarfsins verður tekið í notkun hjá VÞÍ þann 23. október næstkomandi.
Mynd 8. Hlutdeild veltuhæstu félaga í heildarveltu*
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
* Félögum er raðað í tuttugu jafnstóra hópa frá þeim veltuhæstu til þeirra veltulægstu. Myndin sýnir hlutdeild efsta hópsins í heildarveltu.
Heimild: FIBV, International Federation of Stock Exchanges og VÞÍ.
4. Utanríkisviðskipti og greiðslujöfnuður
Nú er gert ráð fyrir að halli á viðskiptum við útlönd nemi 54 milljörðum króna á þessu ári, eða sem nemur 8% af landsframleiðslu. Þetta er mun meiri halli en á síðasta ári þegar hann nam 6,5% af landsframleiðslu. Stærsta hluta viðskiptahallans má rekja til halla á viðskiptum með vöru og þjónustu en hann er áætlaður 40½ milljarðar króna á þessu ári, samanborið við 28 milljarða króna á síðasta ári. Gert er ráð fyrir svipuðum halla á árinu 2001, en vegna skuldasöfnunar erlendis og vaxtahækkana eykst viðskiptahallinn í krónum talið úr 54 milljörðum í 57 milljarða á næsta ári.
4.1 Umhverfi utanríkisviðskipta
Hækkandi olíuverð á heimsmarkaði hefur sett svip sinn á alþjóðaviðskipti síðustu missirin. Olíuverð náði lágmarki í lok árs 1998 um 10 dollara á fat, en hækkaði mjög á árinu 1999 og var komið í 25 dollara fatið í lok ársins. Olíuverð hefur haldist hátt á árinu 2000 og fór yfir 34 dollara fatið í september. Fyrstu átta mánuði ársins var olíuverð að meðaltali 85% hærra en það var á sama tíma á árinu 1999. Þessi verðþróun hefur haft töluverð áhrif á þróun viðskiptakjara.
Fyrstu sjö mánuði ársins voru viðskiptakjör í vöruviðskiptum 2,8% lakari en á sama tíma í fyrra. Útflutningsverð hækkaði um 1½% á meðan innflutningsverð hækkaði um 4,4%. Hækkun innflutningsverðs má að fullu rekja til hækkunar olíuverðs því verð vöruinnflutnings án olíu stóð í stað fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra.
Fyrstu sjö mánuði ársins fékkst nálægt 25% hærra verð fyrir afurðir álvinnslu en á sama tíma í fyrra. Á hinn bóginn er verð á sjávarafurðum 2½% lægra fyrstu sjö mánuði þessa árs en var á árinu 1999.
Mynd 9. Olíuverð
Bandaríkjadollarar á fat.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fyrir árið í heild er reiknað með að viðskiptakjör vöruviðskipta versni um 1,3% frá fyrra ári. Þetta eru verri horfur en í síðustu spá þegar gert var ráð fyrir að viðskiptakjör bötnuðu frá fyrra ári. Á árinu 2001 er hins vegar búist við að viðskiptakjör batni að nýju, eða um 1½%. Sú forsenda er lögð til grundvallar að verð á olíu lækki heldur frá því sem nú er og er það í samræmi við spár alþjóðastofnana.
Raungengi mælir hversu hátt verðlag er hér á landi miðað við helstu viðskiptalönd okkar og er mikilvægur mælikvarði á umhverfi utanríkisviðskipta. Raungengi hélst nokkuð stöðugt á árunum 1995–1996 en á árinu 1997 tók það að hækka og hefur hækkað stöðugt síðan. Raungengi miðað við neysluverð hækkaði um 1½% á árinu 1998 og 2% á árinu 1999 og í ár er búist við ríflega 4% hækkun. Raungengi miðað við launakostnað hefur hækkað enn meira, eða um 4½% á árinu 1998, 1½% á árinu 1999 og reiknað er með 3½% hækkun á árinu 2000. Stefnir því í að raungengi miðað við launakostnað verði 10% hærra í ár en árið 1997. Þar með er raungengi orðið jafnhátt og það var á árinu 1992. Á árunum 1992 og 1993 var gengið fellt tvisvar um samtals nálægt 14% og í kjölfarið lækkaði raungengið.
Mynd 10. Raungengi krónunnar miðað við hlutfallslegt
neysluverð og launakostnað
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Vísitölur, 1990=100.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
4.2 Vöruútflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins hefur vöruútflutningur í heild dregist saman um 3½% frá fyrra ári. Minna er flutt út af skipum og flugvélum en í fyrra og hefur almennur útflutningur því dregist minna saman, eða um ríflega ½%. Það sem af er ári hefur útflutningur sjávarafurða dregist saman um 3½% en búist er við að hann rétti úr kútnum þegar líða tekur á árið og í heild verði útflutningur óbreyttur frá fyrra ári. Útflutningur stóriðjuafurða hefur aukist um rúmlega 1½% það sem af er ári. Útflutningur annarrar iðnaðarvöru hefur aukist um 23% fyrstu sjö mánuði ársins. Þessa aukningu má rekja til margra smærri liða. Þar á meðal má nefna verulegan vöxt í útflutningi lyfja, véla til fiskverkunar, veiðarfæra, prentaðs efnis og lækningatækja.
Þótt þessi útflutningur hafi vaxið verulega hlutfallslega verður að hafa í huga að hér er um tiltölulega lágar fjárhæðir að tefla.
Fyrir árið í heild er því spáð að útflutningsframleiðsla aukist um 3% og útflutningur í heild aukist um 1%. Ekki eru horfur á aukinni framleiðslu sjávarafurða, en reiknað með að álframleiðsla aukist um 2%. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að framleiðsla kísiljárns aukist um 35%, en þriðji ofn verksmiðjunnar var tekinn í notkun síðari hluta árs 1999. Þá er reiknað með töluverðum vexti útflutnings iðnaðarvöru annarrar en stóriðju og landbúnaðarvöru, eða um 15%.
Búist er við að framleiðsla sjávarafurða dragist saman um 7% á næsta ári vegna minni aflaheimilda. Á hinn bóginn mun framleiðslugeta Norðuráls aukast og framleiðsla áls því aukast um 6½% á árinu. Áfram gætir áhrifa stækkunar Járnblendiverksmiðjunnar og er búist við að framleiðsla hennar aukist um 15% á árinu 2001. Þá er útlit fyrir að framleiðsla annarra iðnaðarvara og landbúnaðarvöru aukist um 7½% á árinu 2001. Í heild er því gert ráð fyrir að útflutningsframleiðsla dragist saman um ríflega 1½% á árinu 2001. Þar sem búist er við minni útflutningi skipa og flugvéla en á þessu ári er gert ráð fyrir að útflutningur í heild verði rúmlega 3% minni á árinu 2001 en á árinu 2000.
4.3 Vöruinnflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins jókst almennur innflutningur án eldsneytis um 3½% að magni sem er heldur meiri aukning en á sama tíma í fyrra. Innflutningur á neysluvörum öðrum en bifreiðum hélt áfram að aukast, eða um 6½% borið saman við 7½% í fyrra. Umskipti hafa hins vegar orðið í innflutningi bifreiða, en hann hefur dregist saman um ríflega 12% fyrstu sjö mánuði ársins borið saman við 30% aukningu á sama tíma á árinu 1999. Innflutningur fjárfestingarvara hefur aukist um 6¾% fyrstu sjö mánuði ársins og innflutningur á rekstrarvörum er um 2% meiri en í fyrra.
Spáð er að vöruinnflutningur í heild aukist um 5¾% á árinu 2000 og þar af aukist almennur innflutningur um 3¼%. Munurinn liggur í innflutningi skipa og flugvéla, innflutningi vegna stækkunar Norðuráls og innflutningi á olíu. Á árinu 2001 er gert ráð fyrir að almennur innflutningur aukist um 1% en vöruinnflutningur í heild dragist saman um 1¾%, bæði vegna þess að framkvæmdum við stækkun Norðuráls lýkur og vegna minni innflutnings á skipum.
Mynd 11. Innflutningur 1997–2000
Vísitölur, janúar 1997 = 100.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4.4 Þjónustujöfnuður
Frá 1990 fram til ársins 1998 stóð þjónustujöfnuður að jafnaði í járnum eða skilað nokkrum afgangi. Frá 1996 hefur vöxtur þjónustutekna og -gjalda aukist hröðum skrefum, en þar sem vöxtur gjalda hefur aukist hraðar en tekna hefur þjónustujöfnuður versnað töluvert og var hallinn 5,7 milljarðar króna á árinu 1999.
Á fyrri helmingi ársins 2000 voru þjónustutekjur 6 milljörðum króna hærri en á fyrri hluta árs 1999 og þjónustugjöld 9 milljörðum hærri. Þjónustujöfnuður versnaði þannig um 3 milljarða á þessum tíma og nam 6,3 milljörðum króna. Fyrir árið í heild eru horfur á að þjónustutekjur aukist um 6% frá fyrra ári. Þessi aukning stafar ekki síst af auknum tekjum af ferðamönnum, en einnig hafa tekjur af þjónustu annarri en ferðaþjónustu aukist hratt það sem af er ári. Þá er reiknað með að þjónustugjöld vaxi enn meira eða um 10½% á árinu 2000. Ferðaútgjöld Íslendinga erlendis vega þar þyngst, en einnig er mikill vöxtur í gjöldum vegna annarrar þjónustu en ferðaþjónustu.
Þannig er gert ráð fyrir að halli á þjónustujöfnuði á árinu 2000 versni um ríflega 2 milljarða frá fyrra ári og nemi 7,9 milljörðum króna sem er meiri halli en áður hefur þekkst á þjónustujöfnuði. Spáð er að þjónustutekjur og -gjöld vaxi um 3½% á næsta ári og halli á þjónustujöfnuði verði því svipaður og í ár, eða um 8 milljarðar króna.
4.5 Ferðaþjónusta
Erlendum ferðamönnum til Íslands heldur áfram að fjölga. Gera má ráð fyrir að ferðamenn verði um 307 þúsund á árinu 2000. Það er um 17% fjölgun frá fyrra ári en þá voru erlendir ferðamenn sem komu til Íslands 262 þúsund talsins. Á árinu 1999 voru heildartekjur af erlendum ferðamönnum 27,9 milljarðar króna. Það er 2,3% aukning á föstu verði á milli ára. Skiptast tekjurnar í dvalartekjur, 16,4 milljarðar, og fargjaldatekjur, 11,5 milljarðar. Gistinóttum fjölgaði um 9% á árinu en fjölgun ferðamanna var 13,1%
Erlendum ferðamönnum sem koma utan háannatíma hefur fjölgað verulega á undanförnum áratug og má gera ráð fyrir að svo verði áfram. Þrátt fyrir þetta komu 56% ferðamanna á tímabilinu maí til ágúst í fyrra. Það er vart hægt að reikna með jafn mikilli fjölgun ferðamanna á komandi árum og verið hefur. Afkastageta greinarinnar á háannatíma er sá flöskuháls sem takmarkar að óbreyttu fjölgun ferðamanna. Vandséð er að afkastagetan aukist til muna nema með betri nýtingu fjármuna í greininni utan háannatímans. Þá er því spáð að á næsta ári sé von á 335 þúsund erlendum ferðamönnum til landsins sem er 9% aukning frá fyrra ári.
Mynd 12. Meðalfjöldi erlendra ferðamanna
á mánuði á árunum 1990–2000
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Gera má ráð fyrir að á árinu 2000 komi 293 þúsund Íslendingar frá útlöndum. Það er 13,8% aukning frá fyrra ári. Áætluð útgjöld Íslendinga erlendis árið 2000 eru 35 milljarðar króna sem er rúmlega 13% aukning frá fyrra ári.
4.6 Jöfnuður þáttatekna
Stærsti liðurinn í jöfnuði þáttatekna er vaxtagreiðslur af erlendum skuldum þjóðarbúsins. Með viðvarandi halla á viðskiptum við útlönd aukast erlendar skuldir hröðum skrefum. Á árinu 1999 nam viðskiptahalli 40,4 milljörðum króna á meðan erlendar skuldir jukust um 83 milljarða króna frá árslokum 1998 til ársloka 1999. Vaxtagreiðslur fara þannig hækkandi vegna aukinna skulda, en einnig vegna vaxtahækkana erlendis.
Eins og vikið er að í kaflanum um fjármagnshreyfingar er aukning skulda þjóðarbúsins að hluta til vegna fjármögnunar viðskiptahallans en að hluta vegna fjárfestinga erlendis, sérstaklega í hlutabréfum. Nokkuð álitamál er hvernig reikna beri tekjur af erlendum hlutabréfum í þjóðhagsreikningum. Arðgreiðslur ná illa utan um raunverulega ávöxtun. Ekki er þó í samræmi við alþjóðlega staðla að ganga svo langt að „leiðrétta“ ávöxtunina með því að tekjufæra verðbreytingar hlutabréfanna. Á hinn bóginn kemur til álita að reikna eðlilega ávöxtun af því fjármagni sem bundið er í erlendum hlutabréfum.
Tafla 3. Jöfnuður þáttatekna
| 2000 |
2001
|
|
| J öfnu ður þ áttatekna, milljar ðar kr óna |
|
|
| Me ð reikn. áv öxtun á erl. hlutabr. | - 12,9 |
-
15,9
|
| Án reikn. áv öxtunar á erl. hlutabr. | - 20,1 |
-
25,1
|
| J öfnu ður þ áttatekna, hlutfall af VLF |
|
|
| Me ð reikn. áv öxtun á erl. hlutabr. | - 1,9% |
-
2,2%
|
| Án reikn. áv öxtunar á erl. hlutabr. | - 3,0% |
-
3,5%
|
Eðlileg ávöxtun hlutabréfa er háð mati en iðulega er miðað við ríkisskuldabréf að viðbættu áhættuálagi. Þjóðhagsstofnun hefur valið að fara fremur varlega við tekjufærslu af erlendum hlutabréfum og miða við meðalvexti á erlendum skuldum þjóðarbúsins. Þess ber að geta að hér víkur Þjóðhagsstofnun frá þeirri aðferðafræði sem Seðlabankinn hefur beitt við greiðslujafnaðaruppgjör sín en þar er litið fram hjá öllum tekjum af hlutabréfum utan arðgreiðslna. Er það álit Þjóðhagsstofnunar að með því að reikna ávöxtun af erlendri hlutabréfaeign fáist betri mynd af viðskiptajöfnuði og ekki síst þróun hans við hratt vaxandi erlenda hlutabréfaeign. Að öðrum kosti hafa lántökur þjóðarbúsins sem beint eða óbeint fjármagna fjárfestingar í hlutabréfum ávallt neikvæð áhrif á mældan viðskiptajöfnuð nema arðgreiðslur af hlutabréfum séu þeim mun hærri. Arðgreiðslur af erlendri hlutabréfaeign mælast nú sáralitlar í hlutfalli af markaðsvirði. Samanburð á spá um þáttatekjur í ár og á næsta ári samkvæmt þessum aðferðum er að finna í töflu 3. Eins og sjá má er jöfnuður þáttatekna, og þar með viðskiptajöfnuður, ríflega 1% af landsframleiðslu hagstæðari ef aðferð Þjóðhagsstofnunar er fylgt. Tekjufærsla af erlendri verðbréfaeign í viðskiptajöfnuði er sem áður segir nokkuð álitaefni og er málið áfram í skoðun hjá Þjóðhagsstofnun og Seðlabanka.
Í heild er gert ráð fyrir að halli á jöfnuði þáttatekna fari úr 11,6 milljörðum króna á árinu 1999 í 12,9 milljarða á árinu 2000. Búist er við enn meiri halla á árinu 2001, eða sem nemur 15,9 milljörðum króna.
4.7 Viðskiptajöfnuður
Á undanförnum árum hafa þjóðarútgjöld vaxið mun meira en þjóðartekjur og halli á viðskiptajöfnuði því verið mikill. Á árinu 1999 nam viðskiptahallinn 40,4 milljörðum króna sem samsvarar 6,5% af landsframleiðslu. Á þessu ári er gert ráð fyrir að viðskiptahalli aukist enn og nemi 54 milljörðum króna, eða 8% af landsframleiðslu. Stærstan hluta aukins viðskiptahalla má rekja til verri vöruskiptajafnaðar, en jafnframt eykst halli bæði á þjónustujöfnuði og jöfnuði þáttatekna.
Mynd 13. Viðskiptajöfnuður
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hlutfall af landsframleiðslu.
Á árinu 2001 er spáð að viðskiptahalli aukist enn og nemi 56,9 milljörðum króna, eða sem svarar til 7,9% af landsframleiðslu. Búist er við svipuðum halla á vöruskiptum og á árinu 2000, eða um 32½ milljarði króna. Einnig er spáð svipuðum halla á þjónustuviðskiptum og á árinu 2000 eða um 8 milljörðum króna. Á hinn bóginn er reiknað með að jöfnuður þáttatekna versni um 3 milljarða króna, vegna aukinna erlendra skulda og hækkandi vaxta erlendis.
Gangi spá Þjóðhagsstofnunar eftir verður halli á viðskiptajöfnuði sem svarar til 6½–8% af landsframleiðslu í fjögur ár í röð. Ekki eru dæmi um svo mikinn halla í jafn langan tíma frá 1970.
4.8 Fjármagnshreyfingar
Halli á viðskiptajöfnuði endurspeglar að útgjöld þjóðarinnar eru meiri en tekjur hennar. Hin hliðin á viðskiptahalla eru fjármagnshreyfingar til landsins sem nauðsynlegar eru til að fjármagna útgjöld umfram tekjur. Nettó fjármagnshreyfingar til Íslands námu samkvæmt greiðslujafnaðaruppgjöri Seðlabankans um 25 milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Að teknu tilliti til ávöxtunar sem Þjóðhagsstofnun kýs að reikna á erlenda hlutabréfaeign námu fjármagnshreyfingar hins vegar um 21 milljarði króna. Þetta er um 8½ milljarði króna lægri fjárhæð en nam mældum viðskiptahalla á sama tímabili, en samkvæmt skilgreiningu eiga þessar fjárhæðir að vera jafnar. Seðlabankinn bendir á í frétt með greiðslujafnaðaruppgjöri að líklega megi rekja skekkjuna að nokkru leyti til tímamunar í mælingu viðskipta annars vegar og fjármagnshreyfinga hins vegar.
Tafla 4. Greiðslujöfnuður við útlönd
Milljarðar króna.
1 Að meðtaldri reiknaðri ávöxtun á hlutabréf.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Seðlabanki Íslands og Þjóðhagsstofnun
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Þegar nánar er rýnt í greiðslujafnaðaruppgjör fyrir fyrri hluta ársins sést að Íslendingar eru ekki einungis að fá lán sem nemur viðskiptahallanum heldur er einnig töluverð skuldasöfnun vegna fjárfestinga í erlendu áhættufjármagni, en til þess teljast hlutabréf og beinar fjárfestingar. Eign Íslendinga í erlendu áhættufjármagni, og þá fyrst og fremst í erlendu hlutafé, hefur vaxið hröðum skrefum síðastliðin ár. Nettó eignastaða þjóðarinnar í erlendu áhættufjármagni var um mitt ár 151 milljarður króna, eða rúmlega 100 milljörðum króna hærri en í árslok 1998. Hrein erlend staða, sem mælir nettó eignastöðu þjóðarinnar gagnvart útlöndum, þ.m.t. áhættufjármagn, gefur því öllu jákvæðari mynd en hrein erlend skuldastaða sem einungis nær til nettó skulda Íslendinga gagnvart erlendum aðilum. Ólíkt mælingu tekna í viðskiptajöfnuði þá tekur hrein staða tillit til breytinga á markaðsverðmæti verðbréfaeigna hverju sinni. Hrein erlend staða mældist um mitt ár neikvæð um 52% af landsframleiðslu en hreinar skuldir voru hins vegar 75% af landsframleiðslu.
Hugsanlegt er að hækkun raunvaxta hér á landi það sem af er ári sé til merkis um að erfiðara sé orðið að fjármagna viðskiptahallann en undanfarin ár. Hagstæð kjör ríkis og sveitarfélaga á erlendum lánamörkuðum gefa þó bjartari mynd af ástandinu.
Tafla 5. Hrein staða við útlönd
Milljarðar króna í lok tímabils.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
1 Á gengi í lok tímabils.
2 Skuldastaða reiknuð á meðalgengi tímabils til samræmis við landsframleiðslu.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
5. Atvinnuvegir
5.1 Framleiðsla og framleiðni
Í kafla 1.2 hér að framan er yfirlit þjóðhagsspár dregið saman. Þar kemur fram að landsframleiðsla er talin hafa aukist um 4,4% á árinu 1999 samanborið við fyrra ár. Þessi breyting er fengin með því að meta útgjaldahlið þjóðarbúsins, þ.e. neyslu og fjárfestingu að teknu tilliti til vöru- og þjónustuviðskipta við útlönd. Framleiðsluna er einnig unnt að meta með beinum hætti, þ.e. með því að líta á framleiðslubreytingar í einstökum atvinnugreinum því samtals eiga þær breytingar að skila sömu niðurstöðu. Gallinn við þessa beinu aðferð er hins vegar sá að upplýsingar um einstakar atvinnugreinar liggja mun seinna fyrir en um útgjöldin. Miðað við núverandi tilhögun gagnaöflunar er það ekki fyrr en lokið er úrvinnslu úr ársreikningum fyrirtækja og uppgjöri þjóðhagsreikninga frá framleiðsluhlið að fá má mynd af framleiðslubreytingum eftir einstökum atvinnugreinum og framleiðslunni í heild. Á grundvelli ýmissa annarra vísbendinga, svo sem um útflutning og veltubreytingar samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum og almennar verðbreytingar, má þó fara nokkuð nærri um framleiðslubreytingar helstu atvinnuvega. Þessar breytingar eru síðan vegnar saman eftir hlutdeild einstakra atvinnuvega í landsframleiðslu. Í eftirfarandi töflu er leitast við að áætla framleiðsluna eftir atvinnugreinum og eru niðurstöður bornar saman við útgjaldahlið. Áhersla skal á það lögð að hér er einungis um að ræða lauslegar vísbendingar og tilraun til þess að meta hvort unnt sé með ásættanlegri nákvæmni að rekja til einstakra atvinnugreina þær framleiðslubreytingar sem útgjaldahliðin sýnir.
Tafla 6. Áætlaðar framleiðslubreytingar eftir atvinnugreinum
Frá fyrra ári, %.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Niðurstöður þessa samanburðar sýna að undanfarin þrjú ár gefa framleiðslubreytingar eftir atvinnugreinum áþekka mynd af framleiðslunni í heild og útgjaldahliðin. Þessi ár er vöxturinn í heild samkvæmt framleiðsluuppgjöri á bilinu 4 til 5% en eins og vænta mátti er hann ærið misjafn eftir greinum. Áberandi mestur vöxtur er í byggingarstarfsemi, verslun og orkubúskap fyrstu tvö árin en samdráttur er áætlaður í sjávarútvegi sömu ár. Iðnaður og samgöngur lögðu einnig sitt af mörkum. Í ár er talið að vöxturinn verði jafnari milli greina en þó er áfram gert ráð fyrir umtalsverðum vexti í byggingarstarfsemi. Öll árin er vöxturinn talsvert meiri en aukning vinnuaflsins og því hefur framleiðnin aukist. Nú er talið að framleiðni vinnuafls aukist um 1½% í ár og er það svipað og á liðnu ári.
Á grundvelli þessara talna um framleiðslubreytingar í einstökum atvinnugreinum er unnt að meta hvern þátt einstakar atvinnugreinar eiga í myndun hagvaxtarins. Þá kemur fram að á árinu 1998 áttu byggingarstarfsemi, verslun, samgöngur og þjónusta drýgstan þátt í myndun hagvaxtarins en framlag sjávarútvegs var neikvætt. Þá var framlag orkubúskaparins umtalsvert með hliðsjón af stærð þeirrar atvinnugreinar. Á árunum 1999 og 2000 er talið að hlutdeild einstakra atvinnugreina hafi jafnast verulega.
Tafla 7. Áætluð hlutdeild einstakra atvinnugreina í hagvexti, %
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
5.2 Afkoma
Til þess að fá nokkra mynd af afkomuþróun í atvinnurekstri á árinu 2000 hefur Þjóðhagsstofnun tekið saman yfirlit um afkomu 55 fyrirtækja, sem skráð eru á Verðbréfaþingi Íslands, á fyrri hluta árs 2000 og til samanburðar sama tímabil og sömu fyrirtæki árið 1999. Yfirlitið nær til þeirra fyrirtækja sem skiluðu ársreikningum fyrir ágústlok 2000 og hafa almanaksárið að reikningsári.
Verðbréfasjóðum á Verðbréfaþingi er sleppt í þessari athugun. Yfirlitið er í samræmi við breyttar reglur Reikningsskilaráðs um framsetningu ársreikninga. Samkvæmt hinni nýju framsetningu er söluhagnaður fastafjármuna meðal reglulegra tekna og söluhagnaður hlutabréfa meðal fjármunatekna.
Yfirlitið er því ekki fyllilega sambærilegt við yfirlit frá fyrra ári en framsetningu fyrir árið 1999 er breytt til samræmis við uppgjör ársins 2000. Það raskar samanburði á veltubreytingu milli ára hjá þessum fyrirtækjum að fyrirtæki kunna að hafa sameinast skráðum fyrirtækjum á þessu ári en ekki er tekið tillit til þess í uppgjörum fyrra árs.
Hagnaður þessara fyrirtækja sem hlutfall af rekstrartekjum lækkaði úr 6,0% árið 1999 í 2,1% árið 2000. Afkoma einstakra fyrirtækja versnar mjög mikið á milli ára og hefur því mikil áhrif á heildarafkomuna. Um fjórðungur fyrirtækjanna er með betri afkomu á fyrri hluta þessa árs en á sama tímabili í fyrra en þrír fjórðu þeirra er með lakari afkomu.
Þrír flokkar í þessu yfirliti, sjávarútvegsfyrirtæki, fjármálafyrirtæki og samgöngufyrirtæki sýna lakari afkomu milli ára sem nemur 4,9 milljörðum króna.
Í verslun og þjónustu er afkoman svipuð á milli ára, en mun lakari afkoma SÍF hf. sem nemur 625 milljónum króna, breytir afkomu þessara 10 fyrirtækja til hins verra og minnkar hagnað greinarinnar úr 1.170 milljónum í 595 milljónir króna.
Ástæður verri afkomu í einstökum greinum eru mismunandi. Lakari afkoma fjármálafyrirtækja stafar einkum af gengislækkunum á markaðsverðbréfum vegna hærri ávöxtunarkröfu skuldabréfa. Lakari afkomu sjávarútvegsfyrirtækja má rekja til áhrifa gengisbreytinga á erlend lán fyrirtækjanna, hás olíuverðs og birgðasöfnunar. Lægra gengi íslensku krónunnar á að öllu jöfnu að skila hærri tekjum á síðari hluta ársins.
Tafla 8. Rekstraryfirlit 55 fyrirtækja á Verðbréfaþingi Íslands á fyrri hluta áranna 1999 og 2000
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í lakari afkomu samgöngufyrirtækja munar mest um mun verri afkomu Flugleiða hf. á árinu 2000 en á árinu 1999.
Alls eru skráð 6 fyrirtæki á Verðbréfaþingi sem skilgreina má sem hátæknifyrirtæki. Athygli vekur að afkoma þessara fyrirtækja samanlagt batnar umtalsvert milli ára gagnstætt því sem gerist í flestum öðrum greinum eins og fram hefur komið hér á undan. Afkoma 5 fyrirtækja batnar verulega á milli ára en afkoma eins fyrirtækis er lakari. Áhrifa þessara fyrirtækja á líklega eftir að gæta í mun ríkara mæli í atvinnulífi á komandi árum. Starfsemi þeirra mun einnig hafa áhrif á afkomu annarra fyrirtækja og leiða til aukinnar framleiðni í hinum hefðbundnu greinum.
Aðrir mælikvarðar á afkomu atvinnurekstrar eru framlag rekstrar til greiðslu lána, fjárfestingar og til hagnaðar; veltufé frá rekstri og handbært fé frá rekstri. Samkvæmt yfirlitinu eru þessar stærðir mun jafnari á milli ára en hagnaðurinn í þeim greinum sem yfirlitið nær til. Ástæður þess eru einkum áhrif gengisbreytinga á fyrra árshelmingi ársins 2000. Meðalgengi íslensku krónunnar hækkaði á fyrstu mánuðum ársins en lækkaði um 3,7% í maí og júní. Meðalgengi krónunnar var um 1,6% lægra á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. Þessar gengissveiflur leiða til hærri fjármagnskostnaðar og rýra þannig afkomu fyrirtækja en hafa ekki áhrif á tekjur af framleiðslu.
5.3 Laun og hagnaður
Hér að framan hefur hag atvinnurekstrarins verið lýst með hefðbundnum hætti, þ.e.a.s. líkt og fyrirtækin setja fram niðurstöður ársreikninga sinna og áætlanir um afkomuna fram í tímann. Afkomuna er einnig unnt að skoða í öðru ljósi og þá með því að líta á þann virðisauka sem verður til við atvinnustarfsemina og hvernig hann skiptist á milli framleiðsluþáttanna vinnuafls og fjármagns. Þetta verður best gert með því að líta á niðurstöður þjóðhagsreikninga.
Þegar landsframleiðslan hefur verið lækkuð um skatta á framleiðslu en framleiðslustyrkjum bætt við fæst hugtak sem nefnt er vergar þáttatekjur. Þessum tekjum er síðan skipt milli launþega og þess sem fjármagnið og einyrkjar bera úr býtum. Í hlut launþega koma laun og launatengd gjöld en það sem fjármagnið ber úr býtum er hagnaður atvinnurekstrarins og þá er átt við hagnað áður en afskriftir, vextir eða arður hafa verið dregin frá. Þetta hagnaðarhugtak er nefnt vergur rekstrarafgangur. Í þessari framsetningu eru beinir skattar hvorki dregnir frá launum né hagnaði.
Mynd 14. Vergur rekstrarafgangur
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 9. Laun og hagnaður
Milljarðar króna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Landsframleiðslan nam 625 milljörðum króna árið 1999. Að frádregnum sköttum á framleiðslu og leiðréttingarliðum en að viðbættum framleiðslustyrkjum var þessi fjárhæð, þ.e. vergar þáttatekjur 506 milljarðar króna. Árið 1999 voru laun áætluð 330 milljarðar króna en hlutur fjármagnsins var 175 milljarðar, þar af var talið að 79 milljarðar króna færu í slit og úreldingu fjármuna. Skiptingin undanfarin ár og lausleg spá um skiptinguna í ár er eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu. Þar kemur fram að á árunum 1998 og 1999 hækkuðu launin talsvert umfram hækkun rekstrarafgangs. Þetta kemur fram í hækkandi launahlutfalli og lækkandi hagnaðarhlutfalli. Í ár er talið að þessi þróun stöðvist og laun og hagnaður hækki svipað. Hér er byggt á forsendum þjóðhagsspár um launaþróun, hagvöxt og verðlag.
5.4 Fjárfesting atvinnuveganna
Fjárfesting atvinnuveganna tók mikinn kipp á árunum 1996-1998 þegar framkvæmdir við stóriðjuver og virkjarnir stóðu sem hæst. Á þessu tímabili fór fjárfesting atvinnuveganna sem hlutfall af landsframleiðslu úr 9% í 17½%. Á árinu 1999 dróst fjárfesting atvinnuveganna saman um 2½%, en á þessu ári er gert ráð fyrir að hún aukist að nýju, eða um 13%.
Mynd 15. Fjárfesting atvinnuveganna
Vísitala, 1990 = 100.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mestu munar um aukna fjárfestingu í fiskiskipum auk þess sem nýtt hafrannsóknaskip kom til landsins fyrr á þessu ári. Þá má nefna stækkun álvers Norðuráls úr 60 þúsund tonna framleiðslugetu í 90 þúsund tonn. Einnig er gert ráð fyrir vexti í byggingarstarfsemi almennt. Mikill vöxtur er í fjárfestingu í tæknibúnaði, bæði fjarskiptatækni og tölvubúnaði almennt, en á móti vegur samdráttur í fjárfestingu veitufyrirtækja í kjölfar mikillar uppbyggingar á undanförnum árum.
Á árinu 2001 er búist við að aftur dragi úr vexti fjárfestingar atvinnuveganna, eða um 3¾%. Þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr fjárfestingu er gert ráð fyrir að hún nemi 15½% af landsframleiðslu á árinu 2001, samanborið við 9% á árinu 1995. Gert er ráð fyrir minni fjárfestingu í fiskiskipum en hún er óvenjumikil á þessu ári. Framkvæmdum við stækkun álvers Norðuráls lýkur á árinu en á móti er áfram gert ráð fyrir aukinni fjárfestingu í tölvu- og skrifstofubúnaði.
5.5 Afli og útflutningur
Á árinu 2000 er heildaraflinn áætlaður um 1.954 þúsund tonn samanborið við 1.733 þúsund tonn árið 1999. Aukningin liggur aðallega í meiri loðnuafla sem gert er ráð fyrir að aukist um tæplega 250 þúsund tonn, fari úr 704 þúsund tonnum í 950 þúsund tonn. Þá er horfur á að um 6 þúsund tonn af þorski og um 11 þúsund tonn af rækju veiðist utan Íslandsmiða. Á föstu verði er gert ráð fyrir að aflinn verði svipaður og árið 1999. Áætlað er að þorskafli dragist saman um 0,2% og annar botnfiskafli um 5,3%.
Gert er ráð fyrir að aukning í öðrum afla verði 6,8% á föstu verði. Þar af eykst loðnuafli um rúmlega 32% og síldarafli um 0,7% á meðan rækjuafli minnkar um 23%. Það sem af er þessu ári hafa veiðst um 870 þúsund tonn af loðnu og um 163 þúsund tonn af Íslandssíld sem er um 40 þúsund tonnum minna en á síðasta ári. Afli af fjarmiðum varð nokkru meiri árið 1999 en árið áður. Útflutningsverðmæti þessa afla nam tæplega 9 milljörðum króna sem er 1,5 milljarði meira en árið 1998.
Það sem af er þessu ári hafa íslensk skip veitt um 175 þúsund tonn af kolmunna, 30 þúsund tonna af úthafskarfa og um 163 þúsund tonn af 195 þúsund tonna kvóta af Íslandssíld. Samanlagt útflutningsverðmæti afla af fjarmiðum á árinu 2000 er áætlað um 9,3 milljarðar króna. Miðað við fyrstu átta mánuði ársins lítur út fyrir að hráefniskaup innlendrar fiskvinnslu af erlendum fiskiskipum muni verða meiri en í fyrra. Erlend fiskiskip hafa þegar landað um 8,5 þúsund tonnum af botnfiski, 85 þúsund tonnum af loðnu, um 23 þúsund tonnum af kolmunna og um 15 þúsund tonnum af rækju. Samanlagt er þetta um fjórðungi meira af erlendu hráefni en á sama tíma á síðasta ári.
Fyrstu sjö mánuðina í ár var verðmæti útfluttra sjávarafurða 55,7 milljarðar króna og hafði dregist saman um 5,9% frá sama tíma árið 1999. Verðlag sjávarafurða lækkaði minna eða sem nemur 2,5% og því telst magn útfluttra sjávarafurða hafa minnkað um 3,5%. Útflutningur landfrystra afurða minnkaði um 5,6% og útflutningur sjófrystra afurða minnkaði um 13,1%. Útflutningur afurða botnfisksöltunar jókst um 4,8% en útflutningur loðnuafurða dróst saman um 1% og verð þeirra lækkaði um 5%.
Engar upplýsingar eru til um útflutningsbirgðir í landinu, en vísbendingar í hálfsársuppgjöri nokkurra fyrirtækja benda til þess að birgðir hafi aukist verulega á fyrri hluta ársins. Það gæti skýrt samdrátt í útflutningi þótt afli sé ekki minni á þessu ári en í fyrra.
Tafla 10. Afli og aflaverðmæti 2000–2001
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Að teknu tilliti til allra þessara þátta gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að útflutningsframleiðsla sjávarafurða á árinu 2000 verði svipuð og árið 1999.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur úthlutað heimildum fyrir nýhafið fiskveiðiár að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunar. Í þorskígildum talið minnkar sjávarútvegsráðuneytið nú heimildir um 10% frá síðasta fiskveiðiári. Í áætlunum sínum gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að afli kvótabundinna tegunda á Íslandsmiðum verði í samræmi við ákvarðanir sjávarútvegsráðuneytisins að teknu tilliti til ónýttra aflaheimilda sem flytjast á milli ára. Varðandi veiðar sem ekki eru háðar kvóta er byggt á reynslu undanfarandi ára. Samkvæmt þessu er útlit fyrir að þorskafli af Íslandsmiðum verði 230 þúsund tonn á fiskveiðiárinu 2000/2001, sem er um 9,5% samdráttur frá síðasta fiskveiðiári. Reiknað er með að annar botnfiskafli aukist um 1,6%. Þá er gert ráð fyrir að annar afli dragist saman um 11%, þar af er reiknað með að afli uppsjávarfiska, loðnu og síldar, dragist saman um 15% og rækjuafli um 5½%.
Að öllu samanlögðu gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að framleiðsla sjávarafurða á milli áranna 2000 og 2001 dragist saman um 7%.
6. Vinnumarkaður og byggðaþróun
Spenna á íslenskum vinnumarkaði hefur verið afar mikil á undanförnum missirum. Þetta kemur víða fram. Hin augljósu teikn eru veruleg minnkun atvinnuleysis og fjöldi lausra starfa. Framboð vinnuafls hefur einnig vaxið. Þá hefur vinnutími lengst og sýna tölur Hagstofunnar lengingu um 50 mínútur á viku frá apríl 1999 til jafnlengdar í ár. Ennfremur hefur framboð vinnuafls vaxið vegna innflutnings erlends vinnuafls.
6.1 Atvinnuþátttaka og atvinna
Í Vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar er fólk talið til vinnuafls ef það er annaðhvort starfandi eða atvinnulaust en að leita að vinnu. Starfandi eru þeir taldir sem unnið hafa a.m.k. eina vinnustund í þeirri viku sem könnun fer fram. Þetta er í samræmi við skilgreiningu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Atvinnuþátttaka er síðan reiknuð sem hlutfall mannafla af fólksfjölda á tilteknum aldri. Erlendur samanburður sýnir að atvinnuþátttaka er meiri á Íslandi en annars staðar þekkist meðal OECD ríkja. Árið 1999 töldust 85,9% Íslendinga á aldrinum 15–64 ára til vinnuaflsins, samanborið við 70,4% meðal OECD ríkja og 69% í Evrópusambandinu. Aðeins Norðurlöndin og Sviss eru með um eða yfir 80% atvinnuþátttöku. Vegna lítils atvinnuleysis á Íslandi er munur á Íslandi og öðrum OECD þjóðum enn meiri þegar litið er til hlutfalls starfandi af mannfjölda. Árið 1999 var hlutfall starfandi á Íslandi 81,5%, en 65,9% meðal OECD ríkja og 61,5% í Evrópusambandinu, en 78–80% í Noregi og Sviss.
Samkvæmt vinnumarkaðskönnunum hefur atvinnuþátttaka farið vaxandi hér á landi á undanförnum árum, sem er athyglisvert í ljósi þess hversu há hún er. Það þýðir að framboðshlið vinnumarkaðarins er mjög sveigjanleg og bregst vel við vaxandi eftirspurn. Þetta dregur úr ofþenslu á vinnumarkaði og þannig úr þrýstingi á laun og verðlag. Ríkur þáttur í vaxandi atvinnuþátttöku hefur verið stóraukin atvinnuþátttaka námsmanna, en samkvæmt vinnumarkaðskönnun voru ríflega 60% námsmanna í vinnu árið 1999 samanborið við 45% árið 1991 og 51,6% árið 1995. Þetta er fjölgun starfandi um 4.500 manns frá 1995 og um 5.400 frá 1991.
Líklegt má telja að atvinnuþátttaka hér á landi sé nú nálægt mögulegu hámarki. Í vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar frá apríl sl. kom þó fram að atvinnuþátttakan var 83,9% af öllum 16–74 ára sem er aukning um 1,3 prósentustig frá könnun í apríl 1999. Aukninguna má að mestu leyti rekja til 16-24 ára aldurshópsins þar sem námsmenn eru fjölmennir. Fólki á aldrinum 16–74 ára sem er utan vinnuaflsins fer fækkandi og taldi árið 1999 um 31.600 manns. Fjölmennastir í þeim hópi eru eftirlaunaþegar, tæpur helmingur og námsmenn eru um þriðjungur. Heimavinnandi fólki hefur fækkað mjög eða úr tæpum 9 þúsundum árið 1991 í 5 þúsund árið 1999.
Þjóðhagsstofnun hefur um langt skeið gert athuganir á vinnuaflsþörf fyrirtækja þar sem vilji forsvarsmanna þeirra til að fjölga eða fækka starfsfólki er kannaður. Í fyrra voru gerðar þrjár kannanir og gáfu þær til kynna mjög aukinn fjölda lausra starfa á landinu í heild. Könnun stofnunarinnar í apríl sl. sýndi meiri vinnuaflsskort á höfuðborgarsvæðinu en dæmi eru um, eða sem svarar 1,6% af vinnuafli á svæðinu. Áberandi mestur er skortur á starfsfólki í byggingarstarfsemi og þjónustu við atvinnurekstur. Annað er uppi á teningunum á landsbyggðinni en atvinnurekendur þar töldu að starfsmenn væru of margir miðað við rekstrarumsvif. Fram kom vilji til að fækka starfsmönnum um nálægt 1% af starfsmannafjölda. Fyrir landið í heild voru laus störf sem svarar til 0,7% af starfsmannafjölda. Í þessari könnun er opinberri þjónustu sleppt, að sjúkrahúsum undanskildum, en mjög víða í opinberum rekstri hafa verið miklir erfiðleikar í mannaráðningum.
Mynd 16. Atvinnuleysi og laus störf
Hlutfall af mannafla.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Atvinnuhorfur eru bjartar það sem eftir er þessa árs og engin teikn eru á lofti um að spurn eftir vinnuafli eigi eftir að breytast mikið á næsta ári. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir að störfum muni fjölga um 2.700 ársverk á þessu ári eða sem nemur 2% af vinnuafli og að atvinnuþátttakan samkvæmt mati á ársverkum verði aðeins meiri en á árinu 1999, eða um 77,6%. Á árinu 2001 er áætlað að atvinnuþátttakan verði svipuð og á þessu ári, sem þýðir að störfum muni fjölga um 1.100 ársverk. Þróun ársverka á þessu og næsta ári mun ráðast annars vegar af miklum fjölda lausra starfa á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar af atvinnuþátttöku og flutningi fólks suður. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir ráð fyrir að ársverkum fjölgi um 0,8% á næsta ári.
6.2 Atvinnuleysi
Skráð atvinnuleysi hefur minnkað mun hraðar undanfarin tvö ár en spár gáfu til kynna. Þetta skýrist annars vegar af meiri vinnuaflseftirspurn en ráð var fyrir gert og hins vegar er líklegt að harðari reglur um atvinnuleysisbætur hafi haft sitt að segja. Atvinnuleysi minnkaði um nálægt 1 prósentustig hvort áranna 1998 og 1999, er það var komið í 1,9% af vinnuafli. Þessi þróun hefur haldið áfram í ár og var árstíðaleiðrétt atvinnuleysi í ágúst komið niður í 1,3% af mannafla miðað við 1,7% í desember síðastliðnum. Atvinnulausir á fyrstu átta mánuðum ársins voru 800 færri en á sama tímabili í fyrra. Atvinnuleysi mældist að meðaltali 1,5% af vinnuafli en á sama tíma í fyrra var það 2,1%.
Mynd 17. Atvinnuleysi 1996–2000
Hlutfall af mannafla.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Vinnumálastofnun og Þjóðhagsstofnun.
Atvinnuleysi er hvergi jafn lágt og hér á landi meðal OECD ríkja. Árið 1999 var atvinnuleysi að meðaltali 6,8% í þessum ríkjum og 9,2% meðal aðildarríkja Evrópusambandsins. Þriðjungur OECD ríkja eru með atvinnuleysi undir 5%. Holland, Lúxemborg og Noregur eru einu aðildarríkin auk Íslands sem eru með atvinnuleysi undir 3,5%.
Sýnt er að atvinnuleysi verði um 1½% af mannafla á þessu ári og Þjóðhagsstofnun spáir að á næsta ári muni atvinnuleysi aukist lítillega eða í 1,8%. Það er vafasamt að svo lágt atvinnuleysi sem nú er, fái staðist til lengdar án þess að tefla stöðugleika verðlags í tvísýnu.
6.3 Byggðaþróun
Undanfarin ár hefur þróun byggðarinnar einkennst af því að mikill fjöldi fólks hefur flutt til höfuðborgarsvæðisins umfram þá sem þaðan hafa flutt á landsbyggðina. Jafnframt hefur fleira fólk flutt til landsins en frá því. Í fyrstu var aðallega um erlenda ríkisborgara að ræða en á árinu 1999 urðu íslenskir ríkisborgarar sem til landsins fluttu fleiri en þeir sem fluttust á brott í fyrsta skipti síðan 1992. Allir landshlutar hafa bætt við sig íbúum vegna aðflutnings frá útlöndum.
Búferlaflutningar milli landa
Á fyrri hluta ársins 2000 hefur brottfluttum til útlanda fjölgað um 5% frá sama tímabili í fyrra. Aðfluttum frá útlöndum hefur fækkað um 4% milli sömu viðmiðunartímabila. Á höfuðborgarsvæðinu eru 7% fleiri brottfluttir og 7% færri aðfluttir en í fyrra. Munurinn á landsbyggðinni er mun minni milli ára. Breytingin frá fyrra ári hefur gerst á öðrum ársfjórðungi. Hún hefur í för með sér að nú er reiknað með því að brottfluttir íslenskir ríkisborgarar verði á ný fleiri en aðfluttir á árinu 2000. Þá er nú reiknað með að brottflutningur erlendra ríkisborgara verði óbreyttur frá fyrra ári. Aðflutningur erlendra ríkisborgara er nú áætlaður minni en á árinu 1999 en fyrstu vísbendingar voru um að hann mundi aukast á árinu. Að samanlögðu er þó enn reiknað með því að aðfluttir til landsins verði fleiri en brottfluttir eða sem nemur um 700 manns. Allir landshlutar nema Vesturland bæta við sig fólki með búferlaflutningum milli landa.
Mynd 18. Búferlaflutningar milli landa
Heimild: Hagstofa Íslands.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Byggðaþróun innan lands
Hlutfallsleg fjölgun íbúa höfuðborgarsvæðisins óx ár frá ári frá 1996 en árið 1999 dró örlítið úr fjölguninni. Engu að síður fjölgaði íbúum svæðisins um meira en 3.500 manns það ár, annað árið í röð. Rúmlega þriðjung (38%) fjölgunarinnar má rekja til búferlaflutninga innan lands, 40% til fjölda fæddra umfram látna en um fimmtung vaxtarins til aðflutnings frá útlöndum. Árið 1999 var annað árið í röð þar sem aðfluttir frá útlöndum voru fleiri en brottfluttir á höfuðborgarsvæðinu. Þeir voru 762 árið 1999 en 423 árið áður. Árin 1994–1996 voru brottfluttir til útlanda af höfuðborgarsvæðinu samtals 1.937 fleiri en aðfluttir.
Mynd 19. Búferlaflutningar milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Undanfarin ár hefur höfuðborgarsvæðið tekið á móti vel á annað þúsund manns á ári vegna búferlaflutnings fólks innan lands umfram þá sem flutt hafa á brott. Nú bendir þróun fyrri hluta ársins 2000 til þess að flutningar á landsbyggðina hafi aukist en dregið hafi úr flutningum til höfuðborgarsvæðisins. Til þess svæðis fluttu um 2% færri en á sama tíma í fyrra og frá svæðinu fluttu 12,5% fleiri. Niðurstaðan gæti orðið sú að búferlaflutningar innan lands færðu höfuðborgarsvæðinu íbúaaukningu sem næmi 900–1.000 manns á árinu öllu. Það er minni fjöldi en sést hefur frá 1993. Þessi þróun er á skjön við hina miklu eftirspurn eftir vinnuafli sem er á höfuðborgarsvæðinu. Hún kann að stafa af því að raunhækkun íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hafi gert íbúum landsbyggðarinnar erfiðara fyrir en áður að flytja sig um set.
Að því er varðar einstaka landshluta er fækkun vegna innanlandsflutninga mest á Vestfjörðum og Austurlandi og í þessum landshlutum fer þróunin versnandi. Svipaða sögu er einnig að segja um Norðurland eystra enda þótt árið 2000 virðist ætla að verða skárra en 1999. Fólki hefur fjölgað á Suðurnesjum en á Vestur- og Suðurlandi er jafnvægi í flutningum innan lands.
Ef litið er nánar á íbúaþróunina hafa orðið mikil umskipti á síðustu 3 árum í nágrannabyggðum höfuðborgarsvæðisins. Á Akranessvæðinu fjölgaði íbúum um 2,8% árið 1999 en þar fækkaði íbúum árið 1996. Í Árnessýslu er sömu sögu að segja en íbúum þar fjölgaði um 2,6% árið 1999. Íbúafjölgun á Suðurnesjum varð heldur minni árið 1999 (1,4%) en umskiptin eru sams konar. Nærsvæði höfuðborgarsvæðisins hafa því svipuð einkenni og höfuðborgarsvæðið að er íbúaþróun varðar en þau mynda landfræðilega nokkurs konar krans í kring um höfuðborgarsvæðið. Engin merki um slík umskipti er að sjá á Eyjafjarðarsvæðinu sem er þó helst talið hafa burði til mótvægis við Suðvesturhornið. Ef litið er til landsbyggðarinnar utan nærsvæða höfuðborgarinnar hefur íbúum fækkað um 1% á ári frá 1994 og samtals um nær 6.000 manns.
Á næsta ári má búast við því að áfram fjölgi á höfuðborgarsvæðinu vegna aðflutnings fólks af landsbyggðinni enda þótt örðugt sé að segja til um hversu miklir flutningar verða. Ýmis teikn eru um að úr flutningum dragi. Sömuleiðis er reiknað með því að fólki, einkum erlendum ríkisborgurum, fjölgi vegna aðflutnings frá útlöndum.
7. Verðlag
Verðlagsþróun undanfarin missiri og mikill viðskiptahalli hafa verið til vitnis um að hinn hraði vöxtur eftirspurnar undanfarin ár hefur verið meiri en svo að vöxtur framleiðslugetu hagkerfisins hafi fylgt honum eftir. Vísbendingar eru þó um að verðbólguþrýstingur kunni að vera í rénun. Samkvæmt verðathugunum í september hefur neysluverð hækkað um 4% undanfarna tólf mánuði. Verðbólgan náði hámarki í aprílmánuði, en þá mældist tólf mánaða breyting neysluverðsvísitölunnar 6% og hafði ekki verið meiri síðan í apríl árið 1992.
Mynd 20. Breytingar á vísitölu neysluverðs 1998–2000
og verðbólguálag á ríkisbréf
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Hagstofa Íslands og Seðlabanki Íslands.
Hækkun á vísitölu neysluverðs á undangengnum tólf mánuðum má rekja til verðhækkana á innlendum liðum vísitölunnar ef hækkun á bensínverði er undanskilin. Húsnæðisliður vísitölunnar hækkaði um 11½% frá september 1999 til jafnlengdar í ár. Einnig hefur verð á þjónustu hækkað áberandi mikið en hún er jafnan vinnuaflsfrek og því næm fyrir launahækkunum. Að meðaltali hafa innlendir liðir vísitölu neysluverðs hækkað um tæp 6% á þessu tímabili sem hefur haft áhrif til 3,8% hækkunar vísitölunnar. Bensínverð hefur hækkað um rúm 8% en erlendir liðir vísitölunnar án bensíns hafa hins vegar lækkað í verði um tæpt 1%.
Tafla 11. Verðbreyting í einstökum flokkum vísitölu neysluverðs og áhrif til hækkunarseptember 1999 til september 2000, %
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Þegar litið er til ýmissa kennileita í efnahagslífinu til að fá vísbendingar um líklega verðbólguþróun á næstu mánuðum er ekki einsýnt hvert stefnir. Það sem einkum gefur tilefni til svartsýni er áframhaldandi mikil eftirspurn eftir vinnuafli. Samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar verður meðalatvinnuleysi á árinu 2000 um 1½%. Ólíklegt er að svo lágt atvinnuleysi samræmist stöðugu verðlagi til lengdar þrátt fyrir mikinn sveigjanleika vinnuframboðs. Vöxtur peningamagns bendir í sömu átt en peningamagn í víðum skilningi (M3) jókst um 13% frá því í júlí 1999 til jafnlengdar í ár.
Mynd 21. Atvinnuleysi og verðbólga 1980–2000
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Hagstofa Íslands og Þjóðhagsstofnun.
Að öllu samanlögðu er það mat Þjóðhagsstofnunar að fyrrgreindar vísbendingar gefi fyrirheit um heldur hjaðnandi verðbólgu. Þjóðhagsstofnun spáir að verðlag hækki um 3,8% frá upphafi til loka árs 2000 og að hækkunin nemi 5,0% á milli áranna 1999 og 2000. Hækkunin sem spáð er á árinu 2000 er nokkuð minni en gert var ráð fyrir í síðustu spá Þjóðhagsstofnunar í júní síðastliðnum. Endurskoðunina má að mestu leyti rekja til hagstæðari verðlagsþróunar allra síðustu mánuði. Gert er ráð fyrir að úr verðbólgu dragi á næsta ári. Reiknað er með að hækkun verðlags frá upphafi til loka árs 2001 verði rúmlega 3% og 4% á milli áranna 2000 og 2001. Forsendur þessarar spár eru 0,1% mánaðarlegt launaskrið umfram samningsbundnar launahækkanir og stöðugt gengi frá því sem nú er. Eins og jafnan með verðbólguspár er nokkur óvissa í þessari spá sem m.a. má rekja til mögulegra frávika frá fyrrgreindum forsendum. Einnig koma ytri aðstæður, svo sem þróun bensínverðs á heimsmarkaði og verðbólga í viðskiptalöndunum, til með að hafa áhrif. Aðaláhrifavaldurinn verður þó án efa þróun innlendrar eftirspurnar.
Mynd 22. Hækkun neysluverðsvísitölu og
frávik framleiðslu frá jafnvægi 1991–2001
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Verð íbúða í fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 25% á undanförnum tuttugu mánuðum. Á tímabilinu frá 1984–1998 var íbúðaverð í fjölbýlishúsum að meðaltali um 80.000 kr. á fermetra á verðlagi ársins 1999, en er nú um 100.600 kr. Fermetraverð var mjög stöðugt á árunum 1990–1998 en óstöðugleikinn er meiri 1984–1989 án þess þó að meðaltalið breytist. Í ársbyrjun 1999 hóf verðið að hækka og er fermetraverð nú hærra en nokkru sinni fyrr. Byggingakostnaður hefur ekki hækkað umfram neysluverð á þessum tíma. Skýringa á þessari hækkun er einkum að leita til mikillar spurnar eftir íbúðum en fjöldi kaupsamninga var í hámarki árið 1999. Nýjum fullbúnum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki fjölgað á tímabilinu þrátt fyrir aðflutning fólks.
Mynd 23. Raunverð íbúðarhúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu, verðlag 1999
Fermetraverð þús. krónur.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Fasteignamat ríkisins.
8. Heimilin
8.1 Kjaramál og launaþróun
Í vor var gengið frá kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, enn er þó ósamið við sjómenn og nokkra smærri hópa. Kjarasamningar opinberra starfsmanna renna flestir út í lok október.
Kjarasamningarnir voru gerðir í vor til 3½ árs og leysa af hólmi samninga sem giltu í 3 ár. Á níunda áratugnum voru almennir kjarasamningar hins vegar að hámarki til eins árs og samningar voru uppsegjanlegir eða til endurmats skyldi koma ef ákveðnar forsendur brystu. Jafnframt því að samningstíminn hefur lengst hafa uppsagnarákvæði mildast mjög og þeim fækkað. Engum blöðum er um það að fletta að stuttur samningstími jók mjög á óvissu í efnahagslífinu. Traustari grundvöllur efnahagslífsins er vafalítið helsta ástæða þess að samningstíminn hefur lengst, en um leið treystir lengri samningstími rekstrargrundvöll heimila og fyrirtækja.
Markmið kjarasamninganna í vor voru að draga úr verðbólgu og bæta kjör hinna lægstlaunuðu. Lækkun verðbólgu er forsenda samninganna og eru launaliðir uppsegjanlegir í febrúar ár hvert verði misbrestur á. Þá kemur og til endurmats ef aðrir hópar fá umtalsvert meiri launahækkun en hinir almennu samningar gera ráð fyrir. Mat samningsaðila var að laun muni hækka um 18,6% á samningstímanum, um 5,7% í ár en um 4,1% í upphafi næsta árs. Í lok október verða kjarasamningar flestra hópa opinberra starfsmanna lausir og eins og ætíð ríkir óvissa um niðurstöðu þeirra.
Mikil spenna hefur verið á íslenskum vinnumarkaði um langt skeið. Viðbúið er að við slíkar aðstæður verði launahækkanir umfram umsamda taxta. Launavísitala Hagstofu Íslands mælir breytingar dagvinnulauna. Frá árslokum til júlí hefur vísitalan hækkað um 6,7% og kaupmáttur vaxið um 3,5%. Á grundvelli kjarasamninga og áætluðu launaskriði er því spáð að launavísitalan hækki um 6½–7% milli ára 1999 til 2000 og um 6½% frá 2000 til 2001. Það þýðir að kaupmáttur launa muni batna um 1½–2% á þessu ári og um 2–2½% á því næsta.
Mynd 24. Kaupmáttur launa
Vísitala, 1990 = 100.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Hagstofa Íslands og Þjóðhagsstofnun.
Staðgreiðsluskyldar tekjur hafa aukist verulega umfram almennar tekjubreytingar og kemur þar til fjölgun ársverka og lengri vinnutími. Þannig voru staðgreiðsluskyldar tekjur ríflega 10% hærri á fyrri helmingi ársins 2000 en á sama tímabili í fyrra.
Almennt tekjuskattshlutfall hefur verið lækkað verulega á undanförnum árum. Hæst komst tekjuskattshlutfall í staðgreiðslu árin 1995 og 1996 upp í um 41,9% en er nú 38,37%, sem er lækkun um 3,5 prósentustig. Þegar haft er í huga að lífeyrisiðgjald, allt að 6% af tekjum, er nú frádráttarbært frá skatti er lækkun skatthlutfalls enn meira. Skatthlutfall launþega sem greiðir lögbundið lífeyrisiðgjald (4%) og viðbótariðgjald (2%) er þannig í raun aðeins 36%. Á móti þessum breytingum hefur vegið að persónuafsláttur hefur ekki haldið í við almennar tekjubreytingar.
Nokkrar breytingar á lögum um tekjuskatt launþega komu til framkvæmda í ár. Þær helstu eru að færsla ónýtts persónuafsláttar milli hjóna hækkar úr 80% í 85%, og í 90% á næsta ári. Áætlað er að skattar lækki um 100 milljónir kr. í ár vegna þessarar breytingar. Frá 1. júní er heimild að draga viðbótarlífeyrisiðgjald allt að 4% frá tekjum til skatts í stað 2% áður.
Þrátt fyrir þessar breytingar hefur mikil kaupmáttaraukning leitt til vaxandi skattbyrði tekju- og eignarskatta. En stighækkun tekjuskatts er einmitt mikilvægt tæki til að jafna hagsveiflur. Samkvæmt ríkisreikningi jukust tekjur ríkissjóðs vegna tekjuskatta einstaklinga um tæp 20% frá 1998 til 1999 og skilaði ríkissjóði 38,6 milljarða króna tekjum. Þessar auknu skatttekjur má að talsverðu leyti rekja til hátekjuskattsins, en tekjur ríkissjóðs af honum jukust um 84%. Í ár er gert ráð fyrir að skatttekjur hækki nokkuð umfram hækkun tekna.
8.2 Ráðstöfunartekjur
Að öllu samanlögðu er hér gert ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann aukist um 1½% í ár og á því næsta. Þetta er til muna minni vöxtur en verið hefur undanfarin ár og ívið minni en meðal OECD ríkjanna er þar er reiknað með að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann vaxi um 2% á þessu ári og 2,4% á því næsta. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur vaxið samfleytt frá árinu 1994. Í þessum spám felst að kaupmátturinn á næsta ári verði tæpum 29% meiri en árið 1993.
Tafla 12. Áætlaðar launa- og verðlagsbreytingar í viðskiptalöndunum 2000–2001, %
Heimild: OECD Economic Outlook, júní 2000.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
8.3 Skuldir og sparnaður
Í lok árs 1999 námu skuldir heimilanna 510 milljörðum króna. Um mitt ár 2000 voru skuldir heimilanna samkvæmt uppgjöri Seðlabankans 560 milljarðar króna og aukningin frá áramótum er 50 milljarðar eða um 10%. Hlutfallslega er vöxturinn mestur á þessu tímabili í skuldum við innlánsstofnanir um 23 milljarðar króna, eða tæp 18%. Hægt hefur á skuldaaukningu við Íbúðalánasjóð á fyrri hluta þessa árs miðað við undanfarin ár og aukningin frá áramótum er um 6%. Ef skuldir hækka í sama takti á síðari helmingi ársins og þeim fyrri, munu skuldir í árslok verða yfir 600 milljarðar króna og vöxturinn yfir árið 15–20%. Gangi það eftir blasir við að hlutfall milli skulda og ráðstöfunartekna muni aukast verulega. Á móti þessum skuldum standa umtalsverðar eignir. Áætlanir Seðlabanka Íslands benda til að peningaeignir heimilanna hafi verið 334 milljarðar króna í árslok 1999 og nær 850 milljörðum ef lífeyrissjóðum er bætt við.
8.4 Einkaneysla
Ýmislegt bendir til þess að vöxtur einkaneyslu árið 2000 verði hægari en undanfarin ár. Í fyrsta lagi er talið að kaupmáttaraukning á þessu ári verði minni en undanfarin ár og af þeim sökum er ekki svigrúm til verulega aukinnar neyslu. Í öðru lagi er líklegt að lækkun hlutabréfaverðs dragi úr einkaneyslu þar sem eignastaða heimilanna rýrnar.
Í þriðja lagi má nefna að dregið hefur úr veltuaukningu hjá fyrirtækjum innan lands og innheimtur virðisaukaskattur hefur að sama skapi ekki aukist jafn mikið milli ára fyrstu sjö mánuði ársins og í fyrra. Tölur um veltu fyrstu sex mánuði ársins benda til 4% magnaukningar í atvinnugreinum sem tengjast einkaneyslu svo sem verslun, þjónustu og samgöngum. Innheimtur virðisaukaskattur er 9% meiri fyrstu sjö mánuði ársins, sem bendir til 4–5% veltuaukningar á föstu verðlagi. Í fjórða lagi jókst innflutningur á neysluvörum öðrum en bifreiðum um 6½% mánuðina janúar-júlí 2000 miðað við sama tíma í fyrra. Innflutningur á mat- og drykkjarvörum til heimilisnota jókst um rúmlega 2%, innflutningur varanlegra neysluvara, t.d. heimilistækja, jókst um 13% og innflutningur á hálfvaranlegum neysluvörum, t.d fatnaði, jókst um 15%. Hins vegar dróst innflutningur á óvaranlegum neysluvörum, svo sem lyfjum og tóbaki, saman um 1½% fyrstu sjö mánuði ársins 2000. Sömuleiðis dróst innflutningur einkabifreiða á föstu verðlagi saman um 12% fyrstu sjö mánuði ársins 2000. Enn meiri samdráttur kemur fram í fjölda innfluttra bifreiða en meðalverð þeirra fór hækkandi á sama tíma.
Mynd 25. Þróun helstu liða í einkaneyslu
1980–2000
Vísitölur, 1990 = 100.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Ferðalög landsmanna hafa haldið áfram að aukast á árinu en meðaleyðsla í hverri utanferð lækkar með fjölgun ferða. Samkvæmt greiðslujafnaðartölum fyrri árshelming 2000 aukast útgjöld Íslendinga í útlöndum um 14% frá sama tíma 1999. Miðað við þær tölur og spár fyrir seinni árshelming 2000 stefnir í að útgjöldin verði í ár rúmlega 13% hærri en í fyrra. Aukning á kreditkortanotkun heimila fyrstu sjö mánuði ársins er töluverð sem gefur til kynna aukna neyslu. Heildarveltan á þessum tíma jókst um 6% á föstu verði, þar af 7% innan lands. Færslufjöldinn jókst heldur meira þannig að meðalúttekt minnkar nokkuð. Debetkortanotkun jókst enn meir eða um rúmlega 9%. Debetkortum hefur fjölgaði töluvert það sem af er árinu og voru í lok júlí orðin 285 þúsund og fjölgaði um 9,1% frá sama tíma í fyrra en um 5,4% frá áramótum. Á sama tíma fjölgaði kreditkortum um 6,1% og voru þau í lok júlí orðin 189 þúsund sem er 3% fjölgun frá áramótum.
Að öllu samanlögðu er nú áætlað að einkaneyslan muni aukast um 4% milli áranna 1999 og 2000. Tafla 13 sýnir hlutfallslega skiptingu einkaneyslunnar á síðasta ári samanborið við árið 1990 ásamt magnbreytingu einstakra liða árin 1995–2000.
Undanfarin ár hafa kaup á varanlegum neysluvörum borið uppi aukningu einkaneyslunnar. Á þessu ári er gert ráð fyrir að umskipti verði og kaup á þessum vörum eru aðeins talin aukast um 2,7% og vegur þar samdráttur í bílakaupum hvað þyngst. Töluverð aukning er hins vegar talin verða í útgjöldum vegna kaupa á fatnaði, húsgögnum, heimilistækjum og sömuleiðis í ferðaútgjöldum og vegna menntunar og afþreyingar. Ferðaútgjöld Íslendinga erlendis eru áætluð aukast um rúmlega 13% á árinu 2000. Á undanförnum árum hefur vægi þessara þátta sömuleiðis farið vaxandi á sama tíma og vægi matvæla, drykkjarvara, og húsnæðiskostnaðar hefur farið hlutfallslega lækkandi.
Á næsta ári er því spáð að einkaneyslan aukist töluvert minna en í ár eða um 2,6%. Árið 2001 er einnig talið að enn hægi á innflutningi á bílum og varanlegum heimilistækjum. Kaup á þessum vörum hafa aukist mjög undanfarin ár og byrjaði sú aukning árið 1994 þegar núverandi hagvaxtartímabil hófst.
Tafla 13. Einkaneysla 1990–2000
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
8.5 Fasteignamarkaður
Nýjum fullgerðum íbúðum á landinu fækkaði úr 1.468 á árinu 1998 í 1.174 á árinu 1999. Er það minnsti fjöldi fullgerðra íbúða frá 1954. Íbúðum í smíðum fækkaði einnig á milli ára. Í árslok 1998 voru 2.042 íbúðir í smíðum á öllu landinu en þær voru 1.927 í árslok 1999. Er það minnsti fjöldi íbúða í smíðum í 45 ár eins og mynd 27 ber með sér.
Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði fullgerðum íbúðum á milli ára, úr 1.143 á árinu 1998 í 1.093 árið 1999. Íbúðum í byggingu fækkaði einnig, úr 1.571 í árslok 1998 í 1.490 í árslok 1999.
Samþykkt skuldabréfaskipti hjá Íbúðalánasjóði voru samtals 10.283 á árinu 1999 en 8.292 á árinu 1998. Heildarfjárhæð útgefinna húsbréfa hækkaði úr 21,1 milljarði króna árið 1998 í 31,6 milljarða árið 1999.
Vísbendingar síðustu mánaða, eins og sjá má á mynd 26, benda til að samþykktum skuldabréfaskiptum fækki á síðari hluta þessa árs og nálgist svipaðan fjölda og heildarfjárhæð og á síðari hluta árs 1998. Í þessu felst að útgáfa húsbréfa verði umtalsvert minni en í fyrra.
Aukið framboð húsbréfa hefur leitt til hækkunar ávöxtunar á skuldabréfamarkaði. Ávöxtunarkrafa húsbréfa var að meðaltali 4,9% 1998, 4,5% 1999 en er nú um 5,6–5,9% eftir húsbréfaflokkum.
Mynd 26. Samþykkt skuldabréfaskipti Íbúðalánasjóðs
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 27. Fjöldi íbúða í byggingu í árslok og fullgerðar íbúðir á ári 1954–1999
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
9. Hið opinbera
Afkoma hins opinbera var mjög góð á síðasta ári og allt bendir til þess að hún verði enn betri í ár. Áætlaður tekjuafgangur ársins 2000 nemur um 19 milljörðum króna samkvæmt uppgjöri Þjóðhagsstofnunar. Árið 1999 var tekjuafgangur af búskap hins opinbera sem nam 12,6 milljörðum króna. Hið opinbera skilaði afgangi upp á 2,8 milljarða króna árið 1998, en þá hafði hið opinbera ekki skilað afgangi síðan um miðjan níunda áratuginn. Á árinu 2001 er gert ráð fyrir svipuðum afgangi og árið 2000 eða tæpum 18½ milljarði króna.
Mynd 28. Tekjur, gjöld og skuldir hins opinbera 1980–2001
Hlutfall af landsframleiðslu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Uppgjör Þjóðhagsstofnunar á búskap hins opinbera fylgir þjóðhagsreikningastaðli Sameinuðu þjóðanna. Veigamesti munurinn á því uppgjöri og ríkisreikningi er að hagnaður af sölu eignarhluta ríkisins í félögum er ekki færður til tekna í uppgjöri þjóðhagsreikninga heldur færður á endurmatsreikning. Þá eru afskrifaðar skattakröfur vegna gjaldþrota ekki færðar til gjalda heldur á endurmatsreikning og að hluta til lækkunar tekna. Að síðustu má nefna að einungis eru færðar til gjalda þær lífeyrisskuldbindingar sem tengjast launagreiðslum ársins.
9.1 Ríkisfjármál
Á fjárlögum þessa árs var stefnt að tekjuafgangi A-hluta ríkissjóðs upp á 16,7 milljarða króna á rekstrargrunni. Vegna meiri hagvaxtar og launahækkana en ráð var fyrir gert við afgreiðslu fjárlaga stefnir nú í að afkoman verði 9,4 milljörðum króna hagstæðari. Tekjur ríkissjóðs eru áætlaðar um 15,2 milljörðum króna hærri en í fjárlögum ársins, sem skýrist einkum af meiri tekjuskatti einstaklinga og lögaðila og einnig fjármagnstekjuskatti. Hækkunina má einnig rekja til aukinna tekna af virðisaukaskatti og vaxtatekjum. Á gjaldahlið er reiknað með að útgjöldin aukist um tæpa 6 milljarða króna umfram fjárlög meðal annars vegna aukinna launaútgjalda, rekstrar- og tekjutilfærslna og fjárfestinga.
Í uppgjöri Þjóðhagsstofnunar á fjármálum ríkissjóðs sem eins og áður sagði fylgir þjóðhagsreikingastaðli Sameinuðu þjóðanna er áætlað að tekjuafkoma ríkissjóðs verði jákvæð um 21,5 milljarða króna á árinu 2000 eða 3,2% af landsframleiðslu. Þetta er mun hagstæðari niðurstaða en árið á undan er tekjuafkoman nam 15,5 milljörðum króna. Þá er reiknað með að tekjur ríkissjóðs árið 2000 verði 31,4% af landsframleiðslu sem er um 0,3 prósentustigum lægra hlutfall en árið á undan. Ef litið er á útgjöldin þá er gert ráð fyrir að þau verði 28,3% af landsframleiðslu á árinu 2000 sem er 0,9 prósentustigi lægra hlutfall en árið 1999.
Mynd 29. Afkoma ríkissjóðs 1980–2001
Hlutfall af landsframleiðslu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Með hliðsjón af frumvarpi til fjárlaga 2001 er gert ráð fyrir að tekjuafkoma ríkissjóðs verði svipuð og í ár eða 21 milljarður króna á árinu samkvæmt uppgjörsstaðli Þjóðhagsstofnunar. Þannig er gert ráð fyrir að heildartekjur og gjöld ríkissjóðs verði svipað hlutfall af landsframleiðslu árið 2001 og í ár.
9.2 Fjármál sveitarfélaga
Í áætlunum um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að tekjuhalli þeirra verði nokkru minni í ár en í fyrra eða 2,4 milljarðar króna sem er um 3,6% af tekjum þeirra. Til samanburðar er áætlaður tekjuhalli ársins 1999 3 milljarðar króna eða 4,9% af tekjum. Talið er að heildartekjur sveitarfélaga muni nema um 66,7 milljörðum króna á þessu ári og útgjöld þeirra verði 69,1 milljarður króna í heild eða 10,2% af landsframleiðslu.
Samkvæmt lauslegum framreikningi má áætla að tekjuhalli sveitarfélaganna verði 2,8 milljarðar króna á næsta ári. Hlutfall tekna og útgjalda sveitarfélaga af landsframleiðslu yrði samkvæmt þessu svipað og í ár.
Tafla 14. Fjármál sveitarfélaga 1998–2001
9.3 Fjármál hins opinbera
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Áætlanir benda til að tekjuafkoma hins opinbera verði jákvæð um 19 milljarða króna á þessu ári eða sem nemur 2,8% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoma ársins 1999 12,6 milljarðar króna eða 2% af landsframleiðslu. Heildartekjur hins opinbera eru áætlaðar 275,8 milljarðar króna sem er um 3,2% hækkun að raungildi frá fyrra ári miðað við neysluverð. Áætluð heildarútgjöld eru 257 milljarðar króna sem er tæplega 1% raunaukning frá síðasta ári. Ef heildarútgjöldin er skoðuð í hlutfalli við landsframleiðslu þá eru þau áætluð 37,8% í ár miðað við 38,8% á árinu 1999. Hlutfall samneyslunnar mælist nú 23,2% en það er 0,3 prósentustigum hærra hlutfall en árið 1999. Gert er ráð fyrir að þetta hlutfall verði tæplega 24% á árinu 2001. Vaxtaútgjöld hafa hins vegar lækkað verulega sem hlutfall af landsframleiðslu vegna lækkunar á skuldum hins opinbera, en þau mælast í ár 2,9% af landsframleiðslu. Rekstrartilfærslur og útgjöld til fjárfestinga hafa sömuleiðis farið lækkandi mælt á þennan mælikvarða.
Lánsfjárþörf opinberra aðila nær til ríkissjóðs, lánasjóða hins opinbera og ríkisfyrirtækja. Á árinu 1999 var lánsfjárþörf þessara aðila 10,2 milljarðar króna eða 1,6% af landsframleiðslu. Lánsfjárafgangur A-hluta ríkissjóðs nam 26,9 milljörðum króna, lánsfjárþörf Íbúðalánasjóðs 31,2 milljörðum króna og annarra opinberra aðila 5,9 milljörðum króna. Á árinu 2000 er gert ráð fyrir að lánsfjárafgangur verði tæplega einn milljarður króna sem er 0,1% af landsframleiðslu. Horfur eru á að A-hluti ríkissjóðs skili 27,6 milljarða lánsfjárafgangi en að lánsfjárþörf Íbúðalánasjóðs og annarra aðila verði 26,8 milljarðar króna.
Tafla 15. Yfirlit um fjármál hins opinbera 1999–2001
Milljarðar króna
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Áætlað er að lánsfjárafgangur opinberra aðila verði um 4,4 milljarðar króna á árinu 2001 eða 0,6% af landsframleiðslu. Á móti umtalsverðum lánsfjárafgangi A-hluta ríkissjóðs upp á 34,7 milljarða króna vegur hrein lánsfjárþörf Íbúðalánasjóðs og opinberra fyrirtækja sem er áætluð 30,3 milljarðar króna. Í þessari umfjöllun um lánsfjárþörf er ekki tekið tillit til framlaga ríkissjóðs í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Á árinu 1999 var þetta framlag 7,8 milljarðar króna en er áætlað 5 milljarðar í ár.
Tafla 16. Hrein lánsfjárþörf opinberra aðila 1998–2001
Milljarðar króna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
1 Hér er lánsfjárþörf sýnd áður en kemur til framlaga í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins árin 1999 og 2000.
Heildarskuldir hins opinbera, þ.e. ríkis og sveitarfélaga, eru áætlaðar tæpar 264 milljarðar króna í lok ársins 2000 sem er 38,8% af landsframleiðslu, eða 4,8 prósentustigum lægra hlutfall af landsframleiðslu en árið á undan. Þá er reiknað með að hreinar skuldir þess verði rúmlega 150 milljarðar króna eða 22,2% af landsframleiðslu. Erlendar skuldir eru tæplega helmingur af heildarskuldum hins opinbera. Áætlað er að heildarskuldir hins opinbera verði um þriðjungur af landsframleiðslu í lok ársins 2001 og lækki um 5 prósentustig frá yfirstandandi ári. Þá er gert ráð fyrir að nettóskuldir hins opinbera verði 19,5% af landsframleiðslu í árslok 2001 samanborið við 22,2% í árslok 2000.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.