Ferill 21. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 21  —  21. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, með síðari breytingum.

Flm.: Guðjón A. Kristjánsson, Árni Steinar Jóhannsson.



1. gr.

    Við 6. gr. a laganna bætist ný málsgrein sem orðast svo:
    Ráðherra er heimilt að úthluta aflahlutdeild til skipa, allt að 500 þorskígildistonnum árlega, sem gerð eru út sem skóla- eða starfsþjálfunarskip fyrir ungt fólk. Þessa aflahlutdeild má ekki framselja til annarra skipa. Ráðherra setur nánari reglur um úthlutunina.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í rúma tvo áratugi hefur Unglingaheimili ríkisins ásamt fleirum leitast við að kenna ungu fólki sjómennsku. Það hefur fengið tækifæri til að reyna sig á sjó við handbæra-, línu- og netaveiðar og fengið faglega þjálfun í sjómennsku.
    Verkefninu hefur Karel Karelsson á bátnum Haftindi stýrt frá upphafi. Það hefur hlotið heitið Sjóliðaverkefni og er ætlað fólki á aldrinum 16–20 ára sem átt hefur erfitt uppdráttar félagslega og vill læra sjómennsku.
    Á þeim tíma sem liðinn er frá því að verkefnið hófst hefur þessi aðferð við að aðstoða unglingana í vanda þeirra reynst vel. Reksturinn hefur þó alltaf verið erfiður og stundum hefur orðið að gera hlé á verkefninu. Það sem stendur því fyrir þrifum nú er fyrst og fremst skortur á aflaheimildum. Eigi skólaskipið að koma að notum sem úrræði fyrir ungmenni í vanda verður að tryggja að það hafi heimildir til veiða svo að það geti þjónað hlutverki sínu.
    Verkefnið hefur verið rekið í samstarfi við ýmsa aðila og ber þar helst að nefna Reykjavíkurborg, Hitt húsið (ÍTR), Hafnarfjarðarbæ, Reykjanesbæ, félagsþjónustuna í Reykjavík og jafnframt Stýrimannaskólann og Vélskóla Íslands.
    Gert er ráð fyrir að allir nemendur útskrifist með réttindi til að stjórna 30 tonna bát og vélavarðarréttindi.
    Mikilvægt er að halda úti slíku úrræði fyrir ungt fólk sem vill vinna við sjávarútveg og getur á þennan hátt aflað sér verkþekkingar.
    Takist ekki að leysa vandann sem skortur á veiðiheimildum skapar gæti þetta ágæta verkefni lagst af og reynslan og þekkingin sem er til staðar glatast.
    Hafrannsóknaskipið Dröfn hefur á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar sinnt veigamiklu hlutverki sem skólaskip á undanförnum tveimur árum. Skipið hefur verið gert út frá Reykjavík á vorin en á haustin hefur verið farið umhverfis landið og hafa nemendur 9. og 10. bekkjar grunnskóla fengið nasasjón af sjómennskunni og algengum vinnubrögðum á sjó.
    Um 2000 grunnskólanemar hafa tekið þátt í þessu verkefni. Í venjulegri veiðiferð er veitt með botnvörpu, oft eru lagðar krabbagildrur og einnig eru handfærarúllur um borð. Nokkuð er breytilegt eftir veðri og sjólagi hvað tekið er fyrir hverju sinni, en að auki er nemendum sýnd fræðslumynd um sjómennsku. Að loknu tveggja ára tilraunatímabili verða skoðaðar leiðir til breyttra hátta og hefur m.a. verið rætt um að sveitarfélög taki við þessu verkefni.
    Ljóst er að verði frumvarp þetta samþykkt þarf jafnframt að setja mjög skýrar reglur um úthlutun heimildanna til að koma í veg fyrir misnotkun.