Ferill 46. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 46  —  46. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um samráð stjórnvalda við frjáls félagasamtök.

Flm.: Katrín Fjeldsted, Ólafur Örn Haraldsson, Kristján Pálsson,


Ásta Möller, Ísólfur Gylfi Pálmason, Gunnar Birgisson,


Drífa Hjartardóttir, Árni R. Árnason.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd er geri úttekt á stöðu frjálsra félagasamtaka á Íslandi og hvernig samskiptum stjórnvalda og sveitarstjórna við þau er háttað. Jafnframt skili nefndin tillögum til ríkisstjórnarinnar um hvernig samráði stjórnvalda við frjáls félagasamtök á sviði umhverfismála verði hagað með vísan til skuldbindinga Íslands samkvæmt alþjóðasamningi um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum sem undirritaður var í Árósum 23.–25. júní 1998.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var flutt á 125. löggjafarþingi og hlaut þá ekki afgreiðslu. Er hún nú endurflutt án breytinga.
    Í lýðræðisríkjum hafa frjáls félagasamtök (Non-Governmental Organisations, NGOs) gegnt sífellt mikilvægara hlutverki undanfarna áratugi. Á þetta ekki síst við á sviði umhverfismála. Þau veita stjórnvöldum og atvinnurekendum mikilvægt aðhald og sinna bæði fræðslu- og eftirlitshlutverki. Einkenni frjálsra félagasamtaka er að þau eru óháð ríkisvaldinu, hafa sjálfstæðan fjárhag, eru rekin án gróðasjónarmiða og hafa fagleg vinnubrögð að leiðarljósi. Æ fleiri viðurkenna nauðsyn þess að virkja mannauð og þekkingu frjálsra félagasamtaka.
    Stjórnvöld í ríkjum heims hafa gengið einna lengst í að viðurkenna nauðsyn þess að almenningur og frjáls félagasamtök séu höfð með í ráðum þegar umhverfismálum er skipað. Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin var í Ríó 1992 var í samningi um Dagskrá 21, 27. kafla, fjallað um nauðsyn þess að styrkja stöðu frjálsra félagasamtaka og mikilvægt hlutverk þeirra í umfjöllun um sjálfbæra þróun.
    Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig haldið svæðisbundnar ráðstefnur um umhverfismál. Á fjórða ráðherrafundi umhverfisráðherra um umhverfismál í Evrópu, sem haldinn var í Árósum í Danmörku 23.–25. júní 1998, var gengið skrefi lengra og undirritaður alþjóðasamningur um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Samningurinn felur í sér viðurkenningu á réttindum borgaranna að því er varðar umhverfismál og er, eins og fram kom í yfirlýsingu umhverfisráðherranna, mikilsvert framfaraskref bæði fyrir umhverfið og lýðræðið. Með samningnum er staðfest mikilvægi þess að einstaklingar og frjáls félagasamtök taki þátt í mótun umhverfisreglna og viðurkennt að stjórnvöldum beri að hafa eðlilegt samráð við almenning við mótun umhverfisstefnu.
    Flutningsmenn tillögunnar telja eðlilegt að skipuð verði nefnd er geri annars vegar úttekt á stöðu frjálsra félagasamtaka á Íslandi og samskiptum stjórnvalda við þau og hins vegar tillögur byggðar á Árósa-samningnum um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.
    Flutningsmenn gera hvorki tillögu um fjölda nefndarmanna né hvernig þeir verða skipaðir. Eðlilegt er að nefndin verði skipuð á breiðum grunni, þ.e. með þátttöku hins opinbera, atvinnulífsins, launþegasamtaka og frjálsra félagasamtaka.