Ferill 78. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.




126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 78 — 78. mál.



Frumvarp til laga



um breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.

Flm.: Ágúst Einarsson, Ásta R. Jóhannesdóttir,
Össur Skarphéðinsson, Guðrún Ögmundsdóttir.


1. gr.

    Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Landssamband eldri borgara tilnefnir til tveggja ára einn aðalmann í tryggingaráð og annan til vara. Öryrkjabandalag Íslands tilnefnir til tveggja ára einn aðalmann í tryggingaráð og annan til vara.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta var lagt fram á 122. og 123. þingi. Það var ekki útrætt og er nú endurflutt.
    Með samþykkt þessa frumvarps er tryggð aðild eldri borgara og öryrkja að tryggingaráði Tryggingastofnunar ríkisins. Þessir hópar eru meðal helstu lífeyris- og bótaþega Tryggingastofnunar og eðlilegt að þeir fái beina aðild að stjórn hennar.
    Nú er tryggingaráð skipað þannig að Alþingi kýs á fyrsta þingi eftir hverjar almennar alþingiskosningar fimm menn í tryggingaráð og aðra fimm til vara. Ráðherra skipar formann og varaformann tryggingaráðs úr hópi hinna kjörnu aðalmanna.

Verkefni Tryggingastofnunar og tryggingaráðs.
    Verkefni Tryggingastofnunar samkvæmt lögum eru þrenns konar, þ.e. að annast lífeyristryggingar, sem skiptast í ellilífeyri, örorkulífeyri, tekjutryggingu, örorkustyrki, barnalífeyri og bætur í fæðingarorlofi, og sjá um slysa- og sjúkratryggingar.
    Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur umsjón með allri starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins. Ráðherra skipar forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins að fengnum tillögum tryggingaráðs. Forstjóri annast stjórn stofnunarinnar samkvæmt lögum og reglugerðum.
    Tryggingaráð skal hafa eftirlit með fjárhag, rekstri og starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og gæta þess að hún starfi í samræmi við lög og reglugerðir á hverjum tíma. Endurskoðunardeild skal starfa við stofnunina undir eftirliti þess. Leita skal samþykkis tryggingaráðs á:
     a.      hinni árlegu fjárhagsáætlun stofnunarinnar,
     b.      ársreikningum stofnunarinnar,
     c.      ákvörðunum um iðgjaldaupphæðir,
     d.      öllum heimildarsamningum við heilbrigðisstéttir og heilbrigðisstofnanir,
     e.      meginreglum um notkun heimildarákvæða,
     f.      öllum lánveitingum og verðbréfakaupum og -sölum,
     g.      öðrum þeim atriðum sem lög um almannatryggingar ákveða.
    Önnur mál skulu borin undir tryggingaráð ef ráðið óskar þess eða forstjóra finnst ástæða til. Rísi ágreiningur um grundvöll, skilyrði eða upphæð bóta leggur tryggingaráð úrskurð á málið. Máli skal skjóta til úrskurðar tryggingaráðs eigi síðar en þremur mánuðum eftir að ákvörðun liggur fyrir í málinu. Tryggingaráði er þó heimilt, ef sérstaklega stendur á, að víkja frá þriggja mánaða frestinum.
    Í framangreindri lýsingu á verksviði tryggingaráðs og Tryggingastofnunar er skýrt að valdsvið tryggingaráðs er verulegt og það starfar í nánu samstarfi við forstjóra. Að mati flutningsmanna er brýnt að tryggja betur hagsmuni eldri borgara og öryrkja í Tryggingastofnun. Þessir hópar eiga flest sitt undir þessari stofnun og margir allt fjárhagslega. Því er nauðsynlegt að sjónarmið þeirra komist skýrt til skila í starfi stofnunarinnar.

Sjónarmið eldri borgara og öryrkja.
    Undanfarin ár hefur þess ekki verið gætt að hlusta af nægri athygli á skoðanir eldri borgara og öryrkja. Þessir hópar hafa reynt að sækja rétt sinn með miðlun upplýsinga til samfélagsins og þrýst á stjórnmálamenn að breyta um stefnu. Þessi barátta hefur oft borið nokkurn árangur en er þó langt frá því að vera fullnægjandi. Eldri borgarar starfa í fjölmörgum samtökum. Til að mynda eru starfandi 45 félög eldri borgara víða um landið. Stærst þeirra er Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Þessi félög starfa innan heildarsamtakanna Landssamband eldri borgara. Einnig er starfandi mjög virkur hópur eldri borgara, Aðgerðahópur aldraðra.
    Í hugum jafnaðarmanna er grundvallaratriði að samfélagið búi vel að öldruðum og öryrkjum. Margir þeirra eiga ekki í önnur hús að venda. Það er algerlega óviðunandi að eldri borgarar og öryrkjar verði að sætta sig við geðþóttaákvarðanir ríkisstjórnar hvers tíma og vera í óvissu um kjör sín. Núverandi ríkisstjórn hefur tekið minna tillit til hagsmuna þessa fólks en áður hefur þekkst. Þess vegna er mjög mikilvægt að formleg þátttaka eldri borgara og öryrkja sé tryggð í stjórn þessara mála eins og lagt er til í frumvarpinu. Þess má geta að áður hafa verið fluttar tillögur á Alþingi af þingmönnum Alþýðuflokks og Alþýðubandalags um að fjölga í tryggingaráði á svipaðan hátt og hér er lagt til.
    Ef frumvarpið verður að lögum verður tryggingaráð skipað sjö mönnum. Í frumvarpinu er lagt til að heildarsamtök aldraðra, Landssamband eldri borgara, tilnefni einn fulltrúa í tryggingaráð og annan til vara. Gert er ráð fyrir að tilnefningin gildi til tveggja ára. Jafnframt er lagt til að Öryrkjabandalag Íslands, sem er heildarsamtök öryrkja hérlendis, tilnefni einn fulltrúa í tryggingaráð og annan til vara, sömuleiðis til tveggja ára. Flutningsmenn telja að hæfilegt sé að tilnefnt sé til tveggja ára í senn þótt hinir fulltrúarnir séu kosnir af Alþingi til fjögurra ára.

Umsagnir um frumvarpið.
    Eins og fyrr er getið var frumvarpið lagt fram á 122. þingi (271. mál, þskj. 341). Það var sent ýmsum aðilum til umsagnar og flutningsmönnum þykir rétt að fella inn í þessa greinargerð tilvitnanir í umsagnir þeirra helstu.
    Landssamband eldri borgara sem eru heildarsamtök eldri borgara hérlendis segja m.a. í umsögn sinni: „Um frumvarpið á þingskjali 341, um breytingar á skipan tryggingaráðs, vill landssambandið upplýsa og árétta, að sú tillaga sem þarna er til umfjöllunar samræmist mjög vel áður kynntum samþykktum Landssambands eldri borgara um, að umboðsaðilar hinna tryggðu hefðu nokkurn umfjöllunarrétt um málefni þeirra í tryggingakerfinu. Þessi skoðun og krafa landssambandsins hefur áður verið kynnt bæði forsætis- og heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Landssambandið hefur auk þess bent þessum ráðherrum og fleirum í stjórnkerfinu á að brýna nauðsyn beri til að koma hið fyrsta á fastri samráðsnefnd samtaka aldraðra og stjórnvalda. Í grannlöndum okkar hafa slíkar samráðsnefndir verið starfandi í mörg ár og starf þeirra þótt gefa góða raun, ekki bara fyrir hina öldruðu, heldur ekki síður fyrir stjórn og samskiptakerfið í heild. Landssambandið hefur einnig bent á að vegna þess hve mikil skörun er orðin á kerfi almannatrygginga og bótakerfis lífeyrissjóðanna og væntanlega vaxandi í framtíðinni, þá væri einnig æskilegt að lífeyrissjóðasamböndin, sameiginlega, tilnefndu einnig mann í tryggingaráð. Um það hefur að undanförnu verið mikil umræða, m.a. af hálfu fjármála- og tryggingaráðherra, svo og af hálfu forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins á ársfundi stofnunarinnar sl. sumar, að nánara samstarf lífeyrissjóðanna og almannatrygginga þyrfti að verða. Lífeyrissjóðirnir jafnvel að taka við einhverjum hluta verkefna almannatrygginga. En landssambandið leggur til að frumvarp þetta verði samþykkt hið fyrsta.“
    Í umsögn Aðgerðahóps aldraðra segir m.a.: „Aðgerðahópur aldraðra fagnar þessu frumvarpi sem tekur undir ósk sem lengi hefur verið baráttumál samtaka aldraðra og felur í sér tvímælalausa réttarbót fyrir þennan aldurshóp.“
    Félag aldraðra á Akureyri leggur sérstaka áherslu á að frumvarp þetta nái fram að ganga.
Félag eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni vill vekja sérstaka athygli á þingskjali 341, 271. máli, um tilnefningu Landssambands eldri borgara á einum aðalfulltrúa og öðrum vara í tryggingaráð. Það telur „til stórbóta ef sú breyting næði fram að ganga“.
    Á fundi stjórnar Félags aldraðra á Höfn, sem haldinn var 27. febrúar 1998, var tekið til afgreiðslu frumvarp til laga um almannatryggingar, 271. mál, tryggingaráð. Eftirfarandi var bókað: „Stjórnin fagnar framkomnu frumvarpi og skorar á hæstv. alþingismenn að samþykkja það.“
    Félag eldri borgara Álftanesi mælir sérstaklega með frumvarpinu og vísar til samþykktar Landssambands eldri borgara.
    Stjórn Félags aldraðra í Eyjafirði segir m.a. í umsögn sinni: „Sérstaklega er mikils virði að tillaga um að Landssamband eldri borgara og Öryrkjabandalagið fái fulltrúa í tryggingaráði. Það er í hæsta máta undarlegt að aldraðir og öryrkjar hafi ekki átt aðild að stjórn Tryggingastofnunar hingað til. Það er því von okkar að þessi tillaga verði samþykkt.“
    Félag eldri borgara á Akranesi og nágrenni segir m.a. í umsögn sinni: „Með bréfi þessu viljum við þakka heilbrigðis- og trygginganefnd fyrir að senda okkur til umsagnar frumvörp til laga um almannatryggingar. Það er mikil nýbreytni að leita álits okkar um þau mál sem varða lífsafkomu okkar.
    Við tökum undir með þeim þingmönnum sem hafa lagt fram þessar breytingar á lögum um almannatryggingar og munum fylgjast með framgangi þeirra á þingi.“
    Félag eldri borgara í Vestur-Húnavatnssýslu „fagnar frumvarpi um að eldri borgarar eigi fulltrúa í tryggingaráði. Slíkur fulltrúi ætti að geta gætt hagsmuna aldraðra og komið sjónarmiðum þeirra á framfæri í tryggingaráði.“
    Stjórn Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum mælir sérstaklega með frumvarpi um skipan tryggingaráðs.
    Félag aldraðra Dalvík og nágrenni „lýsir sérstakri ánægju með þskj. 341, 271. mál, nái það fram að ganga“.
    Stjórnarfundur Félags eldri borgara á Egilsstöðum 6. mars 1998 leggur „sérstaka áherslu á það baráttumál Landssambands aldraðra að eiga fulltrúa í tryggingaráði“.
    Félag eldri borgara á Norðfirði tekur undir þær samþykktir sem Landssamband eldri borgara hefur sent frá sér um frumvarp til laga um almannatryggingar, 271. mál.
    Félag aldraðra á Djúpavogi lýsir sig samþykkt frumvarpinu.
    Í umsögn Félags eldri borgara á Eskifirði segir m.a.: „Með því að tryggja eldri borgurum og öryrkjum sæti í tryggingaráði Tryggingastofnunar ríkisins, er stigið ákjósanlegt og kærkomið skref í þá átt að þessir hópar, með aðild sinni að ráðinu, geti fylgst með málum sem þá varðar og haft áhrif þar á, en þeir eru meðal helstu lífeyris- og bótaþega Tryggingastofnunar. Þarna er tekin stefna sem Félag eldri borgara á Eskifirði telur rétta og bindur vonir við að verði að lögum.“
    Í umsögn Öryrkjabandalags Íslands segir m.a.: „Öryrkjabandalag Íslands hefur á aðalfundum sínum ályktað eindregið í þá veru að eðlilegt og raunar sjálfsagt sé að fulltrúi þess sitji í tryggingaráði með fullum réttindum. Þessar ályktanir hafa verið sendar til allra þingflokka. Öryrkjabandalag Íslands á virka aðild að stjórnarnefnd um málefni fatlaðra á vegum félagsmálaráðuneytis og ekki síður er því réttlætanleg aðild þess að tryggingaráði.“
    Landssamtökin Þroskahjálp „þakka fyrir að fá til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar, 271. mál, tryggingaráð, og lýsa sig sammála þeirri meginhugsun sem fram kemur í frumvarpinu, þ.e. að hagsmunasamtökum bótaþega sé tryggð bein aðild að tryggingaráði. Landssamtökin Þroskahjálp, sem önnur af tveimur heildarsamtökum fatlaðra á Íslandi, geta hins vegar ekki fallist á frumvarpið óbreytt. Samtökin leggja til að síðasta setning 1. greinar orðist svo: Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp tilnefna sameiginlega til tveggja ára einn aðalmann og annan til vara.
    Landssamtökin Þroskahjálp eru samtök 27 félaga sem flest eru foreldrafélög fatlaðra barna með mismunandi fatlanir, eða fullorðinna þroskaheftra auk Átaks félags þroskaheftra. Þroskahjálp telur að nauðsyn beri til að í tryggingaráði sé einnig að finna fulltrúa sem þekkir vel til aðstæðna og gætir hagsmuna fjölskyldna fatlaðra barna. Landssamtökin Þroskahjálp álíta að ekki þurfi að vera nein vandkvæði á að tilnefna einn fulltrúa og annan til vara sameiginlega með Öryrkjabandalagi Íslands, enda hafa þessi samtök margoft áður skipt með sér verkum með hliðstæðum hætti.“
    Félag heyrnarlausra „fagnar nýju lagafrumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar þar sem lagt er til að fulltrúar eldri borgara og öryrkja fái sæti í tryggingaráði. Lífskjör öryrkja á Íslandi hafa farið versnandi á sl. árum og hafa þeir orðið fyrir mikilli tekjuskerðingu. Ein af mörgum ástæðum fyrir þessari staðreynd er að öryrkjar hafa ekki haft tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum áleiðis. Þeir sem taka ákvarðanir um kjör öryrkja eru háttsettir menn innan stjórnkerfisins sem oftar en ekki eru í engum tengslum við öryrkja og þeirra lífskjör. Með því að tryggja öryrkjum sæti í tryggingaráði er þeim gert kleift að koma hagsmunamálum sínum á framfæri og hafa áhrif á lífskjör öryrkja.“
    Í umsögn Öldrunarfræðafélags Íslands segir m.a.: „Samþykkt er að styðja erindið. Eðlilegt er að stærstu hópar bótaþega eigi fulltrúa í tryggingaráði, enda er um að ræða „regnhlífarsamtök“.“
    Stjórn Alnæmissamtakanna á Íslandi lýsir ánægju sinni með frumvarpið.
    Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, „tekur undir nauðsyn þess að helstu hagsmunaaðilar eigi sæti í tryggingaráði og telur að málinu væri vel fyrir komið ef Öryrkjabandalag Íslands og Landssamband eldri borgara fengju fulltrúa í ráðinu“.
    Eins og sést á framangreindum umsögnum fær málið mjög góðar undirtektir. Flutningsmenn eru þess fullvissir að lögfesting þessa frumvarps yrði mikilvæg réttarbót fyrir eldra fólk og öryrkja.