Ferill 94. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 94 — 94. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um fjárveitingar til mennta- og þróunarstofnana landbúnaðarins á landsbyggðinni.
Frá Jóni Bjarnasyni.
1. Er niðurskurður fjárveitinga til menntastofnana landbúnaðarins á Hvanneyri, Hólum og Reykjum og til Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti og Skógræktar ríkisins á Egilsstöðum til marks um stefnubreytingu af hálfu ríkisstjórnarinnar?
2. Hvernig samræmist það áherslum ríkisstjórnarinnar í byggðamálum og markmiðum nýrra búnaðarlaga að skerða fjármagn til þessara stofnana landbúnaðarins sem allar starfa á landsbyggðinni?