Ferill 104. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 104  —  104. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um rannsókn á efnahagslegum völdum kvenna.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur og Svanfríði Jónasdóttur.



    Hefur ríkisstjórnin látið rannsaka hvar efnahagsleg völd kvenna og karla liggja í íslensku samfélagi, sbr. þingsályktun um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998, og ef svo er, hverjar eru niðurstöður rannsóknarinnar? Liggi þær ekki fyrir, á hvaða stigi er rannsóknin?