Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 121 — 121. mál.
Skýrsla
viðskiptaráðherra um siðareglur í viðskiptum á fjármagnsmarkaði.
(Lögð fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)
Inngangur.
Þann 9. maí 2000 var samþykkt á Alþingi svohljóðandi þingsályktun: ,,Alþingi ályktar að fela viðskiptaráðherra að kanna hvort stofnanir og fyrirtæki á fjármálamarkaði hafi sett sér siðareglur í samræmi við tilmæli framkvæmdastjórnar ESB frá 25. júlí 1977 um siðareglur Evrópubandalaganna um viðskipti með framseljanleg verðbréf (77/534/EBE) og almennt viðurkenndar meginreglur FIBV (Alþjóðasambands kauphalla) um viðskiptahætti í verðbréfaviðskiptum frá 1992. Ráðherra skili Alþingi skýrslu um niðurstöðu könnunarinnar í upphafi haustþings.
Niðurstöður.
Fjármálafyrirtæki telja almennt að þau uppfylli þær reglur um heiðarlega og eðlilega viðskiptahætti sem kveðið er á um í tilmælum framkvæmdastjórnar ESB frá 25. júlí 1977 og í almennt viðurkenndum meginreglum FIBV frá 1992. Þau telja að siðareglur Verðbréfaþings Íslands nr. 5 frá 1. júlí 1999 og verklagsreglur á grunni 15. og 21. gr. laga um verðbréfaviðskipti taki með fullnægjandi hætti mið af ofangreindum tilmælum ESB og meginreglum FIBV, en hafa fæst sett sér sérstakar siðareglur aðrar en þær sem af leiða af reglum VÞÍ og verðbréfaviðskiptalögum. Gerð er grein fyrir svörum fjármálafyrirtækja í viðauka 1.
Tilmæli ESB og meginreglur FIBV.
Tilmæli ESB um siðareglur Evrópubandalaganna um viðskipti með framseljanleg verðbréf eru frá árinu 1977. Reglurnar voru settar á þeim tíma þegar reglur um fjármagnsmarkaðinn voru fábrotnari en nú er. Síðan reglurnar voru settar hafa viðskipti með verðbréf aukist mikið og lagaumgjörð um verðbréfamarkaðinn sömuleiðis. Mörg þau ákvæði um heiðarlega og eðlilega viðskiptahætti sem kveðið er á um í tilmælum ESB hafa síðan verið tekin upp með einum eða öðrum hætti í regluverki ESB um verðbréfamarkaðinn, sér í lagi í tilskipun 93/22 um fjárfestingarþjónustu á sviði verðbréfaviðskipta og í vinnu FESCO, samtaka evrópskra fjármálaeftirlita.
Markmið tilmæla ESB er að gefa viðmið fyrir siðlegt athæfi innan sambandsins og greiða með því fyrir virkri starfsemi verðbréfamarkaða og gæta almannahagsmuna. Helstu ákvæði tilmælanna eru:
* Haga ber öllum viðskiptum á verðbréfaþingum í samræmi við bæði anda og bókstaf laga og reglugerða sem í gildi eru en einnig í samræmi við almennar reglur um góðar starfsvenjur.
* Upplýsingar veittar almenningi skulu vera sanngjarnar, réttar, skýrar og nægilegar og skulu bjóðast með góðum fyrirvara.
* Tryggja ber að allir eigendur sams konar verðbréfa sitji við sama borð.
* Stjórnendum fyrirtækja ber að forðast allar athafnir sem gætu torveldað réttmæt viðskipti með bréf félagsins eða skert rétt minnihlutaeigenda.
* Aðilum bera að haga gerðum sínum heiðarlega og í samræmi við markmið siðareglnanna, jafnvel þótt slíkt gæti leitt til þess að þeir verði af skammtímahagnaði.
* Fyrirtækjum ber að forðast eftir megni alla hagsmunaárekstra.
Í almennt viðurkenndum meginreglum FIBV um viðskiptahætti í verðbréfaviðskiptum eru kaflar um heiðarleika og sanngirni, kostgæfni, hæfni, upplýsingar um viðskiptavini, upplýsingar til viðskiptavina, hagsmunaárekstra og löghlýðni.
Ákvæði um heiðarlega og eðlilega viðskiptahætti í íslenskum lögum.
III. kafli laga um verðbréfaviðskipti nr. 13/1996 fjallar um réttindi og skyldur fyrirtækja í verðbréfaþjónustu. Kaflinn miðar að því að tryggja trúverðugleika fyrirtækja í verðbréfaþjónustu og aðskilnað í rekstri einstakra starfssviða. Í þessu skyni skulu sérstaklega nefndar 15. og 21. gr. laganna.
15. gr. laganna er svohljóðandi: ,,Fyrirtæki í verðbréfaþjónustu skulu gæta fyllstu óhlutdrægni gagnvart viðskiptamönnum sínum í starfsemi sinni og ber þeim ávallt að haga störfum sínum þannig að viðskiptamenn njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör í verðbréfaviðskiptum. Skulu viðskiptamönnum, að teknu tilliti til þekkingar þeirra, veittar greinargóðar upplýsingar um þá kosti sem þeim standa til boða.
Fyrirtæki í verðbréfaþjónustu skulu sýna fram á að 1. mgr. sé fylgt og að komið sé í veg fyrir hagsmunaárekstra með skýrum aðskilnaði einstakra starfssviða þeirra. Fjármálaeftirlitið skal staðfesta reglur fyrirtækjanna sem miða að þessu. Í reglunum skal gera sérstaka grein fyrir eftirliti innan fyrirtækisins með því að þeim sé fylgt. Þessar upplýsingar skulu vera aðgengilegar viðskiptamönnum.
Í auglýsingum og annarri kynningarstarfsemi fyrirtækja í verðbréfaþjónustu skal þess gætt að fram komi réttar og nákvæmar upplýsingar um starfsemi og þjónustu fyrirtækjanna.“
21. gr. laganna er svohljóðandi: ,,Fyrirtæki í verðbréfaþjónustu skal vegna eigin viðskipta með verðbréf og vegna viðskipta eigenda virkra eignarhluta skv. 12. gr., stjórnenda, starfsmanna og maka framangreindra aðila meðal annars gæta eftirtalinna atriða:
a. að fyllsta trúverðugleika fyrirtækisins sé gætt,
b. að ýtrustu hagsmuna ótengdra viðskiptavina sé gætt,
c. að fullur trúnaður ríki gagnvart ótengdum viðskiptavinum,
d. að tryggt sé að viðskiptin stangist ekki á við IV. kafla þessara laga,
e. að viðskiptin séu sérstaklega skráð,
f. að stjórn fyrirtækisins fái kerfisbundnar upplýsingar um viðskiptin og hafi eftirlit með þeim.
Fyrirtæki í verðbréfaþjónustu skulu setja sér reglur um viðskipti skv. 1. mgr. og skulu þær staðfestar af Fjármálaeftirlitinu. Fyrirtæki ber að gera Fjármálaeftirlitinu grein fyrir frávikum frá ákvæðum reglnanna. Þær skulu vera aðgengilegar viðskiptamönnum.
Fjármálaeftirlitið hefur sent frá sér umræðuskjal um leiðbeiningar um efni reglna fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. Umræðuskjalið, sem birt er í viðauka 2, er nú til umsagnar.
Í 11. gr. laga um kauphallir og skipulega tilboðsmarkaði kemur fram að eitt af fimm hlutverkum kauphallar sé að setja siðareglur. Siðareglur fyrir aðila að Verðbréfaþingi Íslands hf. eru nr. 5 frá 1. júlí 1999. Þar eru kaflar um heiðarleika og sanngirni, bestu framkvæmd, upplýsingar, hagsmunaárekstra og misnotkun aðstöðu, viðskiptahætti og sýnileika, hæfni, þagnarskyldu og opinbera umfjöllun og að síðustu löghlýðni og eftirlit. Skv. 16. gr. reglnanna má ekki skoða þær sem tæmandi efni um góða starfshætti. Þingaðila ber að samræma sínar eigin siða- og starfsreglur við efni þessara reglna og láta þær reglur gilda gagnvart starfsmönnum sínum.
Viðauki 1.
Svör fjármálafyrirtækja við fyrirspurn viðskiptaráðuneytisins.
Viðskiptaráðuneytið sendi meðfylgjandi bréf til fjármálafyrirtækja þann 7. júlí síðastliðinn:
,,Á vorþingi samþykkti Alþingi meðfylgjandi þingsályktun um setningu siðareglna í viðskiptum á fjármálamarkaði. Samkvæmt ályktuninni skal viðskiptaráðherra kanna hvort stofnanir og fyrirtæki á fjármálamarkaði hafi sett sér siðareglur í samræmi við tilmæli framkvæmdastjórnar ESB frá 25. júlí 1977 um siðareglur um viðskipti með framseljanleg verðbréf og almennt viðurkenndar meginreglur FIBV um viðskiptahætti í verðbréfaviðskiptum frá 1992. Ráðherra skal skila Alþingi skýrslu um niðurstöðu könnunarinnar í upphafi haustþings.
Markmið tilmæla ESB er að gefa viðmið fyrir siðlegt athæfi innan sambandsins og greiða með því fyrir virkri starfsemi verðbréfamarkaða og gæta almannahagsmuna. Helstu ákvæði tilmælanna eru:
* Haga ber öllum viðskiptum á verðbréfaþingum í samræmi við bæði anda og bókstaf laga og reglugerða sem í gildi eru en einnig í samræmi við almennar reglur um góðar starfsvenjur.
* Upplýsingar veittar almenningi skulu vera sanngjarnar, réttar, skýrar og nægilegar og skulu bjóðast með góðum fyrirvara.
* Tryggja ber að allir eigendur sams konar verðbréfa sitji við sama borð.
* Stjórnendum fyrirtækja ber að forðast allar athafnir sem gætu torveldað réttmæt viðskipti með bréf félagsins eða skert rétt minnihlutaeigenda.
* Aðilum bera að haga gerðum sínum heiðarlega og í samræmi við markmið siðareglnanna, jafnvel þótt slíkt gæti leitt til þess að þeir verði af skammtímahagnaði.
* Fyrirtækjum ber að forðast eftir megni alla hagsmunaárekstra.
Í almennt viðurkenndum meginreglum FIBV um viðskiptahætti í verðbréfaviðskiptum eru kaflar um heiðarleika og sanngirni, kostgæfni, hæfni, upplýsingar um viðskiptavini, upplýsingar til viðskiptavina, hagsmunaárekstra og löghlýðni.
Viðskiptaráðuneytið óskar hér með eftir upplýsingum frá fjármálafyrirtækjum í skýrslu þessa. Fram skal koma hvort fjármálafyrirtæki hafi sett sér siðareglur, eða aðrar reglur um heiðarlega og eðlilega viðskiptahætti, aðrar en þær siðareglur sem gilda fyrir þingaðila, sbr. reglur VÞÍ nr. 5 frá 1. júlí 1999 og verklagsreglur skv. 15., 21. og 24. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 13/1996. Hafi fjármálafyrirtæki sett sér siðareglur, hvert er þá megininntak þeirra reglna?
Óskað er eftir svörum fyrir 25. ágúst næstkomandi.“
Búnaðarbanki Íslands hf. svaraði með bréfi 23. ágúst. Í bréfi bankans segir að hann hafi ekki sett sér sérstakar siðareglur eða aðrar reglur um heiðarlega og eðlilega viðskiptahætti, en hafi á hinn bóginn haft að leiðarljósi að starfa í samræmi við þær siðareglur er Verðbréfaþing Íslands hefur sett þingaðilum.
Í bréfi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis frá 23. ágúst segir að það sé mat sparisjóðsins að reglur VÞÍ, verklagsreglur skv. lögum um verðbréfaviðskipti auk sérstakra verklagsreglna Spron 8. febrúar 2000 og aðrar starfs- og áhættureglur Spron nái yfir það efni tilmæla ESB og meginreglna FIBV.
Í bréfi Landsbréfa hf. frá 24. ágúst segir að fyrirtækið hafi ekki sérstakar siðareglur en að í verklagsreglum fyrirtækisins og starfssamningum sem allir starfsmenn undirriti séu ákvæði sem falli undir siðareglur, m.a. upplýsingar um viðskiptavini, trúnað, heiðarleika og hagsmunaárekstra. Með bréfi Landsbréfa fylgdu verklagsreglur fyrirtækisins.
Í bréfi Landsbanka Íslands hf. frá 1. september segir að hjá Landsbankanum hafi siðareglur gilt fyrir allt starfsfólk um langt skeið en síðasta endurskoðun þeirra átti sér stað um mitt ár 1999. Megininntak þessara reglna er að brýna fyrir starfsfólki að fara að lögum og reglum og bera hag viðskiptavinarins ávallt fyrir brjósti. Áminning er þar um þagnarskyldu, meðferð trúnaðarupplýsinga og almennt um hvernig starfsfólk skuli hegða sér gagnvart viðskiptavinum, samkeppnisaðilum og hvert gagnvart öðru innan Landsbankans.
Fram kemur einnig í svari Landsbankans að siðareglur hans séu ekki samdar beinlínis með tilmæli framkvæmdastjórnar ESB eða meginreglur FIBV í huga. Við yfirlestur á þeim tveimur skjölum sem fylgdu bréfi ráðuneytisins og ef bornar eru saman þær reglur sem þar koma fram við þær siðareglur sem bankinn hefur sett sérstaklega auk þeirra verklagsreglna sem settar eru í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti og siðareglur VÞÍ verður ekki annað séð en að innan Landsbankans séu í gildi siðareglur sem taka á öllum þeim atriðum sem tilmæli framkvæmdastjórnarinnar og meginreglur FIBV hafa að geyma.
Þann 4. september sendi viðskiptaráðuneytið meðfylgjandi símbréf til þeirra fjármálafyrirtækja sem ekki höfðu þá svarað bréfi ráðuneytisins: ,,Vísað er til meðfylgjandi erindis frá 7. júlí 2000 um þingsályktun um setningu siðareglna í viðskiptum. Óskað var eftir svörum fyrir 25. ágúst. Þar sem svör hafa enn ekki borist frá mörgum fjármálafyrirtækjum óskar ráðuneytið eftir því að úr verði bætt fyrir lok föstudags 8. september.“
Í bréfi Sparisjóðs Hafnarfjarðar frá 5. september kemur fram að þann 9. febrúar 2000 voru samþykktar hjá stjórn sparisjóðsins siðareglur sem ná til allra starfsmanna hans. Tilgangur siðareglna sparisjóðsins er að byggja upp og varðveita traust fyrirtækisins, orðspor hans í viðskiptum og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra sem geta valdið tortryggni viðskiptavina. Reglunum er ætlað að styðja hugmyndafræði sparisjóðsins um velferð viðskiptavina hans í fjármálum.
Meginkaflar í siðareglum Sparisjóðs Hafnarfjarðar fjalla um meðferð upplýsinga, innherjaviðskipti, eigin viðskipti, vinnu og/eða stjórnaraðild utan sparisjóðsins, félagsmál og stjórnmál, gjafir, boðsferðir og samskipti gagnvart viðskiptavinum. Í siðareglunum er lögð áhersla á vandaða meðferð upplýsinga til að tryggja að núverandi og væntanlegir viðskiptavinir geti verið þess fullvissir að trúnaðarupplýsingar sem þeir treysta sparisjóðnum fyrir verði meðhöndlaðar af ýtrustu varúð og heiðarleika. Með bréfi Sparisjóðs Hafnarfjarðar fylgdi eintak af siðareglum hans.
Í bréfi Íslandsbanka-FBA hf. frá 6. september kemur fram að siðareglur Íslandsbanka hf. voru samþykktar af bankaráði bankans þann 19. september 1990 og endurskoðaðar í september 1999. Í reglum þessum er fjallað um samskipti starfsmanna bankans við viðskiptamenn almennt, meðferð trúnaðarupplýsinga, gjafir til starfsmanna, boðsferðir, vinnu utan bankans o.fl. þess háttar.
Innan FBA hf. voru í gildi ýmsar innri starfsreglur þar sem vikið var að atriðum sem eru efnislega sambærileg við siðareglur Íslandsbanka hf. Eftir sameiningu bankanna sl. vor hefur verið unnið að samræmingu á ofangreindum siðareglum fyrir Íslandsbanka-FBA hf. og er sú vinna langt á veg komin.
Í bréfi Sparisjóðabanka Íslands hf. frá 8. september kemur fram að Sparisjóðabankinn hafi engin viðskipti við almenning. Bankinn hafi þó sett sér ítarlegar verklagsreglur um viðskipti með verðbréf til að tryggja öryggi í viðskiptum og forðast hagsmunaárekstra sem og til að takmarka áhættu af verðbréfaviðskiptum. Um bankann gilda reglur VÞÍ sem og lagareglur á grundvelli laga um verðbréfaviðskipti. Beðið er endanlegra reglna Fjármálaeftirlitsins um verklagsreglur. Bankinn telur framangreindar reglur fullnægjandi og ekki þörf sérstakra annarra reglna.
Í bréfi MP-Verðbréfa hf. frá 8. september kemur fram að fyrirtækið telji sig uppfylla tilmæli framkvæmdastjórnarinnar og meginreglur FIBV með því að fara eftir lögum um verðbréfaviðskipti, verklagsreglum fjármálafyrirtækja og siðareglum VÞÍ.
Í bréfi Burnham International hf. frá 8. september kemur fram að endurnýjun siðareglna fyrirtækisins sé í vinnslu og verði þær endurútgefnar og undirritaðar af starfsmönnum á sama tíma og nýjar verklagsreglur verði kynntar. Með bréfi Burnham fylgdu siðareglur fyrirtækisins.
Í bréfi Kaupþings hf. frá 15. september kemur fram að í þeim vinnureglum, starfsreglum og verklagsreglum sem fyrirtækið hefur sett sér sé vikið að ýmsum siðferðislegum markmiðum, þar sem leitast sé við að tryggja jafnræði, góða viðskiptahætti, upplýsingagjöf, viðskipti með verðbréf fyrir eigin reikning, viðskipti starfsmanna o.fl. Þá eru í lögum, reglugerðum og reglum sem gilda um verðbréfaviðskipti ýmis ákvæði sem fela í sér siðareglur eða vísa til siðferðislegra mælikvarða.
Svör bárust ekki frá Sparisjóði vélstjóra, Frjálsa fjárfestingarbankanum, Íslenskum verðbréfum og Verðbréfastofunni.
Viðauki 2.
Leiðbeiningar Fjármálaeftirlitsins um efni reglna fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. (Umræðuskjal sent til umsagnar í júlí 2000.)
1. Inngangur.
1. Samkvæmt lögum nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti, með síðari breytingum, skulu fyrirtæki í verðbréfaþjónustu 1 setja sér eftirfarandi reglur:
* Reglur um eigin viðskipti með verðbréf og vegna viðskipta eigenda virkra eignarhluta, starfsmanna og maka framangreindra aðila, sbr. 21. gr. (kafli 3-4).
* Reglur um aðskilnað einstakra starfssviða fjármálafyrirtækja, sbr. 15. gr. (kafli 2).
* Reglur um heimildir starfsmanna til setu í stjórn atvinnufyrirtækja eða aðra þátttöku í atvinnurekstri, sbr. 24. gr. (kafli 5).
Reglurnar eru háðar staðfestingu Fjármálaeftirlitsins (FME).
2. Tilgangur reglnanna samkvæmt framangreindu er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi fjármálafyrirtækja og draga úr hættu á hlutdrægni við meðferð og afgreiðslu mála. Fyrirtæki þurfa að kappkosta að ýtrustu hagsmuna ótengdra viðskiptamanna sé gætt í verðbréfaviðskiptum og að fullur trúnaður ríki gagnvart þeim. Reglurnar eiga að vera aðgengilegar viðskiptamönnum.
3. FME leggur á það áherslu að þessar leiðbeiningar fela í sér lágmarkskröfur og því þarf e.t.v. að gera strangari kröfur í einstökum tilfellum til að markmið þeirra náist. Hér er gerð grein fyrir helstu atriðum sem kveða þarf á um í reglunum til að þær hljóti staðfestingu FME. Gert er ráð fyrir að fjármálafyrirtæki setji sér nýjar reglur á næstu mánuðum, í stað fyrri verklagsreglna um verðbréfaviðskipti, sem taki mið af þeim skilyrðum sem hér eru sett fram.
4. Í þessum leiðbeiningum er gert ráð fyrir að reglurnar taki einnig til viðskipta með gjaldmiðla og afleiðusamninga með gjaldmiðla. Ekki er átt við kaup á gjaldeyri til greiðslu fyrir vörur eða þjónustu eða vegna ferðalaga erlendis.
5. Skáletraður texti er ætlaður til frekari útskýringar á þeim atriðum sem fjallað er um. Í umfjöllun hér á eftir er gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki nýti til fulls starfsheimildir sem verðbréfafyrirtæki hafa, þar á meðal heimildir til viðskipta fyrir eigin reikning.
2. Kínamúrar.
6. Gerð er krafa um að fjármálafyrirtæki gæti fyllstu óhlutdrægni gagnvart viðskiptamönnum sínum. Fyrirtækjum ber því að sýna fram á að komið sé í veg fyrir hagsmunaárekstra með skýrum aðskilnaði einstakra starfssviða þeirra („Kínamúrar“).
Styrkleiki Kínamúra hefur áhrif á hvort fjármálafyrirtækjum er unnt að nýta starfsheimildir sínar til fulls. Kínamúrar eru mikilvægt tæki til að viðhalda trúverðugleika fjármálafyrirtækja og því er nauðsynlegt að vandað sé til þeirra og þeim fylgt eftir með öflugri kynningu og eftirliti.
7. Fyrirtækjum ber að aðgreina fjárstýringu (þar á meðal viðskipti fyrir eigin reikning), miðlun, sjóðastýringu, fyrirtækjaráðgjöf og önnur svið eftir því sem starfsemi fyrirtækisins og skipulag gefur tilefni til. Gerð er krafa um að aðskilnaður starfssviða sé efnislegur og aðgangur takmarkaður milli sviða.
Fjármálafyrirtæki þurfa sjálf að móta þennan hluta reglnanna í samræmi við starfsemi fyrirtækisins og áherslur, uppbyggingu skipurits og húsnæði. Í reglunum þarf að gera grein fyrir skipulagi á verðbréfasviði og hvaða svið eða starfsemi sé aðgreind með Kínamúrum. Jafnframt þarf að gera grein fyrir því hvernig sviðin eru aðgreind í húsnæði og upplýsingakerfum.
8. Tryggja þarf sérstaklega að viðkvæmar upplýsingar berist ekki milli starfssviða og að starfsmenn gefi ekki með neinum hætti upplýsingar um verkefni og gagnabrunna utan viðkomandi starfssviðs. Eðlilegt er að líta svo á að þagnarskylda starfsmanna hindri ekki einungis miðlun upplýsinga út úr fyrirtækinu, heldur einnig milli sviða.
Reglurnar þurfa að taka til þess hvernig samskiptum milli starfssviða er háttað. Til fyllingar reglunum þurfa fjármálafyrirtæki að setja sér víðtækar öryggis- og samskiptareglur sem sniðnar eru eftir eðli starfseminnar og skipulagi. Í þessu skyni þarf að setja öryggisreglur um vörslu gagna innan sviða, svo sem að læsa gögn í hirslum, meðferð tölvulykilorða o.s.frv.
9. Mikilvægt er að starfsmenn starfi innan skilgreindra starfssviða. Sé óhjákvæmilegt að nýta starfsmann utan skilgreinds starfssviðs viðkomandi þarf að koma í veg fyrir hættu á hagsmunaárekstrum og misnotkun trúnaðarupplýsinga. Halda þarf skrá yfir þá starfsmenn sem vinna verkefni utan síns starfssviðs. Í skránni skal gera grein fyrir viðkomandi verkefnum og hvenær þau eru unnin.
Í reglunum þarf sérstaklega að gera grein fyrir aðgangstakmörkunum starfsmanna. Upp geta komið tilvik þar sem nauðsynlegt er að nýta starfsmann utan sviðs. Slíkt er afar vandmeðfarið og ber að beita slíkri heimild af mikilli varfærni. Skráning á slíkum undantekningartilvikum er mikilvæg til að tryggja eftirlit regluvarðar, sbr. kafla 6.
3. Verðbréfaviðskipti fjármálafyrirtækja fyrir eigin reikning.
10. Viðskipti fjármálafyrirtækis með verðbréf fyrir eigin reikning mega á engan hátt rekast á við eða gefa tilefni til að ætla að þau rekist á við hagsmuni viðskiptamanna. Því er lögð áhersla á eftirfarandi:
11. Aðgreina þarf með skýrum hætti viðskipti fjármálafyrirtækis fyrir eigin reikning frá miðlun, sbr. umfjöllun í 2. kafla. Tryggja þarf að sá sem annast viðskipti fyrir fyrirtækið hafi ekki aðgang að upplýsingum um tilboð eða viðskipti annarra viðskiptamanna eða ráðgjöf til þeirra og að starfsmenn miðlunar búi ekki yfir neinum upplýsingum um fjárfestingaráform fyrirtækisins umfram aðra.
Trúverðugleiki fjármálafyrirtækis í eigin viðskiptum ræðst af því hversu vel tekst til um aðskilnað starfssviða. Takist ekki að tryggja slíkan aðskilnað kemur til athugunar hvort fyrirtækinu eigi að vera heimilt að eiga viðskipti fyrir eigin reikning. Í aðskilnaðinum felst að skilja þarf á milli veltubókar og miðlunarbókar.
12. Kveða þarf á um að viðskipti fjármálafyrirtækisins eða tilboð um viðskipti skuli á engan hátt hafa forgang og fari í röð á eftir beiðnum sem áður hafa borist. Á viðskiptanótu skuli greina frá því, í hverju einstöku tilfelli, ef mótaðili í viðskiptum er fjármálafyrirtækið sjálft.
Eðlilegt er að viðskiptamaður sé upplýstur um það ef hann hefur átt viðskipti við fjármálafyrirtækið sjálft svo hann geti betur lagt mat á stöðu sína gagnvart fyrirtækinu. Hér er ekki átt við öll viðskipti sem fara í gegnum reikning fyrirtækisins, heldur stöðutöku þess í verðbréfum. Mikilvægt er að greina þar á milli.
13. Ráðleggi starfsmenn fjármálafyrirtækis viðskiptamönnum að eiga viðskipti með verðbréf, ber þeim að greina frá því ef fjármálafyrirtækið sjálft hefur hagsmuna að gæta í viðkomandi fyrirtæki, enda séu upplýsingar um það aðgengilegar starfsmanninum.
Eðlilegt er að gera kröfu til þess að viðskiptamaður sé upplýstur um eigendahagsmuni fjármálafyrirtækisins þegar ráðlagt er um viðskipti með verðbréf. Á þetta einnig við um þær greiningar á fyrirtækjum sem fjármálafyrirtækið birtir. Ekki er gert ráð fyrir að viðskiptamönnum sé gerð grein fyrir eignarhlut ef hann er óverulegur og hefur ekki fjárhagslega þýðingu fyrir fjármálafyrirtækið.
14. Þegar eigin hagsmunir fjármálafyrirtækis (eða félags/sjóðs í vörslu þess) af viðskiptum við fjárvörsluaðila eru fyrirfram til þess fallnir að valda vafa um óhlutdrægni fyrirtækisins, eða vafa á að hagsmunir fjárvörsluaðilans séu í fyrirrúmi, skal fyrirtækið veita fjárvörsluaðila nauðsynlegar upplýsingar um hagsmuni fyrirtækisins áður en viðskiptin eru framkvæmd. Telji fyrirtækið að slíkir hagsmunir séu ekki til staðar og viðskipti fara fram án fyrirfram samþykkis, ber fyrirtækinu að greina fjárvörsluaðilum frá viðskiptunum þegar að þeim loknum. Eiga þeir rétt á að fá skriflegan rökstuðning fyrirtækisins fyrir slíkum viðskiptum. Framangreint gildir einnig um aðra aðila með sambærilegt réttarsamband við fjármálafyrirtækið, þ.e. einhliða og ótakmarkað umboð fyrirtækisins til viðskipta fyrir hönd aðila. Miðlarar skulu greina þeim sem fara með fjárvörslu frá því ef tilboð stafar frá fjármálafyrirtækinu sjálfu og ef fyrirtækið hefur hagsmuni af viðskiptunum.
Sérstakrar varúðar er þörf í viðskiptum fjármálafyrirtækis við fjárvörsluaðila þegar fyrirtækið sjálft hefur samningsbundið umboð til að fara með fjármuni hans. Fjárvörslusamningar fela alla jafnan í sér opið umboð til viðskipta fyrir hönd viðskiptamanns. Til að tryggja trúnaðartraust þarna á milli er nauðsynlegt að tryggja að viðskipti eigi sér ekki stað ef vafi er um óhlutdrægni fyrirtækisins, eða að hagsmunir fjárvörsluaðilans séu í fyrirrúmi. Í þeim tilvikum er nauðsynlegt að gera fjárvörsluaðila grein fyrir þeim hagsmunum og leita fyrirfram samþykkis hans. Gera verður ríka kröfu til fjármálafyrirtækis um mat á þessum hagsmunum. Þá verður að gera kröfu til þess að fjárvörsluaðilanum sé gerð grein fyrir viðskiptum hans við fyrirtækið sjálft og gefinn kostur á skriflegum rökstuðningi, hafi honum ekki verið gefinn kostur á að samþykkja viðskiptin fyrirfram. Stærri aðilar, svo sem lífeyrissjóðir í vörslu fjármálafyrirtækis, ættu að njóta sama réttar.
4. Verðbréfaviðskipti starfsmanna fjármálafyrirtækja og fjölskyldna. 2
15. Í kafla 4.1 hér á eftir er gerð grein fyrir þeim skilyrðum um viðskipti starfsmanna sem reglurnar verða a.m.k. að uppfylla að mati FME. Ljóst er að eðli starfa er mismunandi eftir deildum og aðgangur að trúnaðarupplýsingum mismunandi. Því kemur til greina að fyrirtæki skilgreini þá starfsmenn eða þau starfssvið sem unnt er að gera vægari kröfu til eða önnur störf þar sem lítill aðgangur er að upplýsingum sem nýst geta í verðbréfaviðskiptum. Fjallað er um þann hóp í kafla 4.2. Slíkar mismunandi kröfur ráðast m.a. af því hvernig skipulagi, þar á meðal Kínamúrum, er háttað. Í stærstu fyrirtækjum kann að koma til greina að tilteknir hópar starfsmanna falli ekki undir reglur um verðbréfaviðskipti, en undirriti einungis trúnaðaryfirlýsingu.
16. Gert er ráð fyrir að starfsmenn og makar undirriti sérstaka yfirlýsingu þar sem fram kemur að þeir hafi kynnt sér efni reglnanna og skuldbindi sig til að lúta þeim.
4.1 Almennar kröfur til verðbréfaviðskipta starfsmanna fyrir eigin reikning.
4.1.1 Gildissvið.
17. Reglurnar taka til starfsmanna fjármálafyrirtækja og fjölskyldna þeirra. Undanþágur er heimilt að veita vegna viðskipta sem tengjast atvinnurekstri fjölskyldumeðlima, verðbréfa sem þeir fá afhent sem hluta af starfskjörum þeirra hjá vinnuveitanda og viðskipta þeirra sem falla undir hliðstæðar reglur hjá öðru fjármálafyrirtæki. Halda skal skrá yfir undanþágur.
Með starfsmönnum er átt við almenna starfsmenn og stjórnendur. Ekki er gerð krafa um að reglurnar taki til stjórnarmanna að öðru leyti en greint er frá í kafla 4.3.
4.1.2 Aðgætni.
18. Í reglunum þarf að kveða almennt á um aðgætni starfsmanna í verðbréfaviðskiptum fyrir eigin reikning. Í allri túlkun á reglunum þarf að gæta þess að viðskipti starfsmanna rekist á engan hátt á við hagsmuni viðskiptamanna.
Regluverði ber í eftirfylgni sinni að leggja áherslu á rétt hugarfar starfsmanna að þessu leyti.
4.1.3 Ferill viðskipta.
19. Í reglunum þarf að tryggja að viðskipti starfsmanna uppfylli annað af tveimur eftirfarandi skilyrðum um feril viðskipta:
a. Starfsmenn hafi fengið leyfi hjá regluverði áður en þeir eiga viðskipti. Senda þarf skriflega beiðni til regluvarðar, t.d. tölvupóst, sem síðan gefur heimild til viðskiptanna og tilnefnir miðlara til að annast viðskiptin. Viðskiptaheimildin gildir í einn dag. Ef viðskipti fara ekki fram innan þess tíma þarf starfsmaður nýja heimild.
b. Starfsmenn hafi tilkynnt regluverði skriflega, áður en viðskiptadagur hefst, að hann hyggist eiga viðskipti með tiltekin verðbréf á ákveðnu verðbili. Slík tilkynning gildir í einn dag. Miðlari, sem útnefndur hefur verið sérstaklega, annast viðskiptin. Regluvörður getur gert athugasemd við viðskiptin, m.a. það verðbil sem tilgreint er, lagt bann við viðskiptunum (sbr. 6. kafla) eða látið þau ganga til baka.
Starfsmönnum er alltaf óheimilt að eiga viðskipti á undan viðskiptamanni ef áður hefur legið fyrir beiðni um viðskipti af hálfu viðskiptamanns.
Skilyrði um feril viðskipta, þ.e. að fá þurfi leyfi regluvarðar eða tilkynna fyrirhuguð viðskipti áður en viðskiptadagur hefst, eru nauðsynleg vegna þess að grundvöllur verðbréfaviðskipta getur verið fljótur að breytast innan dags og einstakir starfsmenn geta verið í góðri aðstöðu til þess að nýta sér upplýsingar sem fram koma á viðskiptadegi og hafa áhrif á röð viðskipta innan dagsins, sér eða samstarfsmönnum í hag. Í leið a) er gert ráð fyrir að regluvörður hafi forsendur til að fylgjast með þessu.
4.1.4 Milliganga.
20. Tryggja þarf að verðbréfaviðskipti starfsmanna fjármálafyrirtækis fari fram fyrir milligöngu þess og séu sérstaklega skráð. Heimilt er að kveða á um afmarkaðar undanþágur frá þessu skilyrði vegna viðskipta með erlend verðbréf sem viðkomandi fjármálafyrirtæki getur ekki haft milligöngu um án verulegs viðbótarkostnaðar, netviðskipta og áskrifta spariskírteina. Ef undanþágur eru heimilaðar skal tilkynna mánaðarlega um slík viðskipti til regluvarðar.
Skilyrði um milligöngu fjármálafyrirtækis er nauðsynlegt til að tryggja yfirsýn og eftirlit regluvarðar. Allar undanþágur þarf að afmarka með skýrum hætti. Alla jafna yrði regluverði kunnugt um viðskipti samkvæmt undanþágum vegna ákvæða um feril viðskipta, sbr. kafla 4.1.3, en engu að síður er nauðsynlegt að tilkynna honum mánaðarlega um viðskipti sem orðið hafa.
21. Ef fjármálafyrirtæki fær beiðni um að kaupa/selja verðbréf yfir ákveðið tímabil geta þeir starfsmenn sem hafa upplýsingar um þetta ekki átt viðskipti fyrir eigin reikning með viðkomandi verðbréf fyrr en eftir að viðskipti þessi hafa átt sér stað.
Með þessu eru hagsmunir viðskiptamanns sem setur fram slíka beiðni tryggðir og meginreglu um röð viðskipta fylgt. Regluvörður gegnir eftirlitshlutverki í þessu sambandi. Hér er ekki átt við viðskiptavakt fjármálafyrirtækis sem tilkynnt er á VÞÍ.
4.1.5 Skráð/óskráð verðbréf.
22. Viðskipti starfsmanna með óskráð verðbréf eru óheimil. Unnt er að heimila undantekningu vegna þátttöku í útboði þar sem stjórn VÞÍ hefur samþykkt að hlutafélagið fái skráningu að útboði loknu. Þá kemur til greina að kveða á um undanþágur vegna eignarhalds á óskráðum hlutabréfum í félögum sem engin virk viðskipti eru um og ekki hafa fjárfestingar að markmiði (dæmi: Félag um góðgerðarstarfsemi eða félag um atvinnurekstur fjölskyldumeðlima). Kveða þarf skýrt á um slíkar undanþágur.
Nefnd á vegum viðskiptaráðuneytisins vinnur nú að mótun reglna um útboð verðbréfa. FME hefur lýst þeirri skoðun sinni að koma þurfi í veg fyrir að verðbréf sem ekki hafa verið boðin til sölu í almennu útboði gangi kaupum og sölum meðal almennings. Þannig þurfi að kveða á um hverjir megi eiga viðskipti með verðbréf sem ekki hafa verið boðin til sölu í almennu útboði. Ákvörðun um að heimila starfsmönnum að eiga viðskipti með óskráð verðbréf ræðst að mati FME af niðurstöðu framangreindrar vinnu. Stefnt er að því að vinnu nefndarinnar ljúki síðsumars og að frumvarp verði lagt fram snemma á haustþingi.
4.1.6 Lágmarkseignarhaldstími.
23. Gerð er krafa um að starfsmenn eigi verðbréf sem þeir kaupa í 3 mánuði að lágmarki. Gert er ráð fyrir að starfsmenn geti selt verðbréf sín áður en lágmarkseignarhaldstími er liðinn ef markaðsverð þeirra fer niður fyrir upphaflegt kaupverð.
Með þessu skilyrði er ætlunin að koma í veg fyrir spákaupmennsku. Lengd binditíma ræðst m.a. af öðrum skilyrðum reglnanna og leggur FME á þessu stigi til þriggja mánaða binditíma, með hliðsjón af skýrum skilyrðum um feril viðskipta og eftirlit með þeim. Ástæða kann að vera til að lengja þennan binditíma breytist aðrar forsendur.
24. Unnt er að kveða á um að lágmarkseignarhaldstími eigi ekki við um kaup starfsmanna á hlutdeildarskírteinum í verðbréfasjóðum samkvæmt lögum um verðbréfasjóði, kaup á hlutabréfum í skráðum hlutabréfasjóðum, skuldabréf sem starfsmenn fá sem greiðslu við sölu fastafjármuna sinna og verðbréf sem starfsmenn hafa eignast áður en reglurnar taka gildi gagnvart þeim. Þá kemur til greina að heimila regluverði að veita undanþágur frá lágmarkseignarhaldstíma vegna sérstakra aðstæðna. Þær aðstæður sem hér um ræðir eru fyrst og fremst vegna óvæntra breytinga á aðstæðum starfsmanns eftir að verðbréfin voru keypt, svo sem veikinda, slyss eða andláts í fjölskyldu hans eða hjónaskilnaðar hans, eða hann hefur eignast þau óvænt með öðrum hætti en kaupum, svo sem við arf eða gjöf.
Útfæra verður undantekningar frá lágmarkseignarhaldstíma í reglunum. Einnig verður að fela regluverði afmarkað mat á einstökum tilvikum.
4.1.7 Þátttaka í útboðum.
25. Tryggja verður í reglunum að starfsmönnum sé óheimilt að taka þátt í útboðum á verðbréfum sem fjármálafyrirtækið gefur út eða útboðum sem fjármálafyrirtækið annast fyrir aðra útgefendur nema því aðeins að í útboðunum sé óskað eftir tilboðum um hlut á föstu gengi en ekki tilboðum um verð einstakra bréfa, gengi eða vaxtakjör og að þeir gangi ekki fyrir sem fyrstir skrá sig. Í slíkum útboðum verða tilboð starfsmanna að berast við upphaf fyrsta tilboðsdags. Í útboðslýsingu skal greina frá því hvort starfsmönnum sé heimilt að taka þátt í útboðum og eftir hvaða skilmálum.
Þessu ákvæði er ætlað að gæta hagsmuna ótengdra viðskiptamanna og styrkja trúverðugleika viðkomandi fjármálafyrirtækis. Innan fyrirtækisins liggja fyrir upplýsingar um útboðið, m.a. verð og eftirspurn sem starfsmenn gætu nýtt sér.
4.1.8 Ráðgjöf og greining.
26. Kveða skal á um að starfsmenn sem í störfum sínum eru faglegir ráðgjafar eða trúnaðarmenn útgefenda verðbréfa, eða starfa á sviðum sem annast slíka ráðgjöf, sé óheimilt að eiga viðskipti með verðbréf viðkomandi útgefanda frá því að störfin hefjast og næstu þrjá mánuði eftir að störfum þeirra fyrir viðkomandi lýkur, nema þeirra vinnu ljúki fyrr með opinberri útgáfu á upplýsingum, svo sem útboðslýsingu. Slíkir ráðgjafar skulu teljast fruminnherjar og lúta þeim reglum sem gilda um viðskipti þeirra. Þetta á meðal annars við um umsjón með hlutafjárútboði og nýskráningu hlutabréfa á markaði.
Þessi regla dregur úr hættu á misnotkun upplýsinga og stuðlar að trúverðugleika fjármálafyrirtækisins. Um fruminnherja gilda m.a. þær reglur að hlutafélaginu ber að tilkynna þá til VÞÍ og viðskipti þeirra skulu tilkynnt sérstaklega til VÞÍ sem birtir þau undir nafni. Reglan tekur til ráðgjafar sem byggist alfarið á opinberum upplýsingum, enda félli ráðgjöf sem byggðist á trúnaðarupplýsingum undir ákvæði IV. kafla laga um verðbréfaviðskipti.
27. Starfsmönnum er óheimilt að nýta sér innri greiningu fyrirtækis til að hagnast persónulega í verðbréfaviðskiptum ef niðurstöður greiningar eru öðrum viðskiptamönnum ekki aðgengilegar.
Þessu ákvæði er ætlað að gæta hagsmuna ótengdra viðskiptamanna með því að koma í veg fyrir að starfsmenn nýti sér innri upplýsingar á undan viðskiptamönnum. Reglan tekur til greininga þó þær byggist alfarið á opinberum upplýsingum, enda falla greiningar sem byggjast á trúnaðarupplýsingum undir ákvæði IV. kafla laga um verðbréfaviðskipti.
4.1.9 Sérkjör.
28. Fjármálafyrirtæki mega ekki bjóða starfsmönnum sínum sérkjör í verðbréfaviðskiptum.
Með sérkjörum er átt við kjör sem líkleg eru til að hvetja starfsmenn til verðbréfaviðskipta fyrir eigin reikning eða veita þeim sérstöðu umfram aðra. Þannig skulu starfsmönnum ekki standa til boða sérstök lánakjör eða afsláttur á þóknunum fram yfir aðra viðskiptamenn.
4.1.10 Fjárfestingarfélög.
29. Starfsmönnum er óheimilt að taka þátt í fjárfestingarhópum (-klúbbum) eða öðrum hliðstæðum félagsskap sem hefur þann tilgang að þátttakendur standi sameiginlega að kaupum á verðbréfum. Hér er ekki átt við sjóði um sameiginlega fjárfestingu í verðbréfum þar sem skírteinishafar hafa engin bein áhrif á fjárfestingarnar, svo sem hlutabréfasjóði eða verðbréfasjóði.
Þetta skilyrði er sett til að koma í veg fyrir að starfsmenn fjármálafyrirtækja geti komist hjá reglunum með stofnun félags um fjárfestingar sínar. Mikilvægt er að tryggja að öll viðskipti starfsmanna séu sýnileg og rekjanleg. Erfitt er að tryggja þetta þegar fjárfestingarhópar eiga í hlut auk þess sem þátttaka í fjárfestingarhópum eykur hættu á trúnaðarbresti og getur dregið úr trúverðugleika fyrirtækisins.
4.1.11 Verðbréfaeign við upphaf starfs.
30. Starfsmenn skulu greina regluverði frá allri verðbréfaeign sinni þegar þeir hefja störf hjá fjármálafyrirtæki. Starfsmenn fjármálafyrirtækis þurfa einnig að greina fyrirtækinu frá verðbréfaeign sinni þegar nýju reglurnar um eigin verðbréfaviðskipti taka gildi.
Þetta er nauðsynlegt til að tryggja yfirsýn og eftirlit regluvarðar.
4.2 Sérstakar undanþágur.
31. FME telur koma til greina að tilteknar deildir, starfssvið eða hópar starfsmanna fjármálafyrirtækja lúti ekki að öllu leyti framangreindum skilyrðum um viðskipti. Í hefðbundnum fjármálafyrirtækjum kann að vera tilefni til að vægari reglur gildi um starfsfólk mötuneytis, starfsmannahalds og annarra sviða sem ekki hafa aðgang að upplýsingum um verðbréf.
Þau skilyrði viðskipta sem til greina kemur að taki ekki til þessara hópa starfsmanna eru eftirfarandi:
* Skilyrði í kafla 4.1.3 um feril viðskipta. Almennar reglur um viðskiptaröð gildi um viðskipti þeirra.
* Skilyrði í kafla 4.1.7 um þátttöku í útboðum. Starfsmönnum sé heimilt að taka þátt í útboðum sé óskað eftir tilboðum um hlut á föstu gengi, þó aðeins samkvæmt sérstakri skriflegri heimild regluvarðar að undangenginni athugun á því hvort þeir kunni að búa yfir trúnaðarupplýsingum um viðkomandi verðbréf.
Undanþágur ráðast af starfsháttum viðkomandi fyrirtækis og hvernig meðferð upplýsinga og skipulagi (Kínamúrum) er háttað. Undanþágurnar geta aldrei tekið til starfsmanna sem koma með einhverjum hætti að undirbúningi útboða, miðlun, ráðgjöf eða annarri sambærilegri starfsemi.
4.3 Viðskipti aðila sem eiga virkan eignarhlut, stjórnarmanna og endurskoðenda.
32. Í viðskiptum sínum við aðila sem eiga virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækinu, stjórnarmenn og endurskoðendur þess skal fyrirtækið gæta þess að þau séu ekki á nokkurn hátt tortryggileg eða til þess fallin að kasta rýrð á trúverðugleika og orðstír þeirra og fyrirtækisins. Óskir þessara aðila um að fyrirtækið annist kaup eða sölu verðbréfa fyrir þá skulu afgreiddar með sama hætti og óskir annarra viðskiptamanna og ekki fá forgang á nokkurn hátt. Viðskiptin skulu skráð sérstaklega og eftirlit haft með þeim með sama hætti og viðskiptum starfsmanna.
Ekki þykir framkvæmanlegt að gera eigendum, stjórnarmönnum og endurskoðendum að fylgja sömu reglum um viðskipti og starfsmenn, m.a. um feril viðskipta, lágmarkseignarhaldstíma og milligöngu fjármálafyrirtækis.
33. Kveða þarf á um takmarkanir á viðskiptum fruminnherja samkvæmt þessum kafla. Þannig má kveða á um að þeim sé óheimilt að eiga viðskipti með eignarhlut í fyrirtækinu á ákveðnu tímabili áður en uppgjör eru birt, eða einungis heimilt að eiga viðskipti í ákveðinn tíma eftir að uppgjör eru birt.
Nauðsynlegt er að skýrt sé kveðið á um hvenær fruminnherjar samkvæmt kaflanum mega eiga viðskipti með eignarhlut í fyrirtækinu til þess að takmarka hættu á að viðskiptin verði metin tortryggileg.
34. Stjórnir fjármálafyrirtækja skulu í tengslum við reglur þessar setja sér innri starfsreglur þar sem m.a. skal kveðið á um aðgang þeirra að trúnaðarupplýsingum og hæfi þeirra til meðferðar einstakra mála.
Slíkar innri reglur stjórnar stuðla að auknum trúverðugleika fjármálafyrirtækis við meðferð mála.
5. Þátttaka í stjórnum og atvinnurekstri.
35. Í reglunum skal kveðið á um að starfsmönnum fjármálafyrirtækja sé óheimilt að sitja í stjórn fyrirtækja eða taka laun frá öðru fyrirtæki eða taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti nema að fengnu leyfi stjórnar. Eignarhlutur í fyrirtæki telst þátttaka í atvinnurekstri ef um er að ræða virkan eignarhlut. Þá skal kveðið á um upplýsingaskyldu starfsmanna um aukastörf sem þeir hafa með höndum eða hyggjast taka að sér. Kveðið skal skýrt á um að stjórnendum fjármálafyrirtækja sé heimilt að banna aukastarf, þ.m.t. stjórnarsetu, sem talið er ósamrýmanlegt hagsmunum fyrirtækisins.
36. Þegar meiri hluti stjórnar er kjörinn með fulltingi framkvæmdastjóra eða aðila sem er tengdur honum, skal í reglunum kveðið sérstaklega á um hvar honum er heimilt að sitja í stjórn eða hvernig þátttöku hans í atvinnurekstri er háttað.
Nauðsynlegt er að FME staðfesti stjórnarsetu framkvæmdastjóra í þessu tilviki, enda ætti hann í raun annars sjálfdæmi um mat á þessu.
6. Regluvörður og eftirlit með framkvæmd reglnanna.
6.1 Staða og hlutverk.
37. Gert er ráð fyrir að sérstakur regluvörður verði tilnefndur innan fjármálafyrirtækis til að tryggja eftirfylgni við reglurnar. Regluverði er ætlað að hafa eftirlit með því að ákvæðum reglnanna sé fylgt, hafa forgöngu um túlkun á reglunum og taka ákvarðanir í samræmi við reglurnar. Þá er honum ætlað að sinna kynningu og endurmenntun innanhúss vegna reglnanna. Eftirlit regluvarðarins lýtur ekki einvörðungu að viðskiptum starfsmanna heldur einnig að virkni Kínamúra og viðskiptum fyrirtækisins sjálfs.
FME gerir ríkar kröfur til þess að framkvæmd reglnanna og eftirlit með þeim sé í góðu horfi. Til að stuðla að þessu telur FME að tilnefna þurfi ákveðinn starfsmann sem umsjónaraðila með framkvæmd þeirra. Lagt er til að starfsmaður þessi hafi starfsheitið regluvörður. Á þetta sér fyrirmyndir erlendis, m.a. í Bretlandi (compliance officer). Áfram er lögð áhersla á að stjórnendur og stjórn fjármálafyrirtækis beri ábyrgð á að farið sé að reglunum og hafi eftirlit með þeim. Innri endurskoðun hefur og eftirlitshlutverk með framkvæmd reglnanna eins og annarra reglna sem gilda um starfsemi fjármálafyrirtækja. Þá er mikilvægt að undirstrika að hlutaðeigandi starfsmaður ber ábyrgð á viðskiptum sínum þó hann hafi fengið leyfi regluvarðar, t.d. ef í ljós kemur að hann hafi búið yfir trúnaðarupplýsingum.
38. Regluvörður þarf að hafa hæfileika til að sinna starfi sínu af kostgæfni. Æskilegt er að hann hafi sótt nám og staðist próf í verðbréfaviðskiptum. Til þess að tryggja hlutleysi og sjálfstæði regluvarðar þarf staða hans í stjórnskipuriti fjármálafyrirtækis að vera skýr. M.a. má hann ekki heyra undir yfirmenn þeirra sviða innan fyrirtækisins þar sem verðbréfaviðskipti og ráðgjöf vegna þeirra fer fram.
Ekki er gerð krafa um að regluvörður sé ráðinn af stjórn með svipuðum hætti og innri endurskoðandi. Hins vegar verður að koma skýrt fram í reglunum og starfslýsingum hans að hann sé sjálfstæður í störfum sínum og hvernig það er tryggt. Ljóst er að starfsmaður kann að hafa þetta verkefni að hlutastarfi, einkum í minni fyrirtækjum. Tryggja verður þá að önnur störf hans samræmist vel þessu verkefni. Æskilegt er að innri endurskoðandi hafi eftirlit með starfsemi regluvarðar og hafi því ekki sjálfur verkefnið með höndum. Ekki er þó hægt að gera það að skilyrði. Þá ræðst það af aðstæðum hverju sinni hvort eðlilegt sé að einn regluvörður hafi með höndum eftirlit í samstæðu eða hvort nauðsynlegt sé að skilgreina regluvörð í hverju fyrirtæki innan samstæðu.
6.2 Verksvið.
39. Skilgreina þarf upplýsingagjöf til regluvarðar í hverju fjármálafyrirtæki. Þannig skal tryggt að regluvörður hafi aðgang að öllum upplýsingum sem máli geta skipt í starfi hans sem regluvörður. Sú skylda hvílir á starfsmönnum sem verða þess áskynja að reglurnar séu brotnar að greina regluverði frá því.
40. Regluvörður veitir starfsmönnum heimild til verðbréfaviðskipta eða tekur við tilkynningu um fyrirhuguð viðskipti, sbr. kafla 4.1.3. Hann gengur úr skugga um að öll skilyrði reglnanna séu uppfyllt. Þegar ekki er krafist sérstakrar heimildar eða tilkynningar um fyrirhuguð viðskipti, sbr. kafla 4.2, er regluverði ætlað að hafa eftirlit á grundvelli mánaðarlegra viðskiptayfirlita.
Eftirlit regluvarðar með einstökum viðskiptum ræðst af því hvert ferli viðskipta í viðkomandi fyrirtæki er og því hvort viðkomandi starfsmenn falla að öllu leyti eða hluta undir reglurnar.
41. Viðskiptayfirlit skulu gerð mánaðarlega og innihalda upplýsingar um kaup og sölu verðbréfa, kaupverð eða söluverð, hvenær viðskiptin fóru fram, hver annaðist viðskiptin og hver sé gagnaðilinn í viðskiptunum.
Þessi viðskiptayfirlit ber að gera óháð því hvert ferli viðskiptanna er, sbr. kafla 4.1.3 og 4.2.
42. Regluverði er ætlað að hafa sérstakt eftirlit með viðskiptum starfsmanna með verðbréf sem viðkomandi fjármálafyrirtæki eða aðilar því tengdir eiga hagsmuna að gæta í.
Mikilvægt er að regluvörður hafi yfirsýn yfir stöðutöku fyrirtækisins sjálfs þannig að hann geti lagt mat á hvort viðskipti starfsmanna með sömu verðbréf séu tortryggileg. Ekki er átt við hagsmuni sem eru óverulegir og hafa ekki fjárhagslega þýðingu fyrir fjármálafyrirtækið.
43. Regluvörður hefur vald til að banna viðskipti starfsmanna með ákveðin verðbréf án skýringa eða tímamarka á banninu. Þá er regluverði heimilt að banna tímabundið viðskipti sem tengjast innri greiningu fyrirtækis sem ekki er aðgengileg öðrum viðskiptamönnum.
Ástæða kann að vera til að banna viðskipti með tiltekin verðbréf, t.d. vegna þess að fjármálafyrirtækið sjálft hefur hagsmuna að gæta eða býr yfir trúnaðarupplýsingum og viðskipti starfsmanna því tortryggileg á þeim tíma. Rökstuðningur fyrir synjun kann jafnframt að fela í sér upplýsingar um viðkomandi verðbréf. Heimild til banns á viðskiptum vegna innri greiningar er ætlað að gæta hagsmuna ótengdra viðskiptamanna með því að koma í veg fyrir að starfsmenn nýti sér innri upplýsingar á undan viðskiptamönnum.
44. Regluvörður veitir undanþágur sem heimilt er að veita samkvæmt reglunum og heldur skrá yfir þær.
45. Regluvörður skal halda skrá yfir þá starfsmenn sem fluttir eru yfir Kínamúra og hafa hana til hliðsjónar í eftirliti sínu, sbr. umfjöllun í 2. kafla.
46. Regluvörður skal hafa það verkefni með höndum að taka við kvörtunum frá viðskiptamönnum sem varða meint brot á reglunum, beina þeim í réttan farveg og halda sérstaka kvartanaskrá.
47. Umfjöllun í þessum kafla um verkefni regluvarðar er ekki tæmandi.
7. Viðurlög.
48. Að öðru leyti en greinir í reglunum gilda ákvæði laga nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti, um viðskipti þeirra sem reglurnar taka til.
49. Brot á reglunum um verðbréfaviðskipti geta varðað áminningu eða brottrekstri. Regluvörður skal tilkynna brot til stjórnar sem síðar tilkynnir þau til FME.
50. Ef upp kemst um brot á reglunum, sbr. 4. kafla, skulu viðskiptin ganga til baka. Sé það ekki unnt skal hagnaður af viðskiptunum renna til viðkomandi fjármálafyrirtækis. Viðskipti fjármálafyrirtækisins sem fela í sér brot, sbr. 5. kafla, skulu jafnframt ganga til baka. Sé það ekki unnt skal ráðstafa hagnaðinum í samráði við Fjármálaeftirlitið.
Fjármálafyrirtæki skulu gæta þess að starfsmenn skrifi undir yfirlýsingu þar sem fram kemur að þeir felli sig við viðurlög af þessu tagi.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Lögin taka einnig til viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana, sbr. 2. mgr. 44. gr. laga nr. 113/1996 og 5. mgr. 8. gr. laga nr. 123/1993. Hér á eftir er samheitið fjármálafyrirtæki notað.
- Neðanmálsgrein: 2
- 2Með fjölskyldu er átt við maka starfsmanns, sambúðaraðila eða samvistarmaka og ófjárráða börn.