Ferill 132. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 132  —  132. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um kostnað sveitarfélaga vegna EES.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hvaða kostnaður hefur lagst á sveitarfélögin vegna ákvæða í EES-samningnum?
     2.      Hvaða tekjustofna hafa sveitarfélögin fengið til að mæta þessum kostnaði? Svar óskast sundurliðað eftir verkefnum.


Skriflegt svar óskast.