Ferill 140. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 140 — 140. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um meðferð ályktana Alþingis.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
Hyggst ráðherra leggja fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd ályktana Alþingis á síðustu löggjafarþingum líkt og gert var í skýrslum sem lagðar voru fram á 112. löggjafarþingi um framkvæmd ályktana á tímabilinu 1. janúar 1985 til 20. maí 1989 og á 113., 117. og 118. löggjafarþingi þar sem gerð var grein fyrir framkvæmdum ályktana næstliðinna löggjafarþinga?