Ferill 203. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 213  —  203. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegasamband á Breiðamerkursandi.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hvaða breytingar hafa orðið á strandlínu við Jökulsá á Breiðamerkursandi undanfarin 10 ár?
     2.      Til hvaða aðgerða hefur Vegagerðin gripið á þessu tímabili til að hamla gegn eyðingu lands við brúna yfir Jökulsá?
     3.      Hverjar eru horfur fyrir Jökulsárbrú að mati ráðherra og Vegagerðarinnar?
     4.      Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að tryggja vegasamband á Breiðamerkursandi til frambúðar í ljósi aðstæðna?


Skriflegt svar óskast.