Ferill 257. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 284 — 257. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um notendabúnaðardeild Landssíma Íslands.
Frá Lúðvík Bergvinssyni.
1. Veitti ráðherra Landssímanum heimild til að selja eða afhenda notendabúnaðardeild fyrirtækisins, sem annaðist sölu og þjónustu símkerfa og tengds búnaðar til fyrirtækja, um síðustu áramót? Ef svo var ekki, hver tók ákvörðun um að selja?
2. Hver var velta notendabúnaðardeildar fyrirtækisins á árinu 1999?
3. Telur ráðherra það samræmast lögum nr. 103/1996, um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar, að selja deild út úr fyrirtækinu?