Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 309  —  281. mál.



Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum .

Flm.: Margrét Frímannsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Sigríður Jóhannesdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir.


1. gr.

    Á eftir g-lið 1. mgr. 36. gr. laganna kemur nýr stafliður, svohljóðandi: Sérfræðiþjónustu við börn og unglinga á sviði sálfræði og félagsráðgjafar skv. 37. gr. a.

2. gr.


    Á eftir 37. gr. laganna kemur ný grein, 37. gr. a, svohljóðandi:
    Fyrir sérfræðiþjónustu við börn og unglinga, 18 ára og yngri, á sviði sálfræði og félagsráðgjafar sem veitt er utan sjúkrastofnana og skólakerfis greiða sjúkratryggingar samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur að fengnum tillögum tryggingaráðs. Gjaldskráin gildir bæði um sérfræðiþjónustu sem veitt er af hinu opinbera og öðrum.
    Sérfræðiþjónusta barna og unglinga utan sjúkrastofnana og skólakerfis á sviði sálfræði og félagsráðgjafar er því aðeins greidd að fyrir liggi sérstök umsókn frá heilsugæslulækni eða sérfræðingi á sviði sálfræði, félagsráðgjafar eða sérkennslu.
    Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um framkvæmd sérfræðiþjónustunnar, meðal annars mæla fyrir um hverjir eigi rétt á henni og hverjir veiti hana.
    Reikningi fyrir sérfræðiþjónustu skal framvísað á reikningsformi sem Tryggingastofnun ákveður.
    

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp sama efnis var lagt fram á 125. löggjafarþingi og nokkrum þingum áður en fékkst ekki afgreitt frá heilbrigðis- og trygginganefnd. Nefndinni barst fjöldi umsagna og er frumvarpið nú lagt fram að nýju með nokkrum breytingum sem gerðar voru með hliðsjón af ábendingum sem þar komu fram. En í öllum umsögnum sem bárust var tekið undir efni frumvarpsins.
    Hér er lögð til sú breyting á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, að sérfræðiþjónusta fyrir börn og ungmenni utan sjúkrastofnana og skólakerfisins á sviði sálfræði og félagsráðgjafar verði að hluta greidd úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Gert skal ráð fyrir því að þiggjendur þjónustunnar greiði fyrir ákveðinn hluta hennar, t.d. fasta upphæð fyrir hvert viðtal. Hér er einungis átt við viðurkennda sérfræðiþjónustu. Gert er ráð fyrir að einungis verði greitt fyrir þjónustu réttindafólks á sviði félagsráðgjafar og sálfræði, sbr. lög nr. 40/1976 og lög nr. 95/1990. Einnig verður að gera þá kröfu að einungis verði greitt fyrir þjónustu þeirra sem hafa ákveðna lágmarksreynslu á þessu sviði og má þá m.a. horfa til reglna um veitingu sérfræðileyfa í sálfræði og setja skilyrði um framhaldsmenntun.
    Vaxandi þörf er fyrir slíka sérfræðiþjónustu fyrir börn og ungmenni. Hún er og á að vera fastur liður í starfsemi skólanna. Börn og ungmenni, sem dveljast á sjúkrastofnunum, geta átt kost á sérfræðiþjónustu án þess að þurfa að greiða fyrir hana. Hins vegar skortir mikið á að nægjanlegur fjöldi sérfræðinga á sviði sálfræði- og félagsráðgjafar starfi á heilbrigðisstofnunum svo hægt sé að sinna þessari þjónustu eins og þyrfti. Við breytingu á grunnskólalögum varð breyting á þessari sérfræðiþjónustu innan skólanna. Hlutverk sérfræðinga á sviði sálfræði og félagsráðgjafar við skóla er nú að mestu leyti greiningarstarf en börnum er síðan í mörgum tilvikum vísað annað til meðferðar. Því er staðreynd að fjöldi barna og ungmenna þarf á þessari sérfræðiþjónustu að halda utan skóla og sjúkrastofnana. Komið hafa fram ábendingar frá skólaskrifstofum víða um land um að við breytingu sem gerð var á grunnskólalögunum sé ekki lengur gert ráð fyrir að veita meðferðarþjónustu innan skólakerfisins á sama hátt og áður var. Með þessu er verið að færa hana í auknum mæli út fyrir skólakerfið og kostnaðinn yfir á foreldra. Þá er einnig ljóst að á landsbyggðinni er þjónusta sálfræðinga og félagsráðgjafa ekki til staðar utan skólakerfisins eða sjúkrastofnana nema í undantekningartilvikum. Kostnaðurinn sem leggst á fjölskyldu getur því verið mjög mikill þegar við bætist ferðakostnaður. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hefur margoft bent á nauðsyn þess að börnum, sem lengi hafa átt við erfiða líkamlega sjúkdóma að stríða, standi til boða sérfræðiþjónusta sem greidd verði að fullu eða að hluta úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Félagið hefur einnig bent á að ekki aðeins barnið eða unglingurinn, sem hefur átt við alvarleg veikindi að stríða, þurfi á sérfræðiþjónustu að halda heldur einnig og ekki síður fjölskylda barnsins. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna réð sálfræðing til þess að sinna þessari þjónustu og margar fjölskyldur krabbameinsveikra barna nýta sér hana. Félagið reyndi þannig að bregðast við vanda þessara fjölskyldna. Til lengri tíma litið getur félagið þó ekki staðið eitt undir þjónustunni, enda verður ekki séð að þjóðfélagið geti velt þessu verkefni yfir á félagasamtök.
    Börn og ungmenni, sem hafa mátt þola hvers konar ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þurfa oft um langan tíma á þjónustu sérfræðinga að halda, sem og þau börn og ungmenni sem hafa leiðst út í neyslu fíkniefna. Fleiri ástæður mætti að sjálfsögðu nefna, þörfin fyrir sérfræðiþjónustu við börn og ungmenni eykst stöðugt.
    Í reglugerð skv. 3. mgr. 2. gr. frumvarpsins skal eins og unnt er skilgreina þá sem rétt eiga á þessari þjónustu. Einnig skal í reglugerðinni kveða á um hvernig staðið verði að umsóknum um hana. Þjónusta sálfræðinga og/eða félagsráðgjafa utan skóla eða heilbrigðisstofnana skal aðeins greidd af Tryggingastofnun ríkisins ef sjúklingur framvísar sérstakri umsókn heilsugæslulæknis eða sérfræðings á sviði sálfræði, félagsráðgjafar eða sérkennslu.
    Sveitarfélög hafa í nokkrum tilvikum tekið þátt í kostnaði við sérfræðiþjónustu sálfræðinga og félagsráðgjafa fyrir börn og ungmenni en fá sveitarfélög veita fullkomna þjónustu að þessu leyti. Mjög margar fjölskyldur búa við svo bágan efnahag að þær geta ekki mætt kostnaðinum sem fylgir því að fjölskyldumeðlimur þarf í lengri eða skemmri tíma að nota þjónustu sálfræðings eða félagsráðgjafa. Við slíkt verður ekki unað, allra síst þegar um er að ræða börn eða ungmenni.
    Umsagnir sem bárust heilbrigðis- og trygginganefnd voru eins og áður sagði jákvæðar um efni þessa frumvarps og því er það lagt fram nær óbreytt. Í nokkrum umsögnum var bent á að eðlilegt væri að sérfræðingar á sviði sérkennslu gætu einnig mælt með eða lagt til umsókn um þessa þjónustu. Flutningsmenn hafa tekið tillit til þessara ábendinga.