Ferill 132. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 318  —  132. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur um kostnað sveitarfélaga vegna EES.

1.    Hvaða kostnaður hefur lagst á sveitarfélögin vegna ákvæða í EES-samningnum?
    Ekki hefur með skipulögðum hætti farið fram kostnaðarmat á fjárhagslegum áhrifum EES- samningsins á sveitarfélögin. Slík úttekt væri án efa æskileg en rétt er að taka fram að afar vandasamt er að meta bein fjárhagsleg áhrif EES-samningsins hvað varðar sveitarfélögin sérstaklega. Óhætt er þó að fullyrða að sveitarfélögin hafa orðið fyrir sannanlegum beinum kostnaði vegna samningsins án þess að hægt sé að tiltaka um hversu mikinn kostnað er að ræða. Óbein fjárhagsleg áhrif er að sjálfsögðu enn örðugra að meta.
    Í einhverjum tilvikum kynnu sveitarfélögin að hafa ráðist í framkvæmdir, t.d. á sviði umhverfismála, þó ekki hefðu komið til auknar kröfur með EES-samningnum. Dæmi um þetta eru fráveitumál. Ef til vill væri auðveldara að meta slík áhrif ef aðild Íslands að EES- samningnum hefði í för með sér ný verkefni fyrir sveitarfélögin, en því er ekki til að dreifa, a.m.k. enn sem komið er.
    Þegar EES-samningurinn er skoðaður og reynt að meta á hvaða sviðum samningsins slík fjárhagsleg áhrif á sveitarfélögin liggja beinist athyglin einkum að kafla samningsins og viðaukum er varða umhverfismál, en einnig má nefna ýmsar tilskipanir og reglugerðir sem snerta sveitarfélögin í hlutverki sínu sem atvinnurekendur.
    Fjárhagslegum áhrifum sem hér um ræðir má skipta annars vegar í bein áhrif og hins vegar óbein áhrif.

Bein áhrif.
    Í XX. viðauka EES-samningsins er vísað til gerða á sviði umhverfismála sem fjalla um umhverfismál almennt, vatn, loft, mengun af völdum hættulegra efna, aukið eftirlit með úrgangi og förgun hans og mengun vegna hávaða. Ljóst er að hér gætir umræddra áhrifa mest fyrir sveitarfélögin þar sem þeim eru falin verkefni og skyldur á þessu sviði, t.d. í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

    Hreinsun skolps og fráveitumál.
    Með EES-samningnum voru teknar upp strangari kröfur um hreinsun skolps sem fólu í sér umtalsverða fjárfestingu fyrir sveitarfélögin. Tímarammi var einnig settur og eiga sveitarfélög að vera búin að koma þeim málum í lag ekki síðar en árið 2005.
    Lög nr. 53/1995 kveða á um fjárhagslegan stuðning ríkissjóðs við fráveituframkvæmdir sveitarfélaga sem skal nema allt að 20% af staðfestum heildarkostnaði styrkhæfra framkvæmda. Samkvæmt athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til laganna var ráðgert að heildarkostnaður sveitarfélaga vegna fráveituframkvæmda næmi á bilinu 15 til 20 milljörðum.
    Ítreka verður þó að ekki er hægt með neinni vissu að meta hve stóran hluta af þeim útgjöldum er hægt að yfirfæra á EES-samninginn, en ríkisstjórnin hafði fyrir gildistöku hans boðað þá stefnu í ritinu „Á leið til sjálfbærrar þróunar“ (mars 1993) að unnið skyldi að úrbótum í frárennslismálum.

    Frágangur úrgangs og brennsla.
    Förgun og meðferð úrgangs er meðal þess sem samræmt var með EES-samningnum. Íslenskar reglur gengu skemmra en reglur Evrópusambandsins á þessu sviði og því hefur samningurinn leitt til aukins kostnaðar fyrir sveitarfélögin þar sem þau bera meginhluta kostnaðar við framkvæmd tilskipananna.
    Eins hefur tilskipun um brennslu úrgangs leitt af sér hertar kröfur sem síðar meir munu einkum gera minni brennslustöðvum erfiðara um vik.
    Þá er ljóst að ýmsar gerðir á þessu sviði eru væntanlegar og munu þær leiða af sér kostnað fyrir sveitarfélög og stofnanir þeirra. Í skýrslu utanríkisráðherra um stöðu Íslands í Evrópusamstarfi segir: „Margar þessara gerða koma til með að hafa umtalsverð áhrif hér á landi og kemur þá til kasta Alþingis að skapa viðeigandi lagaramma.“

Óbein áhrif.
    Þá hefur EES-samningurinn enn fremur leitt af sér ýmis óbein fjárhagsleg áhrif fyrir sveitarfélögin. Einkum lýtur það að eftirliti og upplýsingagjöf á sviði umhverfismála, en einstakar tilskipanir á sviði vinnu- og jafnréttismála geta ótvírætt einnig haft í för með sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélögin varðandi starfsmannamál o.fl.
    Hlutverk sveitarfélaga vegna heilbrigðiseftirlits hefur aukist verulega vegna margvíslegra tilskipana og reglugerða Evrópusambandsins. Kröfur til mælinga og mælingatíðni hafa t.d. aukist verulega og er það bein afleiðing af tilskipunum EES-samningsins.
    Þetta á m.a. við um eftirlit með drykkjarvatni og í ofangreindri skýrslu utanríkisráðherra segir: „Með EES-samningnum voru teknar upp ítarlegri og strangari reglur um vatnsmengun.“
    Á sviði vinnumála og jafnréttismála hafa ýmsar tilskipanir verið lögteknar hér á landi sem munu hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélögin líkt og aðra vinnuveitendur hér á landi, þ.m.t. ríkissjóð. Þetta gildir t.d. um tilskipanir um vinnutíma og foreldraorlof.

Niðurstaða.
    Ljóst er að ofangreind atriði eru ekki tæmandi listi heldur aðeins ábending um að fjárhagslegar afleiðingar fyrir sveitarfélögin og stofnanir þeirra, einkum heilbrigðiseftirlit, hafa aukist nokkuð án þess að hægt sé að greina þau áhrif nákvæmlega.

2.    Hvaða tekjustofna hafa sveitarfélögin fengið til að mæta þessum kostnaði? Svar óskast sundurliðað eftir verkefnum.
    Sveitarfélögum hafa ekki verið markaðir sérstakir tekjustofnar til að mæta þessum aukna kostnaði vegna EES-samningsins.
    Sveitarfélög geta þó fengið endurgreidd allt að 20% af kostnaði vegna fráveitna og yfirlit yfir þær endurgreiðslur voru tíundaðar í svari umhverfisráðherra við fyrirspurn Helgu Halldórsdóttur um framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum (þskj. 593, 340. mál á 125. löggjafarþingi).
    Eins hafa sveitarfélög heimildir til gjaldtöku t.d. á sviði heilbrigðiseftirlits og varðandi holræsi, sbr. vatnalög, nr. 15/1923.
    Eins og kunnugt er skilaði nefnd um tekjustofna sveitarfélaga tillögum sínum á dögunum og þær miða að því að gera sveitarfélögum kleift að standa undir lögboðnum verkefnum. Þar með eru taldar skyldur sveitarfélaga sem rekja má til EES-samningsins.
    Tekjustofnanefndin lagði einnig til að öll lagafrumvörp og stjórnvaldsákvarðanir verði kostnaðarmetin gagnvart sveitarfélögum. Það tæki einnig til tilskipana EES-samningsins og skapaði betri forsendur til að meta fjárhagsleg áhrif þeirra á sveitarfélögin. Ég hef þegar óskað eftir því að fjármálaráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefni fulltrúa í starfshóp sem koma á fram með tillögur um framkvæmd og fyrirkomulag slíks kostnaðarmats, hver skuli framkvæma það og hvernig skuli fara með ágreining sem upp kann að koma.