Ferill 31. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 338  —  31. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um skattgreiðslur útgerðarfyrirtækja.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
1.      Hve mörg af 20 kvótahæstu útgerðarfyrirtækjunum greiddu skatt á síðasta ári, sundurliðað eftir tekju-, eigna- og fjármagnstekjuskatti vegna áranna 1998 og 1999?
2.      Hver var hagnaður eða tap þessara fyrirtækja á þessum árum, sundurliðað eftir árum, og hve háar voru bókfærðar eignir þeirra?


    Ráðuneytið leitaði til embættis ríkisskattstjóra um svör við fyrirspurninni. Upplýsingar embættisins er að finna í meðfylgjandi töflum.
    Í bréfi ríkisskattstjóra kemur fram að töflurnar taki til álagningar 1999 og 2000 vegna rekstraráranna 1998 og 1999. Hinar tilgreindu fjárhæðir eru álögð gjöld en ekki greidd. Rekstur hjá mörgum félaganna felst bæði í veiðum og vinnslu. Söluhagnaður eða sölutap eigna getur einnig verið innifalið í afkomutölum félaganna.
    Slegið er saman upplýsingum frá 20 kvótahæstu félögunum, síðan koma upplýsingar um þau 10 sem eru með næstmesta kvótann o.s.frv. Jafnframt fylgja sömu upplýsingar um 10 kvótahæstu einstaklingana. Algengt er að ekki sé um álagningu tekjuskatts að ræða þrátt fyrir mikinn hagnað og skýrist það oftast af yfirfæranlegu tapi. Ekki liggja fyrir upplýsingar úr ársreikningum allra félaganna. Í einhverjum tilvikum er um áætlun opinberra gjalda að ræða. Í a.m.k. einu dæmi er einstaklingur sem skráður er fyrir kvóta í samrekstri með öðrum einstaklingi sem ekki er skráður fyrir kvóta. Í því tilviki er tekjuskattur sem tilgreindur er aðeins hluti álagðs tekjuskatts á útgerðina.
    Byggt er á upplýsingum frá Fiskistofu um kvóta. Miðað er við kvótastöðu eins og hún var 1. september 1999 fyrir rekstrarárin 1998 og 1999. Fiskistofa hefur eftirfarandi fyrirvara um gögn um kvótaeign:
1.      Aflahlutdeild í veiðum utan lögsögu er ekki tekin með.
2.      Miðað er við skráða eigendur (ekki útgerðaraðila) fiskiskipa samkvæmt skrá Siglingastofnunar 1. september 1999. Ekki er tekið tillit til breytinga sem gerðar hafa verið eftir þann tíma. Settur skal sá fyrirvari að ekki er öruggt að breytingar sem gerðar eru rétt fyrir viðkomandi dag séu komnar inn í skrána.
3.      Listinn er reiknaður upp eftir þorskígildisstuðlum liðins fiskveiðiárs (1999/2000).
4.      Aflaheimildir krókabáta eru ekki teknar með.
5.      Þegar gefnar eru upplýsingar í þorskígildum er um að ræða úthlutað aflamark en ekki aflahlutdeild.


Skattar, eignir, hagnaður og tap fyrirtækja með kvóta 1998 miðað við kvótastöðu 2000, í þús. kr.



Fyrirtæki



Þorskígildi, kg


Tekjuskattur
Tekjuskattsgreiðendur

Eignarskattur
Eignarskatts- greiðendur
Sérstakur eignarskattur

Hagnaður samkvæmt
ársreikningi
Fyrirtæki með hagnað
Tap samkvæmt ársreikningi
Fyrirtæki með tap

Eigið fé jákvætt


Eigið fé neikvætt


Eignir samtals
Uppl. úr ársreikn. vantar
1-20 185.017.796 82.878 2 45.667 12 9.514 2.749.235 16 -457.251 4 29.628.855 0 88.111.111 0
20-30 31.688.671 93.001 15.089 3.144 203.277 -395.834 2.174.646 -45.627 10.679.913 1
30-40 21.795.889 7.126 4.300 896 142.687 -107.194 1.364.224 0 7.587.514 0
40-50 17.343.053 0 8.202 1.709 265.386 -473.451 1.855.540 -282.147 9.392.267 0
50-60 13.788.474 8.088 2.902 604 128.725 -534.931 1.528.028 -4.212 8.183.248 0
60-70 10.837.988 32.890 3.483 726 132.731 -2.299 395.862. -35.010 2.093.652 1
70-80 9.616.120 23.548 2.612 544 70.039 -107.060 752.502 -138.596 4.529.011 0
80-90 8.018.809 6.874 2.115 441 129.357 -39.514 1.086.669 -7.025 4.299.716 1
90-100 6.450.497 6.060 1.993 415 266.203 -217.362 354.252 -257.707 2.467.742 0
100-110 5.527.163 7.614 1.028 214 32.091 -19.671 226.427 -50.373 1.760.292 0
110-120 4.643.108 5.024 2.092 436 36.274 -53.981 687.138 -67.802 2.358.300 0
120-130 3.783.430 1.721 1.493 311 7.619 -37.527 163.323 -39.210 849.762 0
130-140 3.309.209 4.038 796 166 23.039 -65.042 669.580 -56.679 2.119.042 1
140-150 2.780.095 2.676 1.425 297 47.106 -6.713 215.257 -1.978 526.736 0
150-160 2.306.163 10.846 726 151 23.606 -56.655 224.820 -4.559 798.594 0
160-170 1.897.653 2.212 817 170 48.735 -61.068 229.435 -55.363 844.825 0
170-180 1.497.707 3.529 1.207 251 21.253 -36.814 164.458 -24.970 636.075 1
180-190 1.148.165 1.207 465 97 25.792 -8.577 59.718 -28.337 271.268 1
190-200 865.100 1.668 1.624 338 60.630 -25.138 258.140 -6.601 665.202 1
200-210 662.557 2.981 194 40 9.916 -4.237 15.775 -13.988 142.892 2
210-220 516.426 494 84 17 65.561 -33.194 19.729 -247.863 583.078 0
220-230 297.838 3.338 8 2 9.047 -16.950 27.922 -45.839 1.035.364 1
230-240 33.329 595 448 93 138 -36.887 49.757 -53.471 282.825 3
240-250 8.983 575 25 5 10.842 -1.065 1.811 -16.578 158.723 3
250-260 1.088 377 6 1 46.650 -31.490 494.485 -33.357 2.036.111 4
260-266 33 173 0 0 0 -16.680 585 -52.076 165.797 2
Samtals: 333.835.344 309.534 71 98.800 116 20.583 4.555.940 16 -2.846.584 4 42.648.939 -1.569.367 152.579.059     22
10 kvótahæstu einstaklingarnir


8.201.221



37.153



1.017



83



129.629



-62.655



717.833



-214.245



2.204.710



0


Skattar, eignir, hagnaður og tap fyrirtækja með kvóta 1999 miðað við kvótastöðu 2000, í þús. kr.




Fyrirtæki



Þorskígildi, kg


Tekjuskattur
Tekjuskattsgreiðendur

Eignarskattur
Eignarskatts- greiðendur
Sérstakur eignarskattur

Hagnaður samkvæmt ársreikningi
Fyrirtæki með hagnað
Tap samkvæmt ársreikningi
Fyrirtæki með tap

Eigið fé jákvætt


Eigið fé neikvætt


Eignir samtals
Uppl. úr ársreikn. vantar
1-20 185.017.796 93.251 3 33.058 8 6.887 3.014.707 10 -2.143.080 4 32.313.322 0 102.714.660
20-30 30.395.431 76.324 17.145 3.572 340.453 -196.612 2.553.403 0 10.378.790 3
30-40 21.346.090 4.923 4.135 862 268.560 -253.519 1.180.760 -163.554 6.675.223 1
40-50 16.939.082 0 8.142 1.696 169.206 -611.530 2.053.303 -180.277 8.952.871 1
50-60 13.365.983 6.135 5.070 1.056 48.296 -558.580 557.233 -246.479 3.796.774 2
60-70 10.707.331 34.427 2.414 503 137.267 -91.767 441.316 -15.019 3.070.559 0
70-80 9.487.476 0 2.242 467 38.397 -327.916 547.012 -254.263 4.400.444 1
80-90 7.730.925 5.084 1.495 312 46.737 -152.717 860.951 -9.001 4.022.674 1
90-100 6.160.304 1.552 277 58 22.319 -70.898 220.295 -213.631 2.026.360 2
100-110 5.470.762 8.986 927 193 50.432 -66.682 191.562 -40.141 1.895.732 0
110-120 4.523.217 9.508 4.487 935 141.651 -6.681 899.438 -67.373 2.424.059 0
120-130 3.725.201 1.268 1.432 298 21.284 -21.146 97.018 -45.832 525.816 4
130-140 3.261.027 2.722 1.058 220 53.083 -195.142 675.774 -167.335 1.797.285 1
140-150 2.780.095 8.101 1.366 285 24.445 -9.440 203.581 0 572.925 1
150-160 2.306.163 2.960 564 117 25.309 -16.954 98.888 -51.344 515.658 2
160-170 1.897.653 4.231 3.448 718 238.536 -59.492 452.476 -74.386 1.025.423 2
170-180 1.483.369 6.563 1.469 306 39.956 -3.425 293.734 -27.222 772.149 1
180-190 1.100.647 20.623 1.352 282 86.915 -32.794 123.640 -24.662 746.290 1
190-200 842.148 8.874 1.170 244 41.072 -16.942 194.057 0 604.773 2
200-210 646.327 2.588 218 45 5.538 -448 24.579 -1.133 71.110 4
210-220 505.250 4.728 284 59 37.926 -13.088 58.464 -20.156 453.901 2
220-230 260.086 1.585 12 3 48.446 -20.611 46.103 -45.810 1.174.674 0
230-240 33.329 4.719 405 84 10.502 0 24.900 -19.603 146.058 6
240-250 9.652 1.494 162 34 12.960 -10.753 5.982 -20.490 163.308 6
250-260 1.861 3.888 335 70 0 -128.557 375.817 -7.304 2.117.854 7
260-271 317 665 87 18 0 -22.360 0 -30.819 79.560 7
Samtals 329.997.522 315.199 99 92.756 130 19.324 4.923.997 140 -5.031.133 76 44.496.609 -1.725.833 161.124.932 57
10 kvótahæstu einstaklingarnir


8.201.221



16.382






1.106



87



107.699



-34.004



723.202



-187.023



2.158.811



0