Ferill 307. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 359  —  307. mál.




Fyrirspurn



til dóms- og kirkjumálaráðherra um Jöfnunarsjóð sókna.

Frá Ástu Möller.



     1.      Hversu mikið fé hefur runnið til Jöfnunarsjóðs sókna árin 1987–2000, sbr. II. kafla laga um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987?
     2.      Hvernig hefur fjármunum sjóðsins verið varið árin 1987–2000?



Skriflegt svar óskast.