Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 378  —  315. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um úrskurð um vega- og brúarframkvæmdir í Fljótsdal.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hverju sætir sú seinkun sem orðið hefur á úrskurði ráðherra um vegarstæði og brúargerð í Fljótsdal?
     2.      Hvaða fordæmi telur ráðherra að þessi seinkun geti haft á tímasetningar í vinnuferli annarra framkvæmda sem fara í mat á umhverfisáhrifum?
     3.      Hvaða úrræði telur ráðherra að verði að koma til svo að ekki verði tafir af þessu tagi á matsferli framkvæmda?