Ferill 194. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 390 — 194. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. breyt. á l. nr. 110/1999, um Póst- og fjarskiptastofnun.
Frá meiri hluta samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttir frá samgönguráðuneytinu, Pál Ásgrímsson frá Landssímanum hf. og Þórólf Árnason frá Tali hf.
Markmið frumvarpsins er að afla lagaheimildar til gjaldtöku vegna þriðja GSM 900 leyfisins. Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að með þessu skuli gætt jafnræðis gagnvart þeim sem þegar hafa fengið slíkt rekstrarleyfi og þurftu á sínum tíma að greiða samsvarandi upphæð fyrir það.
Þá er tekið fram í athugasemdum við frumvarpið að gjaldtakan sem lögð er þar til sé alveg óháð umræðu um þriðju kynslóðar farsíma og verðmæti tíðnirása.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
Lagt er til að í stað þess að bæta nýrri málsgrein við 11. gr. laganna verði kveðið á um gjaldtökuna í bráðabirgðaákvæði. Rökin eru að þegar leyfið hefur verið veitt og gjaldið innheimt verður gjaldtökuheimildin óþörf. Jafnframt eru gerðar lítils háttar breytingar á orðalagi ákvæðisins.
Jón Bjarnason skrifar undir álitið með fyrirvara. Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 30. nóv. 2000.
Árni Johnsen,
form., frsm.
Arnbjörg Sveinsdóttir.
Guðmundur Hallvarðsson.
Jón Kristjánsson.
Hjálmar Árnason.
Jón Bjarnason,
með fyrirvara.