Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 404 — 296. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Soffíu Gísladóttur um skýrslu vinnuhóps um nám í landsbyggðarlækningum og -hjúkrun.
1. Hafa umsagnir um skýrslu vinnuhóps um nám í landsbyggðarlækningum og -hjúkrun borist landlækni? Ef svo er, hver er staða málsins og hver er stefna ráðherra í málinu?
Samkvæmt nýjum upplýsingum hafa ekki borist umsagnir allra þeirra aðila sem fengu til umsagnar „Nám í landsbyggðarlækningum/-hjúkrun. Fyrstu tillögur vinnuhóps“. Landlæknir hefur því ekki sent umsagnirnar til vinnuhópsins til frekari umfjöllunar og úrvinnslu.
Ráðherra telur eðlilegt að bíða frekari tillagna vinnuhópsins sem landlæknir hafði frumkvæði að því að skipa. Ljóst er að ýmsar þær aðgerðir munu krefjast fjárveitinga, lagabreytinga og reglugerðabreytinga, auk þess sem fleiri ráðuneyti kæmu að málinu.
2. Hefur verið gerð viðhorfskönnun meðal læknanema og unglækna um afstöðu þeirra til heimilislækninga og starfa í dreifbýli samkvæmt tillögu vinnuhópsins? Ef svo er, hver er niðurstaða hennar?
Í ofangreindum fyrstu tillögum vinnuhópsins er lagt til að landlæknisembættið láti gera könnun á því hvers vegna störf að heimilislækningum og í dreifbýli vekja ekki áhuga þeirra lækna sem velja sér þá sérgrein.
Þar eð landlæknir hefur ekki fengið svör allra umsagnaraðila hefur þessi þáttur tillagnanna ekki verið framkvæmdur enn sem komið er. Vænst er síðustu svara umsagnaraðila fljótlega.