Ferill 321. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 406 — 321. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um nýtingu sláturúrgangs í dýrafóður.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Hvernig er háttað eftirliti með framleiðslu kjötmjöls í landinu?
2. Telur ráðherra koma til greina að breyta reglugerð nr. 660/2000, um meðferð og nýtingu á sláturúrgangi og dýraúrgangi, þannig að kjötmjöl verði ekki notað í fóður fyrir eldisfiska eða skepnur sem ætlaðar eru til manneldis, svo sem alifugla og svín?