Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 423  —  156. mál.




Breytingartillaga



við frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2000.

Frá Jóni Bjarnasyni, Steingrími J. Sigfússyni og Þuríði Backman.



    Við 4. gr.
    a.    Liður 4.36 orðist svo: Að selja eignarhluta Skógræktar ríkisins í jörðinni Straumi í Hafnarfirði að hluta eða í heild og verja söluandvirðinu í þágu Skógræktar ríkisins.
    b.    Liður 4.37 falli brott.