Ferill 349. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 497 — 349. mál.
Frumvarp til laga
um rétt íslensks ríkisborgara til fiskveiða á eigin bát minni en 30 brl.
Flm.: Guðjón A. Kristjánsson.
1. gr.
Um rétt íslensks ríkisborgara til fiskveiða á eigin bát minni en 30 brl.
1. Hann skal hafa atvinnuréttindi sem skipstjóri á fiskiskipi og hafa stundað fiskveiðar sem aðalstarf í a.m.k. fimm ár eftir 15 ára aldur. Námstími við réttindanám í sjómannaskólum jafngildir starfi.
2. Skipið skal hafa fullgilt haffærisvottorð og almennt veiðileyfi útgefið af Fiskistofu.
Á hverju fiskveiðiári á sami maður rétt til 30 sóknardaga einu sinni á sama fiskiskip. Þótt skipið sé selt skapast ekki nýr veiðiréttur á sama fiskveiðiári. Sóknardagar teljast í klukkustundum, samtals 720 klst. Stunda má þessar veiðar á tímabilinu 15. mars til 15. nóvember ár hvert með tveimur sjálfvirkum handfæravindum.
Allar veiðar sjávardýra sem ekki eru takmarkaðar eru þeim frjálsar sem fengið hafa útgefið almennt veiðileyfi.
2. gr.
Um rétt manna til að gera fiskveiðar að heilsársstarfi.
3. gr.
Greinargerð.
Í mörg ár hafa staðið deilur um að fiskveiðiauðlindin hafi verið færð á eignarhönd fárra, þeirra sem voru hér í útgerð á ákveðnu tímabili og stunduðu fiskveiðar. Þannig má segja að rétturinn til fiskveiða hafi verið lokaður og aðeins verið hægt fyrir duglega fiskimenn að gerast leiguliðar annarra sem réttindin til fiskveiða fengu eða kaupa hann af þeim sem selja vildi. Lengst af hefur sá aðgangur verið seldur á okurverði og allt gert af útgerðarmanna hálfu til þess að halda við því okurverði. Þannig hafa verið sýnd verðmæti sem bankar og fjárfestar hafa lánað út á eða fjárfest í.
Hver sú atvinnugrein sem um langan tíma er lokuð nýliðum ber aðeins í sér feigð. Þeir sem hafa kjark og dug til þess að sýna getu sína verða að fá að komast að. Þeim einstaklingum sem hæfileika hafa til fiskveiða og útgerðar er með þessu frumvarpi opnuð leið til þess að sýna hæfni sína og jafnframt er 25 ára starfsreynsla ávísun á fiskveiðirétt. Rétt er að ítreka að þessi einstaklingsréttur er ekki söluvara, gefur aðeins arð svo framarlega sem viðkomandi stundar fiskveiðar. Það er skoðun flutningsmanns að það væri mikið gæfuspor að opna nýliðum leið inn í þann lokaða sérhagsmunaklúbb sem útgerðin er orðin.
Þeir sem safnað hafa til sín miklum fiskveiðikvótum frá hverri sjávarbyggðinni á fætur annarri hafa valdið fólki þar miklum búsifjum. Ýmsir mega vissulega horfast í augu við það að veiðiréttur sá sem þeir hafa hrifsað til sín verður smátt og smátt færður aftur til þeirra sem hafa sjálfir kraft til þess að sýna hæfni sína til fiskveiða.
Að stórum hluta hefur uppsöfnun kvótans verið greidd af þjóðinni með kaupum á uppsöfnuðu tapi, en ekki þeim sem nú eru fyrir veiðiréttindunum skráðir.
Það er vissulega kominn tími til þess að snúa frá einstefnuþróun stórrekstrar í fiskveiðum og setja einstaklingsframtak og frelsi á ný í öndvegi.