Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 499  —  75. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um landmælingar og kortagerð, nr. 95/1997, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta umhverfisnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Magnús Jóhannesson, Sigríði Auði Arnardóttur og Ingimar Sigurðsson frá umhverfisráðuneytinu, Magnús Guðmundsson frá Landmælingum Íslands og Jón Gunnar Ottósson frá Náttúrufræðistofnun Íslands.
    Umsagnir um málið bárust nefndinni frá LÍSU, samtökum um landupplýsingar á Íslandi fyrir alla.
    Einnig ákvað nefndin að notast við umsagnir frá 125. löggjafarþingi en þá bárust umsagnir frá Landmælingum Íslands, Landsvirkjun, Landgræðslu ríkisins, Arkitektafélagi Íslands, Landmati, raunvísindadeild Háskóla Íslands, Náttúruverndarráði, Skipulagsstofnun, Fasteignamati ríkisins og Náttúrufræðistofnun Íslands.
    Í frumvarpinu er lagt til að þriggja manna stjórn Landmælinga Íslands verði lögð niður. Er sú breyting í samræmi við stefnu umhverfisráðuneytisins um að forstjórum stofnana, sem heyra undir ráðuneytið, verði falin sú ábyrgð sem stjórnir viðkomandi stofnana höfðu áður. Þá er að finna nýmæli um verkefni Landmælinga Íslands. Í fyrsta lagi er lagt til að eitt af verkefnum hennar verði fjarkönnun sem felst í öflun, úrvinnslu og miðlun gagna á sviði loft- og gervitunglamynda. Verkefnið fékk fjárveitingu í fjárlögum fyrir árið 2000 og er það nú þegar hafið. Í öðru lagi er lagt til að Landmælingar Íslands annist skráningu og miðlun upplýsinga um landfræðileg gagnasöfn af Íslandi sem séu í eign íslenska ríkisins. Er það skilningur meiri hluta nefndarinnar að ekki sé ætlunin að Landmælingar Íslands taki yfir þau gögn sem nú þegar er að finna hjá öðrum aðilum heldur skuli stofnunin eingöngu halda utan um gagnagrunn þessara upplýsinga. Þá er Landmælingum Íslands falið að miðla upplýsingum um örnefni í samráði við Örnefnastofnun Íslands en áður var eingöngu kveðið á um kortlagningu stofnunarinnar á þessum upplýsingum. Einnig er lagt til að ráðherra setji reglugerð um vottun þeirra mælingamanna sem sjá eiga um mælingar eignamarka landa og lóða til að tryggja að þeir uppfylli ákveðnar hæfniskröfur, auk ákvæða um réttindi þeirra og skyldur. Þá skal kveðið á um í reglugerðinni að Landmælingar Íslands fari með eftirlit með vottuninni og störfum mælingamannanna í umboði ráðherra. Loks eru fjármögnunarheimildir Landmælinga Íslands gerðar skýrari og lagðar til breytingar í þeim efnum til að styrkja starfsemi stofnunarinnar.
    Nefndinni bárust ábendingar um gjaldskrá Landmælinga Íslands. Telur meiri hluti nefndarinnar ljóst að verðlagning Landmælinga Íslands vegna gagna sem lúta höfundarétti ríkisins þarf að vera sanngjörn og í samræmi við markaðinn svo að viðskiptavinir stofnunarinnar geti nýtt sér þjónustu hennar.
    Að lokum bendir meiri hlutinn á að þörf er á heildrænni stefnu vegna aðgangs almennings að upplýsingum í eigu ríkisins þar sem hugað verði að því hvort rétt sé að taka gjöld vegna slíks eða almenningur eigi rétt á ótakmörkuðum aðgangi sér að kostnaðarlausu.
    Leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 12. des. 2000.



Ólafur Örn Haraldsson,


form.


Kristján Pálsson,


frsm.

Ásta Möller.



Katrín Fjeldsted.


Gunnar Birgisson.


Jónas Hallgrímsson.



Kolbrún Halldórsdóttir,


með fyrirvara.