Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 501  —  323. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Arnbjargar Sveinsdóttur um rannsóknir á sviði ferðaþjónustu.

     1.      Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar á sviði ferðaþjónustu á vegum háskóla- og rannsóknastofnana?
    Ferðamálasetur Íslands.
    Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri starfrækja sameiginlega Ferðamálasetur Íslands á Akureyri. Ferðamálasetrið er miðstöð rannsókna, fræðslu og samstarfs í greinum sem tengjast ferðamálum.
    Markmið Ferðamálaseturs Íslands eru:
     a.      að efla og samhæfa rannsóknir í ferðamálum á Íslandi;
     b.      að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði ferðamála;
     c.      að gefa út fræðirit og kynna niðurstöður rannsókna í ferðamálafræðum;
     d.      að veita upplýsingar og ráðgjöf í ferðamálafræðum;
     e.      að gangast fyrir námskeiðum, ráðstefnum og fyrirlestrum í ferðamálafræðum.
    Í stjórn Ferðamálaseturs Íslands sitja tveir fulltrúar hvors háskóla auk fulltrúa Ferðamálaráðs, Samtaka ferðaþjónustunnar og Hólaskóla.

    Nám í ferðamálafræði á háskólastigi.
    Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri bjóða upp á nám í ferðamálafræðum á háskólastigi.
    Árið 1998 hófst nám í ferðamálafræðum í raunvísindadeild innan jarð- og landfræðiskorar. Um er að ræða hagnýtt 45 eininga nám sem endar með diplóma. Í undirbúningi er nám í ferðamálafræðum til B.Sc.-gráðu. Einnig er hægt að velja ferðamálafræði sem aukagrein með allmörgum öðrum greinum, utan sem innan raunvísindadeildar.
    Háskólinn á Akureyri býður einnig upp á nám á ferðaþjónustusviði við rekstrarbraut og var kennt í fyrsta sinn við deildina háskólaárið 1998–1999. Um að ræða þriggja ára nám til B.Sc.gráðu. Samstarf er við Hólaskóla og einnig verður samstarf við fyrirtæki í atvinnugreininni um framkvæmd námsins.
    Þar sem ferðamálafræðin er ný grein á háskólastigi er verið að byggja upp rannsóknir innan skólanna. Þrátt fyrir að hér sé um að ræða mjög unga námsgrein á háskólastigi er nú þegar unnið að mörgum áhugaverðum verkefnum innan beggja skólanna. Oft er um samvinnuverkefni að ræða með stofnunum eða öðrum aðilum utan skólanna. Eftirfarandi eru dæmi um verkefni á sviði ferðaþjónustu sem verið er að vinna að eða er nýlokið. Nokkur verkefni eru í undirbúningi.

    Rannsóknarverkefni háskólastofnana.
     Þolmörk ferðamennsku á Íslandi (2000).
    Sumarið 2000 verða eftirfarandi þrjú rannsóknarsvæði athuguð: Landmannalaugar, Skaftafell og Lónsöræfi. Undirbúningur rannsóknarinnar hófst með hönnun spurningalista og viðtölum við ferðamenn. Einnig voru skoðuð gróðurkort og loftmyndir af svæðinu til að velja göngustíga og gróðurlendi sem henta til rannsókna. Síðan hefst úrvinnsla og niðurstöður skoðaðar með hliðsjón af kenningum í ferðamálafræðum og vistfræði. Jaðvegssýni verða meðhöndluð og efnagreind á tilraunastofu. Niðurstöður þessara þátta verða fluttar í landfræðilegan gagnagrunn þar sem hægt er að skoða staðbundið samspil þeirra þátta sem hafa áhrif á þolmörk ferðamennsku. (Verkefnið er unnið á vegum Háskóla Íslands.)

     „Coping strategies and regional policies – Social capital in the Nordic countries“ (2000–2001).
    Rannsóknarverkefni er í undirbúningi um atvinnulíf á landsbyggðinni sem tengist ferðaþjónustu. Verkefnið nefnist „Coping strategies and regional policies – Social capital in the Nordic countries“ og er fjármagnað af norrænu byggðarannsóknastofnuninni Nordregio. Rannsakað verður með ítarlegum athugunum á tilteknum dæmum hvernig fyrirtæki, frumkvöðlar, ríkisvald, stofnanir og sveitarfélög geta best unnið saman til þess að efla nýsköpun. Á Íslandi verða meðal annars tekin dæmi úr ferðaþjónustunni. Um er að ræða þverfaglegt verkefni sem landfræðingar og mannfræðingar eiga hlut að. (Verkefnið er unnið á vegum Háskóla Íslands.)

     Hagsmunir tengdir ferðamennsku norðan Vatnajökuls (1999–2000).
    Hér er um að ræða tvær meginspurningar, annars vegar hverjir eru hagsmunir ferðamennsku á hálendinu norðan Vatnajökuls og hins vegar hvort hagsmunir ferðamennsku fari saman við hagsmuni náttúruverndar og virkjana. Vegna þess að nokkuð skortir á að rannsóknir hafi verið unnar sem varpa skýru ljósi á þetta álitamál er farin sú leið að greina frá því sem rannsakað hefur verið hérlendis og þeim hugmyndum sem erlendir fræðimenn hafa sett fram og gætu gagnast umfjöllun um þetta efni. Greint er frá aðferðum sem hægt væri að beita við mat á hagsmunum ferðamennsku, taldir eru upp helstu kostir sem í stöðunni eru og óvissuþættir hvers þeirra. Í framhaldi af því eru settar fram rannsóknartillögur. (Háskóli Íslands fyrir Ferðamálaráð Íslands.)
    
    Ferðaþjónusta í byggðarlögum við sjávarsíðuna (2000).

    Greining á styrkleikum, veikleikum, tækifærum og ógnunum (SVÓT) ferðaþjónustu í sjávarbyggðum á Íslandi. Unnið fyrir þróunarsvið Byggðastofnunar sem hluti umfangsmeiri úttektar á stöðu sjávarbyggðanna. (Háskóli Íslands fyrir þróunarsvið Byggðastofnunar).
    
    ,,Ósnortin víðerni“, ferðamennska og miðhálendi Íslands (2000).

    Landfræðingar við Háskóla Íslands hafa að undanförnu skoðað þýðingu „ósnortinna víðerna“ fyrir ferðamennsku. Fjallað er á gagnrýninn hátt um markaðssetningu „ósnortinna víðerna“ og þá hugmyndafræði sem í hugtakinu felst. (Unnið á vegum Háskóla Íslands.)
    
     Almenningssamgöngur með áætlunarbílum á landsbyggðinni (1999).
    (Háskóli Íslands, unnið fyrir samgönguráðuneytið og Vegagerðina.)
    
    Áhrif virkjana norðan Vatnajökuls á ferðamennsku (1998).

    Rannsókn á áhrifum virkjunar jökulánna norðan Vatnajökuls, þ.e. Jökulsár á Fjöllum, Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal, á ferðamennsku. Fyrri hluti skýrslunnar fjallar því um áhrif virkjana á ferðamennsku almennt og þá aðferðafræði sem liggur að baki rannsóknum á efninu. Í síðari hluta skýrslunnar er skýrt frá niðurstöðum kannana sem gerðar voru á ferðamennsku á hálendinu norðan Vatnajökuls og á ferðavenjum Íslendinga. (Háskóli Íslands, unnið fyrir Landsvirkjun og iðnaðarráðuneytið.)

     Visthæf ferðamennska á Norðurlöndunum (1995–1998).
    Í verkefninu er fjallað um þróun visthæfrar ferðamennsku á Norðurlöndunum (Ecoturism i Norden). Ýmsar tegundir náttúruferðamennsku eru metnar út frá ákveðnum viðmiðunum sem settar hafa verið fram af alþjóðlegum stofnunum. Skoðaðar eru meðal annars hestaferðir, gönguferðir, bátabröltsferðir (river rafting) og hvalaskoðunarferðir og möguleikar þeirra metnir til þess að uppfylla ströngustu skilyrði sem gerð eru til visthæfra ferða. Unnið fyrir norrænu embættismannanefndina – Natur og friluftslivsgruppen. (Háskóli Íslands og norrænir samstarfsaðilar.)

    Rannsókn á innanlandsflugi (2000).
    Rannsókn fyrir flugmálastjórn á innanlandsflugi. Skilgreina leiðir og aðferðir til að byggja upp líkan af flutningum í lofti innan lands, einkum farþegaflutningum. (Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri og Ferðamálasetur Íslands fyrir Flugmálastjórn.)

    Verkefni í ferðaþjónustu (1999).
    Markmið verkefnisins er að styrkja rannsóknarverkefni í ferðaþjónustu við Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, m.a. að sinna skipulegum rannsóknum á sviði ferðaþjónustu, einkum því sem snýr að rekstri og rekstrarumhverfi fyrirtækja í greininni, viðhorfi ferðamanna og starfsfólks í ferðaþjónustu og afþreyingu fyrir ferðafólk. Markmiðið er að byggja upp gagnabanka um ferðaþjónustu í samvinnu við Ferðamálaráð. Stefnt er að því að gagnabanki þessi verði aðgengilegur öllum þeim sem starfa í ferðaþjónustu eða vinna að rannsóknum á því sviði. (Háskólinn á Akureyri fyrir samgönguráðuneytið).

     Byggðastefna til nýrrar aldar (1998).
    Fjallað er um búsetukjör, mennta- og menningarmál, atvinnuskilyrði, samgöngu- og ferðamál, upplýsinga- og fjarskiptatækni og heilbrigðismál. Á þeim grundvelli eru mótaðar tillögur um aðgerðir í byggðamálum til næstu fjögurra ára. (Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri fyrir Byggðastofnun.)

     Umhverfið, ferðaþjónusta og EES (1998).
    Innan Evrópusambandsins starfar sérstök ferðamáladeild. Verkefni hennar eru margvísleg, en á síðustu árum hefur starfið beinst mjög að umhverfismálum. Felst það einkum í stuðningi við evrópsk samstarfsverkefni og rannsóknir fyrirtækja, stofnana og samtaka á sviði ferðaþjónustu og umhverfismála. Einnig hafa alþjóðastofnanir á sviði ferðaþjónustu, t.d. WTO, WTTC og OECD, unnið nokkurt starf á þessu sviði. Meginmarkmið verkefnisins er að heimfæra þá miklu þekkingu sem tekin hefur verið saman af ferðamáladeild ESB og öðrum alþjóðastofnunum til eflingar umhverfisvænni ferðaþjónustu. Með þessu er atvinnugreininni gert auðveldara fyrir að nýta rannsóknir, þróunarstarf og nýsköpun í anda sjálfbærrar ferðaþjónustu. Tekin verður saman aðgengileg skýrsla um verkefni þessi og rannsóknir og að því hugað hvernig verkefnin gætu nýst íslenskri ferðaþjónustu. Um er að ræða umfangsmikinn gagnabrunn sem Íslendingar geta sótt í við uppbyggingu eigin ferðaþjónustu. (Unnið á vegum Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri.)

     Undirbúningur fyrir stofnun fræðagarðs í Mývatnssveit (1997).
    Framkvæma á tilraun við nýja útfærslu í ferðaþjónustu sem mætti kalla fræðsludægradvöl og auka fyrirgreiðslu við rannsóknarhópa. Stofnun fræðagarðs í Mývatnssveit er sprottin úr hugmyndum heimamanna um náttúruskóla fyrir vettvangskennslu skólabarna og niðurstöðum þróunarverkefnis sem er kennt við Fræðslustofuna Kríu: samvinna um fræðslu, rannsóknir og ferðaþjónustu. Rannsóknir í líffræði og jarðfræði Mývatnssveitar hafa skilað þekkingu sem vert er að nýta til að auka gildi dvalar ferðamanna á svæðinu. (Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn og Skútustaðahreppur.)

 2.    Hvaða rannsóknarstyrkir hafa verið veittir til rannsókna á sviði ferðaþjónustu?
    Rannsóknarráð Íslands gerði úttekt á rannsóknum vegna ferðamála árið 1994 og gaf út skýrslu um niðurstöður 1995. Haft var samráð við Ferðamálaráð og aðila sem tengjast ferðamálum á Íslandi. Í skýrslunni eru gerðar tillögur um leiðir til að efla rannsóknir og þróunarstarf í þágu greinarinnar, m.a. með því að skilgreina betur markmið og inntak slíkra rannsókna. Var umfjöllun um umsóknir til sjóða Rannsóknarráðs sett í ákveðinn farveg hjá fagráðum þess. Á þeim grunni hefur stuðningur sjóða Rannsóknarráðs byggst á síðari árum. Stuðningur Rannsóknarráðs beinist að því að treysta fræðilegan og vísindalegan grunn ferðaþjónustunnar og tengja hana við vísindastarfsemina í landinu, en hún fer fram á ýmsum stöðum enda enginn einn aðili sem nær yfir þá fjölbreytni sem þar kemur til álita.

    Styrkir til rannsóknarverkefna.
    Eftirfarandi er yfirlit um fjölda umsókna og veittra styrkja til verkefna á tímabilinu 1994–1999.
Ár Fjöldi umsókna Fjöldi veittra styrkja Upphæð
1994 7 2 1.550
1995 5 2 1.500
1996 5 2 2.000
1997 5 2 1.750
1998 4 2 2.100
1999 6 5 4.600
Alls 13.500     
    
    Sjá meðfylgjandi lista yfir stofnanir og umsóknir þeirra í Tæknisjóð 1994–2000.
    Fjölmargir aðilar styrkja rannsóknarverkefni á sviði ferðaþjónustu, svo sem Landvernd, Ferðamálaráð og önnur frjáls félagasamtök. Hér er einungis listi yfir þau verkefni sem Rannsóknarráð styrkir úr sjóðum á vegum menntamálaráðuneytisins. Jafnframt hafa íslenskir aðilar fengið styrki til samstarfsverkefna á sviði ferðaþjónustu úr sjóðum Evrópusambandsins (s.s. Leonardo da Vinci-áætluninni og rammaáætlunum ESB um rannsóknir og þróun).
Umsóknir í Tæknisjóð RANNÍS 1994–2000.
Styrkir á sviði rannsókna og þróunar í ferðaþjónustu.
Framlag
Umsókn /
Verkefnisstjóri

Fyrsti
umsækjandi

Heiti verkefnis

R&Þ
stofn.

fyrir-
tækis
annarra Sótt Fagl.
mat
Aths.
Fagr.
Styrkur
941450094
Ævar Harðarson
Fiska- og
sjávarútvegssafn
Fiska- og sjávarútvegssafn 0 0 1.000 750 A Styrkt 750
941450095
Ævar Harðarson
Fiska- og
sjávarútvegssafn
Fiska- og sjávarútvegssafn 0 400 800 800 A Styrkt 800
952180095
Jakob K.
Kristjánsson
Iðntæknistofnun
Íslands
Fræðslumiðstöð í hveralíffræði 605 600 500 700 A Styrkur
ekki
nýttur
952250095
María Hildur
Maack
María Hildur
Maack
Samteng. náttúruranns. og fræðslu v/ferðaþj. á Ísl. 1.594 0 2.398 1.500 A Styrkt 1500
952250096
María Hildur
Maack
María Hildur
Maack
Samteng. fræðslu og náttúrurannsókna við ferðaþjón. á Ísl. 1.619 0 1.935 1.500 A Styrkt 1500
961230096
Rögnvaldur
Guðmundsson
Ferðamálasamtök
Íslands
Góðir Íslendingar '96 0 250 2.850 600 A Styrkt 600
961230097
Rögnvaldur
Guðmundsson
Ferðamálasamtök
Íslands
Góðir Íslendingar '96 0 1.400 0 650 A Styrkt 650
970460097
Jón Helgason
Skaftárhreppur Þróun ferðaþjónustu og rannsókna í Skaftárhreppi 0 2.290 1.000 1.000 A Styrkt 1000
970460098
Helga
Guðmundsdóttir
Skaftárhreppur Þróun ferðaþjónustu og rannsókna í Skaftárhreppi 0 5.350 1.000 1.500 A Styrkt 1500
970460099
Helga
Guðmundsdóttir
Skaftárhreppur Þróun ferðaþjónustu og rannsókna í Skaftárhreppi 500 A Styrkt 500
980590098
Sólveig K.
Pétursdóttir
Iðntæknistofnun
Íslands
Heilsuböð á jarðhitasvæðum við Mývatn 1.478 320 837 1.482 A-
Forv.
Styrkt 600
990570099
Björn
Sigurjónsson
Ferðamálaráð
Íslands
Samanburður landshluta með tilliti til samsetningar ferðamanna 0 0 0 7.076 B-
Forv.
Styrkt 500
990740099
Ævar Harðarson
AB4 ehf.,
ráðgjöf – hönnun
Sagnagarður – frásagnarlist 0 0 3.800 2.500 B Styrkt 2500
980590099
Sólveig K.
Pétursdóttir
Iðntæknistofnun
Íslands
Heilsuböð við Mývatn 1.999 160 0 3.029 A-
Forv.
Styrkt 600
991540099
Dóra Stefánsdóttir
Hornafjarðarbær Jöklasafn 0 0 932 500 A-
Forv.
Styrkt 500
Samtals: 7.295 10.770 170.522 24.087 13500