Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 508  —  320. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999.

Frá minni hluta iðnaðarnefndar.



    Minni hlutinn telur að málið hefði þurft lengri tíma í meðförum nefndarinnar. Eins og fram kom við 1. umræðu málsins hefði verið rétt að vísa því til umsagnar menntamálanefndar og efnahags- og viðskiptanefndar, enda koma efnisatriði frumvarpsins inn á verksvið beggja þessara nefnda.
    Að öðru leyti er minni hlutinn sammála áliti meiri hlutans.

Alþingi, 11. des. 2000.



Árni Steinar Jóhannsson.