Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 524 — 318. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2001.
Frá samgöngunefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur frá samgönguráðuneytinu og Gústaf Arnar frá Póst- og fjarskiptastofnun.
Með frumvarpinu er lagt til jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2001. Í 15. gr. fjarskiptalaga, nr. 107/1999, er kveðið á um að jöfnunargjald skuli ákveðið árlega með lögum. Í frumvarpinu er lagt til að jöfnunargjaldið fyrir árið 2001 verði 0,12% af bókfærðri veltu fjarskiptafyrirtækja af almennri þjónustu.
Samkvæmt lögum nr. 72/2000, um jöfnunargjald vegna alþjónustu árið 2000, nam gjaldið 0,18% af bókfærðri veltu fyrir árið 2000. Frumvarpið gerir því ráð fyrir að gjaldið lækki í 0,12% á árinu 2001. Prósentuhlutfallið er fundið út með því að miða við veltu gjaldskyldra aðila á árinu 1999 og fjárþörf sjóðsins árið 2001.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 13. des. 2000.
Árni Johnsen,
form., frsm.
Hjálmar Árnason.
Kristján L. Möller.
Guðmundur Hallvarðsson.
Jón Bjarnason.
Jón Kristjánsson.
Arnbjörg Sveinsdóttir.
Lúðvík Bergvinsson.