Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 562  —  214. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, nr. 62 30. apríl 1973, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



     1.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
                  a.      2. mgr. orðast svo:
                     Flutningsjöfnunargjaldið skal reikna og greiða á hvert selt tonn af sementi. Skulu innlendir framleiðendur og innflytjendur, sem stunda endursölu á sementi á minnst tveimur verslunarstöðum sem jafnframt eru aðaltollhafnir, greiða gjaldið til flutningsjöfnunarsjóðs sements af sölu í hverjum mánuði eigi síðar en á síðasta virka degi að tveimur mánuðum liðnum frá lokum sölumánaðar. Flutningsjöfnunargjald af öðru innfluttu sementi skal innheimt með aðflutningsgjöldum. Annast tollstjórar innheimtuna og skulu þeir skila gjaldinu til flutningsjöfnunarsjóðs sements.
                  b.      Við bætist ný málsgrein er orðast svo:
                     Þrátt fyrir 1. mgr. skal ekki leggja flutningsjöfnunargjald á sement sem notað er til framleiðslu á viðgerðarefnum eða tilbúnum múrblöndum. Flutningsjöfnunarsjóður greiðir ekki flutningskostnað á sementi til þeirra nota.
     2.      Við 3. gr. Greinin orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
                  a.      2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Er stjórninni meðal annars heimilt að ákveða að jöfnun flutningskostnaðar milli tiltekinna verslunarstaða, þar á meðal framleiðslustaðar eða aðaltollhafnar og annarra verslunarstaða, skuli takmörkuð við kostnað af þeim flutningsháttum sem ódýrastir eru á hverjum tíma og skemmstu flutningsleið.
                  b.      2. mgr. fellur brott.