Ferill 363. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 566  —  363. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Vegagerðina.

Frá Gunnari Birgissyni.



     1.      Hve margir starfa nú hjá Vegagerðinni og hve margir störfuðu þar árin 1990 og 1995?
     2.      Hvenær stendur til að öll slitlagsgerð sem framkvæmd er af Vegagerðinni verði boðin út?
     3.      Hvernig hefur einingaverð í kostnaðaráætlunum Vegagerðarinnar breyst frá 1. ágúst 1999 til 1. desember 2000 með tilliti til þess að miklar hækkanir hafa orðið á olíuverði, þungaskatti, tryggingaiðgjöldum, varahlutaverði o.fl.?
     4.      Hve margir yfirmenn Vegagerðarinnar eru:
                  a.      verkfræðingar,
                  b.      tæknifræðingar,
                  c.      viðskiptafræðingar?