Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 637  —  387. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um tjón af völdum óskilagripa.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Hver er afstaða ráðherra til þess að sveitarfélög beri eigendaábyrgð í þeim tilvikum þar sem ómerktir óskilagripir, sem ekki tekst að sanna eignarhald á, valda tjóni, t.d. óskilahross á vegum þar sem lausaganga er bönnuð?