Ferill 393. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 643  —  393. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um innflutning kjöts á frísvæði.

Frá Sigríði Jóhannesdóttur.



    Hver fylgist með því og hvaða vottorða er krafist þegar um er að ræða innflutning kjöts á svokallað frísvæði eins og t.d. flugeldhús Flugleiða á Keflavíkurflugvelli?


Skriflegt svar óskast.