Ferill 395. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 645  —  395. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um Fasteignamat ríkisins og Landskrá fasteigna.

Frá Árna Steinari Jóhannssyni.



     1.      Hversu marga nýja starfsmenn hefur Fasteignamat ríkisins ráðið sl. 18 mánuði og hvar á landinu starfa þeir?
     2.      Hefur ráðherra áminnt forstjóra Fasteignamats ríkisins fyrir að framfylgja ekki ákvörðun Alþingis og vilja ráðherra um að Landskrá fasteigna verði á skrifstofu stofnunarinnar á Akureyri?
     3.      Hverju sætir að undirbúningur starfrækslu Landskrárinnar fer að engu leyti fram norðan heiða?
     4.      Hvenær er þess að vænta að starfsemi Landskrárinnar hefjist á Akureyri?