Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 647  —  397. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar.

Frá Svanfríði Jónasdóttur og Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Er sjávarútvegsráðherra þeirrar skoðunar að ekkert sé því til fyrirstöðu að Íslendingar hefji hvalveiðar nú þegar Norðmenn hafa ákveðið að hefja útflutning hvalaafurða?
     2.      Ef svo er hvenær sér ráðherra þá fyrir sér að veiðar hefjist og á hvaða tegundum?