Ferill 398. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 649  —  398. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um endurgerð brúar yfir Ströngukvísl.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvers vegna var brúin yfir Ströngukvísl á Eyvindarstaðaheiði, sem eyðilagðist í flóðum síðla vetrar árið 2000, ekki endurgerð þegar á sl. sumri eins og Landsvirkjun bar skylda til?
     2.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að Landsvirkjun láti endurbæta brúna strax í vor þannig að umferð um hana geti orðið eðlileg næsta sumar?