Ferill 399. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 650  —  399. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um innflutning á nautakjöti.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hvaða forsendur voru fyrir því að leyfa innflutning á nær 6,5 tonnum af frosnum nautalundum frá Írlandi í desember sl. þrátt fyrir að Írar hafi enn ekki náð tökum á útbreiðslu kúariðu og standi nú í miklum aðgerðum og stórfelldri slátrun vegna smithættu?
     2.      Hver ber ábyrgð á því að landbúnaðarráðuneytið fór ekki eftir auglýsingu nr. 324/1999 varðandi þennan innflutning á nautalundum frá Írlandi?
     3.      Er kúariðufárið á Írlandi ekki næg ástæða að mati ráðherra til að beita ákvæðum fyrrgreindrar auglýsingar og krefjast vottorðs um að kúariða hafi ekki greinst í viðkomandi landi næstliðna sex mánuði, sbr. lista B frá OIE?
     4.      Túlkar ráðuneytisstjóri landbúnaðarráðuneytisins skoðun ráðherra þegar hann fullyrðir að reglur sem ráðuneytið sjálft hefur sett um innflutning á kjötvörum stangist á við gildandi lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og alþjóðaskuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist, sbr. ummæli á blaðamannafundi 12. janúar sl.?
     5.      Hvað er því til fyrirstöðu að setja reglur sem banni alfarið innflutning á fersku nautakjöti frá þeim löndum þar sem kúariða hefur greinst eins og þegar hefur verið gert í nokkrum löndum?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.


    Spurningar þessar eru efnislega hinar sömu og beint var til landbúnaðarráðherra í umræðum utan dagskrár þriðjudaginn 16. janúar sl. Þrátt fyrir að ráðherra væru sendar spurningarnar fyrir fram skorti verulega á að efnisleg svör fengjust frá honum við þeim. Þeirra svara er því hér með óskað skriflega.