Ferill 400. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 652 — 400. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um reglur Evrópusambandsins um viðskipti með dýraafurðir.
Frá Jóni Bjarnasyni og Þuríði Backman.
1. Mun ráðherra áfram standa gegn því að teknar verði upp reglur Evrópusambandsins varðandi heilbrigði dýra og plantna sem undanþága fékkst frá þegar EES-samningurinn var samþykktur og koma fram í I. viðauka við hann?
2. Er það mat ráðherra að Íslendingum beri nú þegar að fara að áliti og niðurstöðum vísindanefndar Evrópusambandsins við áhættumat í viðskiptum og við markaðssetningu á lifandi dýrum og dýraafurðum frá ríkjum þess?
3. Hvers vegna bannar ráðherra ekki nú þegar innflutning nautgripaafurða frá Evrópusambandinu vegna hættu á kúariðusmiti og fylgir þannig fordæmi fjölmargra annarra ríkja, t.d. Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálands, Japans og Rússlands, sem eins og Ísland eiga aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni?