Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 661  —  406. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um framhaldsskólanám í Stykkishólmi.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvers vegna hafnaði ráðherra beiðni frá heimafólki í Stykkishólmi á sl. ári um að boðið væri upp á hefðbundið nám á öðru ári framhaldsskóla við framhaldsdeild í Stykkishólmi skólaárið 2000–2001?
     2.      Mun ráðherra samþykkja og stuðla að því að bæði fyrsta og annað námsár framhaldsskóla verði starfrækt við framhaldsdeild í Stykkishólmi skólaárið 2001–2002?