Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 680 — 419. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um málefni Búnaðarbankans og stjórnenda hans.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Gengu til baka kaup starfsmanna Búnaðarbankans á hlutabréfum í Decode árið 1999 sem brutu í bága við verklagsreglur bankans og Fjármálaeftirlitið taldi að ættu að ganga til baka? Ef svo er ekki, hvers vegna?
2. Var staðið eðlilega að útboði bankans og sölu á hlutabréfum í bankanum í ársbyrjun 2000 og voru ákvæða laga og reglna um innherjaviðskipti brotin við kaup einstakra starfsmanna og lífeyrissjóðs bankans á bréfunum, en aðkomuviðvörun um að hagnaður bankans yrði meiri en um gat í útboðslýsingu var gefin út nokkrum dögum eftir að útboði lauk og höfðu hlutabréf í bankanum hækkað um nálægt 20%? Hverjar urðu lyktir þess máls og hver bar ábyrgð á hvernig sölu á hlutabréfum til aðila innan bankans var hagað?
3. Hver er staða mála nú varðandi eignarhluta Búnaðarbankans í Pharmaco hf., en Fjármálaeftirlitið sendi ríkislögreglustjóra beiðni um rannsókn vegna gruns um að bankinn hefði haft innherjaupplýsingar um félagið undir höndum? Er ástæða til að ætla að í því tilviki hafi bankinn brotið ákvæði laga um verðbréfaviðskipti?
4. Hvaða lög og reglur má ætla að hafi verið brotin í tengslum við kaup og sölu Búnaðarbankans á hlutabréfum í Ágæti hf. sem Búnaðarbankinn eignaðist meiri hluta í árið 1999?
5. Hafa stjórnendur Búnaðarbankans leiðrétt þann mikla mun sem var á bifreiðastyrkjum til karla og kvenna innan bankans í sömu og sambærilegu stöðum sem kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði árið 1998 að bryti í bága við jafnréttislög?
6. Hvaða viðurlög geta átt við í hverju þeirra mála sem um er getið í 1.–5. lið? Hver ber ábyrgð á að lög og reglur í hverju tilviki fyrir sig voru brotin og hafa komið upp fleiri mál tengd Búnaðarbankanum sl. fimm ár en hér hafa verið talin upp sem varðað geta brot á ákvæðum laga og reglna? Ef svo er, hvaða mál eru það?
7. Hver eru viðbrögð ráðherra við margítrekuðum brotum bankans á lögum og reglum? Hefur ráðherra áminnt bankaráð eða stjórnendur bankans fyrir þessi brot? Ef svo er, í hvaða tilvikum og með hvaða hætti telur ráðherra að þessi aðilar eigi að sæta ábyrgð vegna þessara mála?
Skriflegt svar óskast.