Ferill 425. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 686  —  425. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um sjálfstæði Seðlabanka Íslands.

Frá Drífu J. Sigfúsdóttur.



     1.      Á að auka sjálfstæði Seðlabanka Íslands þannig að hann geti notað tæki sín til peningastjórnar til að ná þeim markmiðum sem honum eru sett án þess að samþykki ríkisstjórnar eða ráðherra bankans þurfi að koma til?
     2.      Á að lögfesta bann við fjármögnun Seðlabanka Íslands á ríkissjóði?
     3.      Á að lengja ráðningartíma bankastjóra Seðlabanka Íslands?
     4.      Á að hætta að auglýsa stöður bankastjóra við Seðlabanka Íslands?
     5.      Hvernig miðar vinnu við að semja nýtt frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands?


Skriflegt svar óskast.























Prentað upp.