Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 689 — 428. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um skipan stjórnarskrárnefndar.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Hyggst ráðherra skipa að nýju nefnd sem vinni að áframhaldandi endurskoðun stjórnarskrárinnar?
2. Hvaða kafla, greinar og efnisatriði stjórnarskrárinnar telur ráðherra helst þörf fyrir að yfirfara eða endurskoða í ljósi aðstæðna og innlendrar og alþjóðlegrar réttarþróunar?