Ferill 438. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 701  —  438. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um greiðslur úr ríkissjóði vegna fundahalda ýmissa starfsstétta.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hve há fjárhæð hefur verið greidd úr ríkissjóði vegna þinghalds eða funda ýmissa starfsstétta á sl. fjórum árum, sundurliðað eftir starfsstéttum og árum?
     2.      Hvaða reglur gilda um þessar greiðslur? Hvað fær hver þingfulltrúi eða fundarmaður greitt á dag? Hvað annað er greitt?
     3.      Á hvaða forsendum eru slíkar greiðslur eru inntar af hendi; hver er hinn lagalegi grunnur þeirra?


Skriflegt svar óskast.