Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 702  —  439. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um innflutning gæludýrafóðurs og kjötmjöls.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hver var innflutningur gæludýrafóðurs (hunda- og kattafóðurs í smásöluumbúðum) árin 1996 til janúar 2001, mælt í tonnum, og hvert var innflutningsverð og helstu innflutningslönd?
     2.      Hver var innflutningur á kjötmjöli af dýrum af nautgripakyni á sama tímabili, sundurliðað á sama hátt?
     3.      Hver var heildarinnflutningur á kjötvörum árin 1999 og 2000 sundurliðað eftir vörutegund/tollnúmeri, þyngd og verðmæti?


Skriflegt svar óskast.























Prentað upp.